Fréttablaðið - 04.04.2003, Qupperneq 27
Ég sat eftir á meðan hinir for-eldarnir fóru í skoðunarar-
ferð um skólann,“ segir Aðal-
björg Guðgeirsdóttir um að-
gengi fyrir fatlaða í skóla dóttur
hennar.
Aðalbjörg lenti í bílslysi við
Kúagerði í desember 1986, þeg-
ar hún var tvítug. Hún kastaðist
úr aftursæti bílsins með þeim
afleiðingum að sjö rifbein og
tveir hryggjarliðir brotnuðu,
mænan skaddaðist og annað
lungað féll saman. Hún var á
spítala í þrjá mánuði eftir slysið
og eftir það tók við níu mánaða
endurhæfing.
Aðalbjörg býr ásamt sex ára
dóttur sinni í Staðahverfi í Graf-
arvogi. Í haust hóf dóttir hennar
skólagöngu í Korpuskóla. „Ég fór
í skólann í fyrsta skipti síðastliðið
vor með dóttur minni á kynningu
fyrir þá sem voru að byrja í fyrsta
bekk. Börnin voru látin fara niður
í eldhús sem er í kjallaranum þar
sem fyrsti bekkur átti að hafa að-
stöðu. Það var engan veginn fært
fyrir mig niður þrönga stigana.
Foreldrunum var sýndur skólinn.
Ég sat ein eftir því engan veginn
er gert ráð fyrir að fólk í hjólastól
komist um skólann. Ég var föst
þar sem við komum með börnin í
upphafi kynningarinnar á meðan
hinir foreldrarnir gengu um skól-
ann, en þar eru margir ranghalar.
Þegar þau komu aftur var farið í
hlöðuna. Til þess að komast þang-
að þurfti ég að fara út aftur og
upp stóran ramp. Ég kemst í hlöð-
una og í skólastofu dóttur minnar
eftir að hún var flutt á jarðhæð,
sem ég held að það hafi verið gert
vegna mín,“ segir Aðalbjörg.
Hurðir ótrúlega þungar
Aðalbjörg segir að hurðir að
skólastofunum séu ótrúlega
þungar og eitt barn sé þegar búið
að klemma sig illa. „Fyrir
skömmu þurfti dóttir mín að vera
inni í frímínútum þar sem hún
var kvefuð. Kennarinn fór í mat
og varð hún eftir í stofunni ásamt
skólasystur sinni. Hún þurfti að
fara á salernið en komst ekki því
hún gat ekki opnað dyrnar, hurð-
in var of þung. Ég hringdi reið
upp í skóla og spurði hvort það
væri nauðsynlegt að hafa hurð-
irnar svona þungar. Sú sem varð
fyrir svörum hélt að hægt væri
að létta pumpurnar svo þær yrðu
viðráðanlegri. Ég hringdi aftur
og þá var mér sagt að þetta væru
eldvarnarráðstafanir. Ef eldur
kemur upp og börn ná ekki að
opna dyrnar er það stórhættu-
legt. Ég held að ekkert sé búið að
gera í þessu enn, án þess að ég
vilji fullyrða það. Sum börn eru
sterk og komast út en mín er lítil
og létt og það þarf að taka tillit til
þeirra barna líka. Stigarnir í
skólanum eru brattir og vara-
samir fyrir börn og ég er hissa á
að ekki hafa orðið slys,“ segir Að-
albjörg.
„Ég athugaði að gamni mínu í
reglugerðir um nautgripi þar
sem þetta er jú gamalt kúabú. Ég
held að Korpuskóli standist ekki
þær kröfur sem gerðar eru þegar
nautgripir eru hafðir í húsi,“ seg-
ir Aðalbjörg.
Engin svör frá yfirvöldum
Aðalbjörg segist hafa viljað fá
svör frá borgaryfirvöldum um
úrbætur en engin fengið. „Það
var haldinn borgarafundur hér í
hverfinu þar sem fram kom að
útilokað væri að byggja skóla
hérna í bráð. Það ætti að nota
þetta bráðabirgðahús áfram. Það
eru svo margir skólar í Reykja-
vík sem þurfa viðgerðir og við-
hald. Fólk var reitt yfir því að
peningarnir ættu fyrst að fara í
það. Ein kona á fundinum sagði
að hin hverfin hefðu það fram
yfir okkur að þar væru nothæfir
skólar til staðar.
Lítið er hægt að gera í Korpu-
skóla til að laga algengi. Þetta er
friðað hús og má gera mjög tak-
markaðar breytingar. „Búið er að
eyða alveg ótrúlega miklum fjár-
munum í húsið í staðinn fyrir að
28 4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
DÓTTIR AÐALBJARGAR GUÐGEIRSDÓTTUR ER Í FYRSTA BEKK KORPUSKÓLA
Aðalbjörg kemst ekki ferða sinna um skóla dóttur sinnar eins og aðrir foreldrar.
Móðir í hjólastól segir að aðgengi fatlaðra í Korpuskóla sé til skammar.
Sat eftir meðan aðrir foreldrar skoðuðu sig um. Hurðirnar svo þungar
að léttustu börnin komast ekki um skólann.
Kemst ekki um
skóla dótturinnar
Ég sat ein eftir
því engan veginn er gert
ráð fyrir að fólk í hjólastól
komist um skólann.
,,Mörkinni 6, sími 588 5518.Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga.
STUTTKÁPUR
SUMARÚLPUR
HEILSÁRSÚLPUR
REGNÚLPUR
HATTAR OG HÚFUR
Opið laugardaga
frá kl 10 - 15