Fréttablaðið - 13.02.2003, Síða 29
29FIMMTUDAGUR 13. febrúar 2003
ÍRAK Tvær frægar leynilöggur
kvikmyndasögunnar voru í
gær nefndar til sögunnar í
Íraksdeilunni. Colin Powell,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sakaði frönsku ríkis-
stjórnina um að vilja koma í
veg fyrir stríð í Írak með því
að senda, eins og hann orðaði
það, Clouseau varðstjóra til
Miðausturlanda að leita að
vopnum. Franski leynilög-
reglumaðurinn Clouseau,
sem leikinn var af Peter
Sellers í kvikmyndunum
um Bleika pardusinn,
þótti einkar klaufalegur í
störfum sínum. Athuga-
semd Powells var því
til þess fallin að lítil-
lækka Frakka og
gera lítið úr tillög-
um þeirra um fjölg-
un vopnaeftirlits-
manna.
Hinn njósnari kvik-
myndanna sem var
nefndur á nafn í al-
þjóðlegum umræðum
um Írak í gær var
enginn annar en
James Bond. Breska
dagblaðið The Guardian lýsti því
yfir í leiðara að Íraksdeilan væri
til komin að stórum hluta vegna
þess að leyniþjónustur Breta og
Bandaríkjamanna hefðu staðið
sig einkar illa á undanförnum
árum. Litlar upplýsingar væru til
staðar um ástand mála í Írak og
allt of lítil áhersla hefði verið
lögð á gamaldags og hefðbundnar
njósnir, sem gætu fyrirbyggt
stríðsátök. „Náum í Bond,“ segir
blaðið í fyrirsögn leiðarans.
„James Bond er maðurinn sem
heimsbyggðina vantar.“ ■
Ýmis nöfn eru nefnd til sögunnar til lausnar Íraksdeilunni:
Clouseau og Bond á leið til Íraks
JAMES BOND
The Guardian telur þörf
á manni eins og honum.
CLOUSEAU
Colin Powell líkir vopnaeftirlitsmönnum
við þennan klaufalega lögreglumann.
Ný plata frá Air:
Í samstarfi
við rithöfund
TÓNLIST Franski rafdúettinn Air
hyggst gefa út plötu í samstarfi
við ítalska rithöfundinn Al-
essandro Baricco. Baricco mun
semja texta við lög sveitarinnar.
Samstarfið hófst sumarið 2002
þegar Ítalinn hafði samband við
Frakkana. Baricco las upp úr bók
sinni á tónleikum Air og þótti svo
vel til takast að ákveðið var að
hljóðrita þá og gefa út. Platan hef-
ur fengið nafnið „City Reading:
Tre Storie Western“ og kemur
væntanlega út 24. mars. Margir
bíða spenntir eftir næstu skífu
Air en sveitin gaf síðast út plötuna
„10.000 Hz Legend“. ■
Fyrrum meðlimir The Smiths:
Græða á Tatu
TÓNLIST Margir hafa grætt á
óvæntri velgegni rússneska les-
bíudúettsins Tatu. Meðal þeirra
eru Morrisey og Johnny Marr úr
hljómsveitinni The Smiths. Félag-
arnir hafa grætt um 200 þúsund
pund á laginu „How Soon Is Now“
sem finna má á plötu Tatu „200
KM/H in the Wrong Lane“. Lagið
kom upphaflega út á plötu The
Smiths, „Hatful of Hollow“.
Líklegt þykir að Morrissey og
Marr muni fá aukna vasapeninga
þegar plata Tatu kemur út í
Englandi á næstu dögum.
Julia Volkova, annar helming-
ur Tatu, segist aldrei hafa heyrt í
The Smiths. Þær heyrðu lagið í
fyrsta sinn í hljóðverinu og
ákváðu að slá til. ■
TATU
Ungu lesbíurnar í Tatu hafa slegið í gegn
að undanförnu.
SKÓR OG ÚLPUR FYRIR ALLA
á 50-80% lægra verði
Einnig barna- og unglingafatnaður
Everlast gallar
Fullorðins 2.990
Krakkastærðir 60-170 2.500
Opið
Mán. - fös. 11-18
Lau. 11-16
OUTLET 10
+ + + m e r k i f y r i r m i n n a + + +
FAXAFENI 10 – SÍMI 533 1710
Nýt
t ko
rta
tím
abi
l
í da
g
ÚLPUR
Everlast úlpur 4.990
Fila barnaúlpur 2.990
Fila úlpur 7.900
DKNY úlpur 3.500
Dömur
Laura Aime bolir 1.500
Studio kápur 6.990
Tark gallajakkar 5.990
Morgan buxur 3.500
Red Bubble stígvél 5.590
Billi bi stígvél 6.990
Herra
Bene jakkaföt 12.500
4 You skyrtur 1.990
Everlast peysur 1.990
4 You herraskór 3.500
Portland skór 3.990
Póstsendum
Ný sending
af dömufatnaði