Fréttablaðið - 13.02.2003, Qupperneq 30
30 13. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
Opið hús og funda-
höld á afmælinu
SEXTUGUR „Dagurinn fer annars
að einhverju leyti í fundahöld
með bæjarstjóra Akureyrar um
menningarhús, í kjölfar sam-
þykktar ríkisstjórnarinnar,“ seg-
ir Tómas Ingi Olrich mennta-
málaráðherra, sem er afmælis-
barn dagsins.
Tómas Ingi hefur ekki gert
mikið tilstand út af afmælum sín-
um að undanskildum stórafmæl-
um. Hann hélt formlega upp á
fimmtugsafmælið og segir það
eftirminnilegt. „Það var afar
fjölmennt og ánægjulegt.“
Hann segist þó einnig muna
eftir afar dapurlegum afmælis-
degi, þegar hann var við nám í
Montpellier í Frakklandi.
„Það var dálítið einmannalegt
afmæli. Ég var eini Íslendingur-
inn við nám þar og það var svolít-
ið tómlegt.“ Þá var Tómas Ingi
rétt rúmlega tvítugur og nam
franskar bókmenntir, ensku og
atvinnulandafræði við háskólann
í Montpellier.
Tómas Ingi er kvæntur Nínu
Þórðardóttur og eiga þau fjórar
dætur. „Dætur okkar eru við nám
og störf víða um heim. Ein er bú-
sett á Akureyri, ein er við nám í
Svíþjóð, ein rekur fyrirtæki í
London og sú yngsta er nýfarin
til Kaupmannahafnar til náms.“
Sú sem búsett er á Akureyri
verður að sjálfsögðu viðstödd
veisluna í dag, sem og sú sem bú-
sett er í Svíþjóð. Sú síðarnefnda á
tveggja og hálfs árs gamlan
dreng sem nefndur er í höfuðið á
afmælisbarninu.
Tómas Ingi hefur komið víða
við á starfsferli sínum. Hann
kenndi við Menntaskólann á Ak-
ureyri í 20 ár, þar af tíu sem að-
stoðarskólameistari. Hann starf-
aði um skeið sem hótelstjóri á
Hótel Eddu á Akureyri, ritstýrði
Íslendingi og var kosinn á þing
árið 1991.
„Ég hafði mjög gaman af því
að kenna og það átti vel við mig.
Stjórnunarstarfið átti einnig vel
við mig en mér þótti kennslan
skemmtilegri,“ segir Tómas Ingi.
Aðspurður hvort hann muni ein-
hvern tímann snúa sér aftur að
kennslunni sagði Tómas Ingi:
„Ég hef oft skipt um starf og
mér hefur alltaf þótt það góð og
holl tilbreyting. Það er hollt fyrir
hvern og einn að skipta um starf.“
kristjan@frettabladid.is
AFMÆLI
RITSTJÓRI „Það var lengi ógæfa mín
að þurfa að skrifa um stjórnmál
og stjórnmálamenn. Það er miklu
skemmtilegra að skrifa um
hross,“ segir Jónas Kristjánsson,
sem ráðinn hefur verið ritstjóri,
útgáfustjóri og framkvæmda-
stjóri til Eiðfaxa ehf. sem gefur út
samnefnt tímarit bæði á íslensku
og útlensku, auk Stóðhestablaðs-
ins og vefritsins eidfaxi.is. Þetta
verður vettvangur Jónasar á
næstunni:
„Hestar hafa verið áhugamál
mitt árum saman og það er stór-
kostlegt að fá nú að starfa við
þetta og vera í hrossum allan sól-
arhringinn. Þetta er draumastarf
fyrir mig,“ segir Jónas, sem hef-
ur tekið því rólega að undanförnu
og mest verið að stússa í hrossum
á Kaldbaki í Hrunamannahreppi,
jörð sem hann á í félagi við aðra.
„Þar hef ég verið country
gentleman en yfir það er ekki til
orð á íslensku. Þýðir í raun mað-
ur sem setur Beethoven á fóninn,
fer svo í heitan pott þaðan sem
hann dáist að hrossum sínum í
haga. En nú þarf ég víst að fara
að vinna,“ segir Jónas sem á ell-
efu hross ásamt Kristínu Hall-
dórsdóttur eiginkonu sinni. Sjö
eru þegar komin í hús í Víðidaln-
um og von á fleirum. Um muninn
á hrossum og stjórnmálamönnum
segir Jónas: „Ákveðin hross eru
betri efni í ráðherra en stjórn-
málamenn. Til dæmis á Kristín
kona mín hest sem heitir Stígur
frá Vík, undan Létti frá Vík, en
hann yrði betri forsætisráðherra
en Davíð. Stígur er greindur,
skipulagður, var um sig og hefur
alla þá kosti sem forsætisráð-
herra þarf á að halda.“ ■
Jónas Kristjánsson hefur verið ráðinn rit-
stjóri Eiðfaxa og segist nú geta verið í
hrossum allan sólarhringinn – hafa dottið
niður á draumastarfið.
