Fréttablaðið - 13.02.2003, Qupperneq 32
Hver starfsstétt hefur sinn húmorog sína sérstöðu. Ungur fór ég
til sjós og hægt og bítandi tók ég að
skilja fyndni skipsfélaga minna. Það
var ekki átakalaust þar sem mér varð
að minnsta kosti tvisvar illa á í mess-
unni í fyrstu tilraunum mínum til
þess að vera fyndinn. Fyrra skiptið
þótti afskaplega aulalegt. Þannig
hafði háttað til að auglýst hafði verið
eftir hásetum á bát til netaveiða. Nú,
við vorum að draga netin fyrsta sinni
þegar ég sá mér leik á borði til að
gleðja skipsfélagana, sem ég var ann-
ars afar feiminn við.
ÞEGAR FYRSTU fiskarnir komu
inn fyrir borðstokkinn sagði ég eins
hátt og ég þorði: Hvað fiskar, var ég
ekki ráðinn til netaveiða! Enginn hló
en allir horfðu þeir á mig sem ég
væri hið mesta viðundur, sem ég
vissulega var í þeirra augum. Ég
roðnaði og skammaðist mín stórlega
og hét sjálfum mér því að reyna ekki
aftur að slá um mig með misheppn-
aðri fyndni. Aldrei aftur. Það var
ákveðið.
SÍÐDEGIS NÆSTA dag vorum við
hásetarnir samankomnir í borðsaln-
um þegar einn segir, hvar ætli við
séum núna? Á því augnabliki stóð ég
við kýraugað, horfði út, gleymdi fyr-
irheitum gærdagsins og sagði án
frekari umhugsunar: Á sama stað og
í morgun. Hvernig veistu það, var
spurt á móti. Sömu öldur, þekki þær
aftur, sagði ég áður en ég gat stopp-
að. Það hló enginn heldur var horft
mig sem meira viðundur en í fyrra
sinnið. Ég lofaði sjálfum mér að
klikka ekki aftur, sem varð til þess
að ég opnaði varla munninn næstu
daga.
MÖNNUM HAFA svo sem orðið á
verri mistök. Samt er það ekkert
þægilegt að halda aftur af sér svo
dögum skiptir. Málglaðir menn eiga
bágt með að þegja. Það á við um mig.
Ég gat viðurkennt að mér varð á og
skil núna, en gerði ekki þá, að skips-
félagarnir urðu að fá tíma til að meta
hvort ég væri algjör kjáni eða hefði
annan húmor en þeir. Allt fór vel að
lokum og nokkra þeirra þekki ég enn
þann dag í dag. Núna, meira en þrjá-
tíu árum síðar, bakka ég ekki með
það sama hvað hver segir, eða sagði
réttara sagt, að ég var fyndinn. ■
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
Sigurjóns M. Egilssonar
Erfitt að
þegja lengi
www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma