Fréttablaðið - 04.04.2003, Page 2
2 4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
“Nei, nema þjóðin kalli á mig.
Þá er ég reiðubúinn.“
Nýtt afl stefnir að framboði í öllum
kjördæmum landsins. Jón Magnússon lögmaður
er þar í forystusveit.
Spurningdagsins
Jón, langar þig virkilega á þing?
■ Asía
VARNARSAMNINGUR Ekkert hefur
orðið af fyrirhuguðum viðræðum
milli íslenskra og bandarískra
stjórnvalda um framtíð varnarliðs-
ins og varnir Íslands. Innrás
Bandaríkjamanna í Írak hefur orð-
ið til þess að viðræður um varnar-
viðbúnað á Miðnesheiði hafa fallið
í skuggann.
Gunnar Snorri Gunnarsson,
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu-
neytinu, segir að menn hafi verið
farnir að huga að dagsetningum
fyrir fundi. Ekkert hafi orðið af
því vegna innrásarinnar í Írak þar
sem hluti sendinefndar Bandaríkj-
anna verði að vera við störf sín í
Bandaríkjunum af þeim sökum.
Mjög hefur dregist að semja
um framlengingu viðauka við
varnarsamninginn þar sem kveðið
er á um með hvaða hætti varnir Ís-
lands skuli tryggðar. Semja hefði
átt um slíkt fyrir rúmum tveimur
árum síðan en það misfórst þegar
stjórnarskipti urðu í Bandaríkjun-
um eftir forsetakosningarnar
2000. Viðmælandi í bandaríska
stjórnkerfinu kallaði það klaufa-
skap.
Viðmælendur blaðsins segja
greinilegt að innan bandaríska
varnarmálaráðuneytisins sé sú
skoðun ríkjandi að hægt sé að
skera niður rekstur varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli, rétt eins og á
fjölda herstöðva víða um heim sem
ekki séu jafn mikilvægar nú og á
tímum kalda stríðsins. Ekki standi
til að flytja allt varnarliðið á brott
en fækka í því. Utanríkisráðuneyt-
ið bandaríska hefur lagt meiri
áherslu á að tryggja lágmarks-
varnir Íslands. ■
STJÓRNMÁL Framsóknarflokkurinn
leggur áherslu á vinnu, vöxt og
velferð í stefnuskrá sinni fyrir
kosningarnar 10. maí. Halldór Ás-
grímsson, formaður flokksins,
segir að þannig vilji flokkurinn
skapa grundvöll fyrir bættum
kjörum og sterku velferðarkerfi.
Framsóknarflokkurinn vill
lækka tekjuskatt um 3,35%, eða
úr 38,55 í 35,2%. Einnig vill hann
hækka ótekjutengdar barnabætur
í 73.000 krónur fyrir börn að sjö
ára aldri og 36.500 fyrir börn að
16 ára aldri. Halldór segir að
flokkurinn hafi látið reikna út
hvað þetta kosti og niðurstaðan sé
sú að kostnaðurinn sé um 16 millj-
arðar króna.
„Það er mikið forgangsmál að
okkar mati að koma tekjuskattin-
um aftur niður í þetta hlutfall,
sem er það sama og þegar stað-
greiðslukerfið var tekið upp,“
segir Halldór. „Með þessum að-
gerðum er hægt að
hækka ráðstöfun-
artekjur heimil-
anna og þá sérstak-
lega fjölskyldu-
fólks. Við leggjum
ríka áherslu á að
gera sem flestu
ungu fólki kleift að
eignast sitt eigið húsnæði. Við
viljum hækka lánshlutfall íbúða-
lána smátt og smátt upp í 90%.
Það er hægt án þess að það valdi
verulegri þenslu vegna þess að
við teljum að það séu miklir
möguleikar á að auka sölu á þess-
um skuldabréfum á erlendum
mörkuðum.“
Halldór segir að næsta skref sé
síðan að hækka persónuafsláttinn,
en ekki sé gert ráð fyrir því í þeim
16 milljarða króna hugmyndum
sem nú hafi verið lagðar fram.
Hann segir að Framsóknarflokk-
urinn leggi áherslu á heilbrigðis-
kerfið með heilsugæsluna sem
grunneiningu. Þá telji flokkurinn
einnig afar brýnt að bæta kjör ör-
yrkja og aldraðra.
Hvað aðild að Evrópusamband-
inu viðkemur segir Halldór að
Framsóknarflokkurinn útiloki
ekki aðild að því nú fremur en
áður.
„Við viljum halda áfram opinni
og upplýstri umræðu um kosti og
galla aðildar að Evrópusamband-
inu. Við erum þeirrar skoðunar að
þjóðin þurfi að taka endanlega af-
stöðu til þess innan fárra ára
hvaða stefnu hún vilji taka í því
sambandi.“
Í sjávarútvegsmálum segir
Halldór að Framsóknarflokkurinn
vilji áfram byggja á aflamarks-
kerfi og innheimta gjald af veiði-
heimildum. Jafnframt vilji flokk-
urinn halda áfram að þróa
byggðakvóta og koma þannig til
móts við minni byggðirnar í land-
inu sem séu háðastar sjávarútveg-
inum.
trausti@frettabladid.is
NÁNIR BRÆÐUR
Tvíburarnir Ahmed og Mohamed eru 22
mánaða gamlir. Þeir voru fluttir til frá Eg-
yptalandi til Texas í Bandaríkjunum til að
gangast undir aðgerð á virtum og háþró-
uðum barnaspítala.