Stöðuveiting
Hross skemmtilegri
en stjórnmálamenn
TÓMAS INGI OLRICH
Tómas Ingi Olrich er sextugur í dag. Hann á, að eigin sögn, allt of mörg áhugamál, svo
sem íþróttir, skógrækt, bókalestur, hestamennsku og sígilda tónlist.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
RITSTJÓRI Á NÝ
Jónas Kristjánsson boðar breytingar sem
felast í markvissara efni sem kemur fólki
beint að notum.
Þau hittust eitt sinn í skóginum,björninn og kanínan. Björninn
spurði kanínuna: „Segðu mér, nú
ert þú með loðinn feld eins og ég,
á kúkurinn það ekki til að festast í
hárunum þegar þú gengur örna
þinna?“
„Nei,“ segir kanínan.
„Það er gott. Ég nefnilega á
engan klósettpappír,“ sagði björn-
inn og þreif í kanínuna... ■
Að gefnu tilefni skal tekið fram að nýtt
Menningarhús ríkisstjórnarinnar í Vest-
mannaeyjum á ekki að heita Árnastofnun
né heldur á Menningarhúsið á Akureyri að
heita Kofi Tómasar frænda.
Leiðrétting
Ég er formaður Sálarrann-sóknarfélagsins. Mestur
hluti starfs míns fer í að sinna
félaginu en ég er einnig skóla-
stjóri Sálarrannsóknarskólans,“
segir Magnús H. Skarphéðins-
son. Magnús hefur síðustu ár
safnað saman dulrænum
reynslusögum þjóðarinnar. Eftir
20 ára rannsóknarvinnu er hann
kominn með um þrjú þúsund
sögur. „Ég mun örugglega gefa
þær út einhvern tímann en ég
ætla að byrja á því að setja þær
á Netið eftir tvö til þrjú ár.“
HVAR? TÍMAMÓT
FRÉTTIR AF FÓLKI
Imbakassinn eftir Frode Øverli
Donald Rumsfeld.
6,3 milljarðar króna.
Matthew Perry.
1.
2..
Svör við spurningum á bls. 6
3.
Veistu svarið?
JARÐARFARIR
13.30 Sæmundur Gíslason, Safamýri
46, Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
ANDLÁT
Margrét Sigurjónsdóttir frá Fíflholtum,
Mýrasýslu, Vesturgötu 28, Reykjavík, lést
10. febrúar.
AFMÆLI
Tómas Ingi Olrich er sextugur. Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra er sextugur í dag. Hann
verður með opið hús í Oddfellow-húsinu á Akureyri milli fimm og sjö
og býst við að sjá samherja jafnt sem andstæðinga úr pólitíkinni.
Í alvöru!
Ef maður spilar þessa plötu
afturábak heyrist:
„Jesús lifir...
Jesús lifir!“
GÆSUNUM GEFIÐ
Það virðist nánast vera komið vor í lofti í Laugardalnum þar sem gæsum og
öndum var gefið í vikunni.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
Háskólastúdentar funduðumeð ungum frambjóðendum
til alþingiskosninganna á þriðju-
daginn. Sigurður
Kári Kristjánsson
mætti fyrir hönd
Sjálfstæðisflokks-
ins og talaði
ófeiminn fyrir
hækkun skóla-
gjalda. Hugmynd-
in féll þó síður en
svo í frjóan jarðveg og fundar-
gestir tóku henni vægast sagt illa
og mótmæltu svo hressilega að
tvær grímur runnu á frambjóð-
andann unga sem fór þarna hálf-
gerða sneypuför á gamlar slóðir.
Það mun krauma ýmislegt ann-að en ánægja meðal starfs-
manna Ríkisútvarpsins vegna nýs
morgunútvarps sem útvarpsráð
hefur samþykkt að hefjist innan
skamms. Morgun-
útvarpið verður
sameiginlegt fyrir
báðar rásir Ríkis-
útvarpsins og
verður eldri og
hefðbundnari skip-
an mála ýtt til
hliðar af þessu til-
efni. Þykir starfsfólki sem póli-
tískur þefur sé af þessu og þá
sérstaklega í ljósi komandi kosn-
inga. Ómenguð pólitíkin hefji nú
innreið sína í morgunútvarpið
með góðfúslegu leyfi pólitískt
kjörinna útvarpsráðsmanna.