Fréttablaðið - 04.04.2003, Síða 22
13FÖSTUDAGUR 4. apríl 2003
Sakaður um
landráð
LONDON, AP Breski þingmaðurinn
George Galloway hefur valdið
miklu fjaðrafoki í Bretlandi
vegna harkalegrar gagnrýni sinn-
ar á innrásina í Írak. Svo langt
hefur þetta gengið að hann hefur
verið sakaður um landráð.
Galloway hefur kallað ríkis-
stjórnina samansafn asna og sagt
breska hermenn þurfa að berjast
fyrir lygar, fölsun og blekkingu
bresku ríkisstjórnarinnar. Það
sem gerði allt vitlaust voru þau
orð hans að Arabar ættu að taka
sér stöðu við hlið Íraka. Hann
hvatti breska hermenn til að neita
að berjast. ■
WASHINGTON, AP Embættismenn
bandarísku alríkislögreglunnar ótt-
ast að liðsmenn al Kaída ætli að
bregðast við breyttum aðstæðum
með því að fá konur til liðs við sig
til þess að framkvæma óvæntar
hryðjuverkaárásir. Herför Banda-
ríkjanna gegn hryðjuverkum hefur
veikt starfsemi samtakanna veru-
lega og líklegt að verið sé að leita
nýrra leiða til þess að komast í
gegnum öryggisnet Vesturlanda.
Alríkislögreglan sendi nýverið
út alþjóðlega viðvörun vegna konu,
þá fyrstu síðan stríðið gegn hryðju-
verkum hófst. Konan, sem er
pakistanskur taugalæknir, er eftir-
lýst vegna meintra tengsla hennar
við al Kaída. Jafnframt er verið að
rannsaka fullyrðingar óþekktrar
konu á arabískum netmiðli sem
segist hafa verið ráðin af Osama
bin Laden til þess að koma á fót
þjálfunarbúðum fyrir hryðjuverka-
konur. ■
NÝ ÓGN
Palestínskar konur stóðu fyrir fjórum sjálfs-
morðsárásum í Ísrael á síðasta ári og
reyndist þeim hægur vandi að komast í
gegnum öryggisnet ísraelskra yfirvalda.
Starfsaðferðir hryðjuverkasamtaka:
Konur til að fram-
kvæma skyndiárásir
SAFNA HANDA ÍRÖSKUM BÖR-
NUM Jörg Haider, einn helsti
leiðtogi austurríska Frelsis-
flokksins, hefur hafið fjársöfnun
til styrktar íröskum börnum.
Hann hefur sjálfur heitið því að
gefa ritlaun sín fyrir bók sem
hann skrifaði um fundi sína með
Saddam Hussein.
SÞ Í ENDURUPPBYGGINGUNA
Costas Simitis, forsætisráðherra
Grikklands sem er í forsæti fyrir
Evrópusambandið, hvatti í gær
til þess að Sameinuðu þjóðirnar
gegndu leiðandi hlutverki við
enduruppbyggingu Íraks. Hann
sagði það líklegt til að valda ólgu
ef Bandaríkjamenn og Bretar
stýrðu enduruppbyggingunni.
■ Innrás í Írak/
Örfréttir
■ Innrás í Írak/
Bretland
ÞUNGAR BYRÐAR HERMANNS
Með hríðskotariffil sinn á bakinu skundar
bandarískur hermaður á braut með matar-
birgðir sem herdeild hans fékk.
VIRÐA LÍKIÐ FYRIR SÉR
Bandarískir landgönguliðar fylgja birgða-
lestum um Írak. Nokkrir þeirra sjást hér
virða fyrir sér lík írasks hermanns. SÓTT AÐ SKOTMARKINU
Bandarískir hermenn sækja fram í orrustu um bæ í suðurhluta Íraks.