Fréttablaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 13. febrúar 2003
debenhams
S M Á R A L I N D
Drengjabuxur 2.590 kr. Telpnabuxur 2.990 kr.
Barnabolir og skyrtur í miklu úrvali.
Vasar frá 2.490 kr. Velúrgallar
Toppar frá 2.990 kr. Buxur frá 3.990 kr.
Sjá›u...
...full bú› af n‡jum vörum
í öllum deildum.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
01
92
02
/2
00
3
Persónulegur stílisti
Ókeypis persónuleg þjónusta án nokkurra skuldbindinga.
Ráðgjöf um val á brjóstahöldurum
Um 70% kvenna nota ranga stærð brjóstahaldara.
Fagfólk okkar ráðleggur þér um rétt val, ókeypis og án skuldbindinga.
Gjafainnpökkun
Gjöfinni þinni pakkað inn í glæsilegar umbúðir.
Verðið kemur þægilega á óvart!
N‡tt kortatímabil
Nýtt í Nó
atúni
998.-
tilboðaðeins kr.
Verð
kr.1.690.-
FÓLK Leikarinn Sean Penn segist
hafa misst af stóru hlutverki í
kvikmynd vegna skoðana sinna á
fyrirhuguðum árásum á Írak.
Framleiðandi myndarinnar, Steve
Bing, segir málið allt á misskiln-
ingi byggt og ætlar að láta reyna á
það fyrir dómstólum.
Penn hafði samið við Bing um
aðalhlutverk í myndinni „Why
Men Shouldn’t Marry“, sem sá síð-
arnefndi framleiðir og skrifar
handrit að.
Penn hefur ekki farið leynt með
andúð sína á fyrirhuguðum árás-
um á Írak og kennir því um það að
Bing rifti samningnum.
Lögfræðingar framleiðandans
segja hins vegar að Penn sé
„hrokafullur leikari“ sem hafi
aldrei átt að fá hlutverkið. ■
Sean Penn:
Varð af hlut-
verki vegna
skoðana
SEAN PENN
Skoðanirnar urðu honum að falli.
Ísólfur Gylfi Pálmason, læri-sveinn Halldórs Blöndal á for-
setastóli Alþingis, sýndi það og
sannaði með vask-
legri framgöngu
sinni í gær að
fyrsti forseti er
ekki sá eini sem
stendur klár á
þingsköpunum.
Einar Oddur
Kristjánsson,
fimmti þingmaður Vestfjarða,
var á góðri sigl-
ingu í ræðustóli
þegar Ísólfur
Gylfi þaggaði nið-
ur í honum þar
sem honum hafði
láðst að biðja for-
seta um leyfi áður
en hann fór með
beina tilvitnun. Einar Oddur tók
leiðbeiningum sitjandi forseta
vel, bað formlega um leyfið eftir
á og hélt svo áfram að skemmta
þingheimi sem hló dátt að öllu
saman.
Ótrúleg sátt virðist ríkja meðalkvikmyndagerðarmanna en
Tómas Ingi Olrich skipaði Lauf-
eyju Guðjónsdóttur í embætti for-
stöðumanns Kvikmyndamiðstöðv-
ar Íslands fyrir skömmu. En kenn-
ingar láta ekki á sér standa... Alls
sóttu 17 um stöðuna, margir sem
þóttu vænlegir kandídatar. Mætt-
ust víst stálin stinn þegar mennta-
málaráðherra og
kvikmyndaráð,
sem um stöðuna
véluðu, tókust á
um tvo þeirra. Þor-
finnur Ómarsson
er ekki í náðinni en
Tómas Ingi vék
honum úr starfi
hjá Kvikmynda-
sjóði fyrir nokkru og fulltrúar
annarra sjónarmiða munu vart
hafa mátt til þess
hugsa að einhver
tengdur Hrafni
Gunnlaugssyni
yrði fyrir valinu
en þannig hefur
Rúnar Gunnarsson
dagskrárstjóri
RÚV verið teikn-
aður upp. Ráðning Laufeyjar í
stöðuna virðist því hafa verið far-
sæl lending á snúnu máli.
Fréttablaðið hefur sagt frá þvíað mikið standi til hjá Sjón-
varpinu vegna Júróvisjónkeppn-
innar en nú herma heimildir að
önnur keppni muni jafnvel ná að
yfirskyggja sjálfa aðalkeppnina:
Nefnilega hver mun standa sig
betur sem kynnir. Þar fara tveir
vinir, en jafnframt miklir keppi-
nautar, en þeir líta jafnan til þess
að vera nefndir sjónvarpsmenn
ársins. Þetta eru að sjálfsögðu
þeir Gísli Marteinn Baldursson og
Logi Bergmann Eiðsson sem sam-
an munu standa á sviði Háskóla-
bíós þegar gleðin stendur sem
hæst.