Samvaxnir á höfði:
Aðgerð
hugsanlega
blásin af
DALLAS, AP Útlit er fyrir að fyrir-
hugaðri skurðaðgerð til þess að
skilja að egypska síamstvíbura
verði frestað eða hún blásin af ef
ekki tekst að safna sem svarar um
tíu milljónum íslenskra króna nú
þegar.
Heildarkostnaður við aðgerð-
ina er áætlaður um 155 milljónir
króna jafnvel þó læknar hafi af-
þakkað laun fyrir vinnu sína.
Hvorki barnaspítalinn í Dallas,
þar sem framkvæma á aðgerðina,
né samtökin sem veitt hafa for-
eldrum drengjanna fjárhagsað-
stoð hafa bolmagn til að standa
undir kostnaðinum.
Tvíburarnir eru samvaxnir á
höfði og því er afar flókið að skilja
þá að. Að sögn lækna er áríðandi
að aðgerðin fari fram bráðlega en
eftir því sem drengirnir eldist
verði erfiðara fyrir líkamsvefina
að jafna sig. ■
KÖNNUN Nær tveir af hverjum
landsmönnum eru andvígir því að
hátekjuskattur verði látinn falla
niður, samkvæmt niðurstöðum
skoðanakönnunar Fréttablaðsins.
63,5% þeirra sem taka afstöðu eru
andvíg því að hátekjuskattur
verði afnuminn, en 36,5% eru því
fylgjandi.
Karlmenn eru almennt hlynnt-
ari því að hátekjuskattur verði
látinn falla niður en konur. Tveir
af hverjum fimm karlmönnum
vilja afnema hátekjuskattinn en
þriðja hver kona. 60% karla og
67% kvenna vilja halda í hátekju-
skattinn.
Landsbyggðarfólk er frekar
andvígt niðurfellingu hátekju-
skatts. 68% í landsbyggðarkjör-
dæmunum vilja hafa hátekju-
skattinn áfram en 60% fólks á höf-
uðborgarsvæðinu. Mest er and-
staðan við niðurfellingu skattsins
í Norðausturkjördæmi þar sem
þrír af hverjum fjórum eru and-
vígir. Helst er að kjósendur í Suð-
urkjördæmi vilji sjá á bak skattin-
um, 42% vilja fella hann niður.
Þess ber þó að geta að skekkju-
mörk eru mikil í einstökum kjör-
dæmum.
600 manns voru spurðir: Ertu
fylgjandi eða andvíg(ur) því að
hátekjuskattur verði látinn falla
niður? 13,3% voru óákveðin eða
neituðu að svara. Svarhlutfall var
86,7%. ■
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Í BRUSSEL
Powell ræddi meðal annarra við Jack
Straw um enduruppbyggingu Íraks.
Styttist í leiðarvísi:
Bíða ekki
stríðsloka
BRUSSEL, AP Bandaríkin munu ekki
bíða eftir stríðslokum í Írak til að
kynna leiðarvísi sinn að friði milli
Ísraela og Palestínumanna. „Leið-
arvísirinn er tilbúinn til kynning-
ar,“ sagði Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, eftir
fundi sína með fulltrúum Nató og
ESB í Brussel í gær. „Líkt og for-
setinn hefur sagt erum við óðfús
að kynna leiðarvísinn fyrir nýjum
forsætisráðherra Palestínu.“
Leiðarvísirinn hefur verið
saminn með aðkomu fulltrúa Evr-
ópusambandsins, Sameinuðu
þjóðanna og Rússlands. Honum er
ætlað að koma friðarferlinu í Mið-
Austurlöndum af stað. ■
22 TALDIR AF Einn synti í land og
23 var bjargað af þegar bát
hvolfdi út af strönd Indlands. 22
er saknað og eru þeir taldir af.
Landhelgisgæsla Indlands og
flotinn leituðu þeirra sem saknað
var en lítil von var um að þeir
væru enn á lífi.
Vilja 16 milljarða
skattalækkanir
Framsóknarflokkurinn kynnti stefnuskrá sína í gær. Flokkurinn leggur
til 3,35% lækkun á tekjuskatti og hækkun barnabóta. Lánshlutfall íbúða-
lána hækkað í 90%. Aðild að Evrópusambandinu er ekki útilokuð.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON, FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Hvað aðild að Evrópusambandinu viðkemur segir Halldór að Framsóknarflokkurinn
útiloki ekki aðild að því nú fremur en áður.
■
„Við leggjum
ríka áherslu á
að gera sem
flestu ungu
fólki kleift að
eignast sitt eig-
ið húsnæði.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Dráttur á viðræðum um framtíð varnarliðsins:
Engar viðræður vegna stríðs í Írak
VARNARLIÐIÐ Á MIÐNESHEIÐI
Viðauki við varnarsamninginn rann út fyrir nokkrum árum en hefur ekki verið endurnýjaður.
63,5% eru andvíg afnámi hátekjuskatts:
Vilja halda í
hátekjuskattinn
EKKI ALLIR Á EINNI SKOÐUN
Forsætisráðherra sagði í fyrirspurnartíma á landsfundi Sjálfstæðisflokksins að hátekjuskatt-
urinn væri genginn sér til húðar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M