Fréttablaðið - 04.04.2003, Síða 26
27FÖSTUDAGUR 4. apríl 2003
Árni Steinar Jóhannsson,
alþingismaður:
Best þegar
klökknar á
steinum
„Mér finnst mest spennandi við
vorkomuna þegar fer að klökkna
á steinum um hádaginn,“ segir
Árni Steinar Jóhannsson, alþing-
ismaður og landslagsarkitekt.
„Ég er alinn upp í miklu snjóa-
héraði, þannig að þegar vorið var
að brjótast fram var skemmtileg-
ast að fylgjast með þegar dökkir
dílar mynduðust á steinunum og
hvernig þeir stækkuðu með
hverjum deginum. Þegar sólin
fer að dæla inn orku getur
klökknað á steinum þótt enn sé
frost.“
Árni segist fyllast orku og
krafti þegar vorar. „Ég eflist all-
ur,“ segir hann. „Og finnst gam-
an að fylgjast með grænkunni og
gróandanum, enda garðyrkju-
maður og landslagsarkitekt.“„ ■
ÁRNI STEINAR JÓHANNSSON
Eflist allur á vorin.
Vorið er tími gleðinnar og bjart-
sýninnar,“ segir Hjálmar Árna-
son. „Þetta er minn aðaltími, þeg-
ar allt er að lifna við, farfuglarn-
ir að koma og gróðurinn að taka
við sér.“
Hjálmar segist finna mun á
sér bæði andlega og líkamlega
þegar vorar.
„Strax 22.-23. desember finn
ég mikla gleði í hjarta vitandi
það að þá tekur daginn að lengja.
Þessi gleði nær svo hámarki þeg-
ar kemur fram á þennan tíma.“
Hjálmar sinnir hefðbundnum
vorverkum, en segir hina endan-
legu sumarkomu staðfesta þegar
góður vinahópur fer saman í
fyrsta veiðitúr sumarsins. „Við
förum í Flóku í Borgarfirði í lok
júní, en erum þá búnir að vera
fullir af tilhlökkun og eftirvænt-
ingu í langan tíma yfir öllum að-
dragandanum.“ ■
HJÁLMAR ÁRNASON
Segir vorið tíma gleði og bjartsýni.
Hjálmar Árnason,
alþingismaður:
Besti tími
ársins
svo bara átekta enda er nægur hiti
í jarðveginum og smá frost gerir
ekkert til.“
Þá segir Lára það ekki vitlaust
að huga að því að hreinsa beðin en
mælir með því að fólk láti sér
nægja að tína rusl í bili. „Það er
auðvitað freistandi, á góðviðris-
dögum, að fara að hreinsa til en
það er þó fullsnemmt þar sem við
vitum að það getur oft fryst í apr-
íl og því bíðum við oftast fram
yfir miðjan maí þar sem laufin
skýla auðvitað nývextinum.“
Þá fer að líða að því að huga
megi að áburði. „Það er allt í lagi
að fara að bera kalk eða jafnvel
þörunga í garðinn. Þetta er sein-
virkt og kemur að góðum notum
þegar það hlýnar. Það má fara að
hreinsa mosa úr grasflötinni í maí
en það er of snemmt að byrja að
nota tilbúinn áburð. Það er ekki
fyrr en í byrjun maí sem slíkt
kemur til greina.“
Sígrænar plöntur fyrir þá
sem geta ekki beðið
Lára segir að fiðringur sé kom-
inn í fólk og það sé þegar byrjað
að kaupa mikið af sígrænum
skrautplöntum sem hægt er að
setja í potta út á verönd og svalir.
„Það er allt í lagi fyrir þá sem
hafa mikinn áhuga á þessu að
byrja svona núna. Páskaliljur í
pottum eru líka orðnar vinsælar
og fyrir þá sem eru til dæmis að
fara að halda fermingarveislur
getur verið gaman að nota þær
eða lauka til skrauts. Fólk er líka
búið að vera að rækta með fræj-
um síðasta einn og hálfa mánuð-
inn. Þetta eru plöntur sem þarf að
forrækta í garðskálum, frostfrí-
um gróðurhúsum eða úti í stofu-
glugga. Það er gott að byrja á
stjúpunum og taka aðrar duglegar
tegundir eins og morgunfrú og
kornblóm. Þetta má svo flytja út í
byrjun maí, jafnvel ásamt fljót-
sprottnum sumarblómum á borð
við sumarlín og þorskagin. Þá er
rétti tíminn til að byrja forræktun
á vorlaukum núna. Það er góður
tími fram undan. Þeir þurfa for-
ræktun inni en það má planta
þeim út í byrjun júní.“ ■
LÁRA JÓNSDÓTTIR
Garðyrkjufræðingurinn mælir með því að
fólk fari að öllu með gát í garðinum þó
gróðurinn sé kominn á fullan skrið. Kulda-
kast gæti enn haft slæm áhrif þó áhrifin
verði ekki endilega varanleg. „Við verðum
bara að vona að veðrið verði á köldu nót-
unum næstu tvær vikurnar og gróðurinn
flýti sér hægt úr því sem komið er.“
YOGASTÖÐIN
HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 588 5711 og 694 6103
Námskeið í HATHA yoga
Morguntímar, hádegistímar,
síðdegistímar og kvöldtímar
Tímar fyrir byrjendur og lengra komna
Sértímar fyrir barnshafandi konur