Fréttablaðið - 04.04.2003, Page 17
18 4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
SCHUMACHER Í FÓTBOLTA
Heimsmeistarinn í Formúlu 1 kappakstrin-
um, Michael Schumacher (í miðjunni),
brosti breitt þegar hann stillti sér upp með
meðlimum brasilíska fótboltaliðsins
Santos fyrir vináttuleik liðsins við Vila
Belmiro í Brasilíu á dögunum. Ágóðinn af
leiknum rann til góðgerðarmála.
Schumacher er staddur í Brasilíu til að
keppa í þriðja Formúlu 1 kappakstrinum í
ár, sem hefst á sunnudag.
Fótbolti
GOLF Ernie Els, sem er í öðru sæti
heimslistans í golfi, er sannfærð-
ur um að hann geti tekið þátt í
bandaríska Masters-mótinu sem
haldið verður í næstu viku á
Augusta National vellinum.
Els hefur átt við meiðsli í úln-
liði að stríða og hefur ekkert getað
leikið undanfarnar þrjár vikur.
„Það hefur verið pirrandi að geta
ekki æft eins og ég vil en ég ætti
að verða orðinn góður í lok þessar-
ar viku. Þá fer ég að undirbúa mig
af krafti fyrir Augusta,“ sagði Els.
Els hefur staðið sig frábærlega
það sem af er árinu og hefur unn-
ið fjögur mót af þeim sjö sem hann
hefur tekið þátt í. ■
FÓTBOLTI Sheringham hóf feril sinn
hjá Millwall árið 1985. Þar skoraði
hann 93 mörk í 220 leikjum og
vakti að vonum mikla athygli fyr-
ir frammistöðu sína.
Hann var keyptur til Notting-
ham Forest árið 1991 og eftir góða
fyrstu leiktíð þar var hann keypt-
ur til Lundúnaliðsins Tottenham
Hotspur. Eftir fimm ár í herbúð-
um Spurs og fjölda marka gekk
hann til liðs við Manchester
United. Þar var honum ætlað að
fylla skarð Frakkans Eric Cantona
sem framliggjandi miðjumaður.
Sheringham var hart gagn-
rýndur fyrir frammistöðu sína
með United á sinni fyrstu leiktíð,
1997-98, og á þeirri næstu átti
hann einnig erfitt uppdráttar
framan af vetri. Meiðsli og góð
frammistaða þeirra Yorke og Cole
urðu til þess að hann spilaði lítið
og vermdi jafnan varamanna-
Körfubolti kvenna:
Tíundi titill
Keflavíkur
KÖRFUBOLTI Kvennalið Keflavíkur
sigraði á Íslandsmótinu 2003.
Þetta var tíundi titill félagsins en
Keflavík varð fyrst meistari árið
1988.
Keflavík sigraði í deildakeppn-
inni með 12 stiga mun og vann alla
leiki sína í úrslitakeppninni. Í
undanúrslitum vann Keflavík
báða leikina gegn Njarðvík og alla
þrjá gegn KR í úrslitum.
Anna María Sveinsdóttir, leik-
maður og þjálfari liðsins, hefur
leikið með Keflavík öll meistara-
árin og fyrirliðinn Kristín Blöndal
varð Íslandsmeistari í áttunda
sinn. ■
FÓTBOLTI Berti Vogts, þjálfari
Skota, segir að lið sitt hafi nánast
kastað frá sér möguleikanum á að
vinna fimmta riðil í undankeppni
EM þegar það tapaði gegn Lithá-
um 1:0 í fyrrakvöld.
Liðin eru efst og jöfn ásamt
Þjóðverjum í fyrsta til þriðja sæti
riðilsins með sjö stig. Íslendingar
eru í fjórða sæti með þrjú stig.
„Við stefnum núna á annað
sætið og verðum að leggja afar
hart að okkur til að ná því,“ sagði
Vogts eftir leikinn í gær. Ég held
að jafntefli hefði verið eðlileg úr-
slit en lið Litháens var mjög hepp-
ið.“ Sigurmark Litháa var skorað
úr umdeildri vítaspyrnu á 73.
mínútu leiksins.
Lee Wilkie, varnarmaður Skota
og leikmaður Dundee, sagði úrslit-
in vera mikil vonbrigði. „Litháar
eru núna aðalkeppinautar okkar
um sæti í umspili og við verðum
einfaldlega að vinna þá næst.“ ■
AP
/M
YN
D
ELS
Ernie Els hefur staðið sig vel á þessu ári.
Ernie Els:
Tilbúinn fyrir Augusta
BARÁTTA
Skotinn Don Hutchison (til vinstri) í baráttu við Litháann Saulius Mikalajunas í leik liðanna
í fyrrakvöld. Liðin eru bæði með sjö stig í 5. riðli.
STAÐAN Í 5. RIÐLI
Lið L S
Þýskaland 3 7
Litháen 5 7
Skotland 4 7
Ísland 3 3
Færeyjar 3 1
Berti Vogts, þjálfari Skota:
Efsta sætið fjarlægt
SHERINGHAM
Teddy Sheringham í búningi Manchester United. Fyrrum félag Sheringham, Millwall, hefur
þegar óskað eftir því að hann verði ráðinn spilandi knattspyrnustjóri hjá félaginu.
Sheringham get-
ur vel við unað
Framtíð Teddy Sheringham hjá Tottenham
ræðst af því hvort félagið komist í Evrópu-
keppnina að ári. Sheringham, sem hélt upp á
37 ára afmæli sitt í fyrradag, á að baki afar
farsælan knattspyrnuferil.
VIÐ ERUM FLUTT
Laugavegi 12b