Fréttablaðið - 04.04.2003, Síða 12
12 4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
Á LEIÐ Á BÁLIÐ
Verkamenn á Bali bjuggu til eftirmyndir af
þeim mönnum sem eru í haldi lögreglu
vegna gruns um aðild að sprengjuárásun-
um á eynni síðastliðið haust. Til stóð að
brenna eftirmyndirnar í tilefni af Degi
þagnarinnar sem er einn af aðalhátíðis-
dögum hindúa á Bali.
HJÁLPARÞURFI
Matvæla- og landbúnaðarstofnunin vill að
allt kapp verði lagt á að aðstoða íraska
bændur við að bjarga vetraruppskerunni til
þess að koma í veg fyrir að ástandið versni
enn frekar í landinu.
Uppskeran í
bráðri hættu
RÓM, AP Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna hef-
ur farið fram á um 6,6 milljarða ís-
lenskra króna til þess að aðstoða
íraska bændur við að verja upp-
skeru sína. Líklegt er að um sé að
ræða umfangsmesta mannúðar-
starf sögunnar.
Markmið stofnunarinnar er að
bjarga kornuppskeru vetrarins,
auka matvælaframleiðslu í land-
inu, hefta útbreiðslu búfjársjúk-
dóma og tryggja aðgang að drykkj-
arvatni. Féð verður því notað til að
útvega útsæði, áburð, skordýraeit-
ur og vélar auk sérfræðiaðstoðar
og búnaðar til að setja upp og laga
vatnsveitur og áveitukerfi sem
eyðilagst hafa í stríðinu. ■
LÚÐVÍK BERGVINSSON
Ræður framtíð bæjarstjórans.
Vestmannaeyjar:
Vilja standa
vörð um
bæjarstjóra
STJÓRNMÁL Hópur Vestmannaey-
inga stendur nú fyrir undirskrifta-
söfnun til stuðnings bæjarstjóran-
um en eftir að nýr meirihluti Vest-
mannaeyjalista og Andrésar Sig-
mundssonar framsóknarmanns tók
við þykir vera óvissa um framtíð
bæjarstjórans. Það var meirihluti
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks sem réði bæjarstjórann til
starfa en Lúðvík Bergvinsson, leið-
togi Vestmannaeyjalistans, hefur
sagt að það skýrist á næstunni
hvort bæjarstjórinn starfi áfram.
„Við undirritaðir kjósendur í
Vestmannaeyjum lýsum yfir fullu
trausti og stuðningi við störf Inga
Sigurðssonar, bæjarstjóra í Vest-
mannaeyjum, og skorum á nýjan
meirihluta ... að staðfesta núver-
andi ráðningarsamning hans út
kjörtímabilið 2006..,“ segir meðal
annars í áskorun Eyjamanna. ■
LEIKLIST Baltasar Kormákur fær
óblíðar móttökur í Noregi þar
sem til stendur að kynna nýjustu
kvikmynd hans, Hafið, fyrir
Norðmönnum. Norska síðdegis-
blaðið Verdens Gang notar til-
efnið og sakar Baltasar um að
hafa hlaupið frá skuldum vegna
leiksýningarinnar Little Shop of
Horrors sem hann setti upp í
Chat Noir-leikhúsinu í Osló fyrir
tveimur árum. Sýningin gekk
ekki sem skyldi og telja leikarar
og tæknimenn sig eiga inni um
fimm milljónir íslenskra króna
hjá Baltasar Kormáki.
Baltasar svarar fyrir sig full-
um hálsi á síðum Verdens Gang
og er ekki í vafa um hvers vegna
þetta mál er dregið fram í dags-
ljósið einmitt nú:
„Leikararnir eru bara að
reyna að eyðileggja kynninguna
á nýjustu kvikmynd minni. Sann-
leikurinn er sá að félagið sem
stóð að sýningunni varð gjald-
þrota. Slíkt gerist og ekkert ólög-
legt við það í sjálfu sér. Við
reyndum að hjálpa leikurunum í
gegnum ábyrgðarsjóð launa en
ég veit ekki hvernig því máli
lyktaði. Sjálfur tapaði ég mest-
um peningum á þessari sýn-
ingu,“ segir Baltasar Kormákur í
Verdens Gang.
Einn leikaranna sem þátt tóku
í sýningu Baltasar í Chat Noir-
leikhúsinu, er ómyrkur í máli
þegar hann tjáir sig um heim-
sókn gamla leikstjórans síns til
Oslóar: „Ég ætla að vona að okk-
ur takist að bregða fyrir hann
fæti á sem flestum sviðum,“ seg-
ir norski leikarinn Dag Vagsås í
samtali við Verdens Gang. Hafið
hefur sem kunnugt er hlotið
metaðsókn hér á Íslandi og
sópaði til sín Edduverðlaunum
fyrr í vetur. ■
ATVINNUTÆKIFÆRI „Við fögnum því
að menn vilja koma með ný at-
vinnutækifæri. Við fögnum líka því
frumkvæði sem þetta lýsir. Þarna
er ný vídd í atvinnumálum,“ segir
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á
Húsavík, um þau áform Stefáns
Hrafns Magnússonar, hreindýra-
bónda í Isortoq á Suður-Grænlandi,
og félaga hans á Íslandi að flytja
kjöt af tvö til þrjú þúsund hreindýr-
um til Húsavíkur og vinna þar í
neytendapakkningar fyrir heims-
markað. Reinhard bæjarstjóri seg-
ist vera hæstánægður með það að
menn skuli hafa
áttað sig á því
góða rekstrarum-
hverfi sem er á
Húsavík þar sem
orka er næg og á
v i ð r á ð a n l e g u
verði. .
„Hér er sterk
hefð í matvæla-
vinnslu og mikil fagþekking. Þeir
fá ekki betra umhverfi til að starf-
rækja þennan rekstur. Þá búum við
að jarðhitaorku sem reyndar býður
upp á möguleika á orkufrekum iðn-
aði,“ segir Reinhard.
Sjálfur hefur hann sýnt mikið
frumkvæði í leit að nýjum atvinnu-
tækifærum. Reinhard sótti á sínum
tíma um að fá að flytja inn í til-
raunaskyni tíu til fimmtán krókó-
díla sem ætlunin var að koma fyrir
í ylvolgri tjörn á Húsavík. Land-
búnaðarráðherra hafnaði því erindi
Húsvíkinga. Að sögn Reinhards var
ætlunin að fóðra þá á lífrænum úr-
gangi frá fisk- og kjötvinnslum á
staðnum. Hann segir ekki hafa leg-
ið fyrir hvað gera skyldi við krókó-
dílana í upphafi en fyrirmyndin
hafi verið frá búgarði í Colorado í
Bandaríkjunum þar sem krókódíla-
kappreiðar eru meðal annar stund-
aðar.
„Krókódílamálið er ekki dautt.
Koma tímar, koma ráð. Þar sem
krókódílaeldið er í Colorado er
meira frost en hjá okkur en skepn-
urnar lifa þar ágætu lífi,“ segir
Reinhard, sem enn leitar leiða til að
koma inn krókódílum. Hann leggur
áherslu á að dýrin yrðu girt af með
vírgirðingum.
Samkvæmt hugmyndum Stef-
áns Hrafns verða hreindýrin aðeins
upphaf þess að á Húsvík yrði full-
vinnsla á villtum dýrum frá ýmsum
heimshlutum. Þannig yrði Húsavík
á heimsvísu miðstöð vinnslu á villi-
bráð. Reinhard segir hugmyndir
um hreindýr, krókódíla, vísunda,
antilópur og hirti ekki vera neitt
einsdæmi.
„Við Húsvíkingar erum ófeimn-
ir við framandi dýrategundir og
nýjar hugmyndir. Hér er mikið
frumkvæði og hugmyndauðgi.
Menn eru þessa dagana að skoða
möguleika til tilrauneldis á beitar-
fiski eða tilaphia. Við erum sívak-
andi enda þýðir ekkert annað,“
segir Reinhard.
rt@frettabladid.is
Húsavík miðstöð
vinnslu á villibráð
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri Húsvíkinga, fagnar hugmyndum
hreindýrabónda um að bærinn verði heimsmiðstöð vinnslu á villibráð.
STEFÁN HRAFN MAGNÚSSON
Vill gera Húsavík að miðstöð vinnslu á villibráð.
REINHARD REYNISSON
Ófeiminn við hinar ýmsu dýrategundir.
„Krókódíla-
málið er ekki
dautt. Koma
tímar, koma
ráð.
■ Innrás í Írak/
Hjálparstarf
Kvikmyndin Hafið kynnt í Noregi í skugga skuldamála:
Baltasar bölvað í Verdens Gang
BALTASAR KORMÁKUR
Gamlar skuldir skjóta upp kollinum þegar
hann heimsækir Noreg með nýjustu kvik-
mynd sína í farteskinu.