Fréttablaðið - 04.04.2003, Síða 30
31FÖSTUDAGUR 4. apríl 2003
Kristán Pálsson, sem er fæddur1. desember ári 1944, er
kvæntur Sóleyju Höllu Þórhalls-
dóttur kennara og eiga þau tvær
dætur. Kristján átti fyrir tvær
dætur.
Kristján var sjómaður á fiski-
skipum og farskipum frá 1960 til
1976. Árið 1977 varð hann sveitar-
stjóri á Suðureyri og gegndi hann
því starfi til 1980. Kristján var
framkvæmdastjóri Útvers hf. í
Ólafsvík frá 1980 til 1986 og sat í
bæjarstjórn Ólafsvíkur frá 1982
til 1990, þar af var hann bæjar-
stjóri frá 1986.
Kristján hefur búið í Njarðvík
frá árinu 1990 og gegndi hann
stöðu bæjarstjóra til ársins 1994.
Á þeim tíma átti hann einnig sæti
í stjórn Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum og var hann for-
maður félagsins um skeið. Hann
hefur setið á Alþingi síðan árið
1995. ■
FRAMBOÐSLISTI T-LISTANS
1. Kristján Pálsson alþingismaður
2. Snæbjörn Sigurðsson bóndi
3. Valþór S. Jónsson yfirverkstjóri
4. Garðar Garðarsson skipstjóri
5. Jón Karl Ágústsson sjómaður
6. Inga Ósk Hafsteinsdóttir
7. Sigrún Jónsdóttir Franklín kennari
8. Ásgeir Guðmundsdóttir sölustjóri
9. Haukur Ragnarsson tölvunarfræðingur
10. Geir Guðjónsson vélstjóri
11. Kristlaug M. Sigurðardóttir rithöfundur
12. K. Sóley Kristinsdóttir húsmóðir
13. Páll Kristinsson vélfræðingur
14. Guðrún Hákonardóttir verslunarm.
15. Jenný L. Lárusdóttir skrifstofumaður
16. Karl Antonsson bókari
17. G. Sigríður Hauksdóttir nemi
18. Árni Brynjólfur Hjaltason húsasmiður
19. Ragnheiður G. Ragnarsdóttir kennari
20. Einar Jónsson sjómaður
Sigurlaug Bjarnadóttir var al-þingismaður fyrir Sjálfstæðis-
flokksins í Vestfjarðakjördæmi
1974-1978. Fyrir alþingiskosning-
arnar 1979 bauð Sigurlaug fram
sérstaklega í kjördæminu og
komst ekki inn á þing. Hún segir
það ekki hafa verið erfiða ákvörð-
un að fara í sérframboð. „Mér og
fleirum fannst ekki réttlátt hvern-
ig að því var staðið þá að velja á
lista en fyrir voru reyndir þing-
menn eins og Matthías Bjarnason
og Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son. Ég ákvað því að fara fram ein
og fékk gott fólk á lista með mér,“
segir Sigurlaug.
Hún segist hafa ferðast mikið
um Vestfirði og heimsótt fólk fyr-
ir þessar kosningar. „Ég ferðaðist
ein á bíl og þá voru vegirnir ekki
eins góðir og nú. Mér fannst það
einstök reynsla að heimsækja allt
það góða fólk sem ég kynntist í
þessu framboði. En auðvitað var
þetta erfitt og mikil vinna sem
fólst í þessu,“ segir hún.
Sigurlaug segist alls ekki hafa
séð eftir því að fara í þetta fram-
boð. „Ég sé ekki að ég hafi gert
nein sérstök mistök og get alls ekki
kennt neinu slíku um. Það munaði
ekki miklu og það má ekki gleyma
að ég var að berjast við gamal-
reynda jaxla sem voru vinsælir á
Vestfjörðum.“
Sigurlaug segist aðeins geta ráð-
lagt þeim sem fari í sérframboð að
vera heiðarlegir og leggja sjálfa
sig að veði. „Það er erfitt að taka
sig út úr sínum flokki og fara fram
einn. Því er mikilvægt að hafa gott
fólk með sér, vera duglegur við að
hitta fólk, tala fyrir góðum málum
og standa við það sem sagt er.“
Eftir þessa reynslu skrifaði Sig-
urlaug bók um framboðið sem heit-
ir Með storminn í fangið og kom út
1986. ■
SIGURLAUG BJARNADÓTTIR
Hún komst ekki inn á þing þegar hún bauð fram ein í Vestfjarðakjördæmi árið 1979.
Sigurlaug Bjarnadóttir frá Vigur:
Barðist við gamalreynda jaxla
Eggert Haukdal, fyrrverandialþingismaður, fór í sérfram-
boð í Suðurlandskjördæmi árið
1979 og komst inn á Alþingi. Árið
áður hafði Sigurlaug Bjarnadótt-
ir frá Vigur boðið fram lista í
Vestfjarðakjördæmi og ekki haft
erindi sem erfiði. Hún bauð sig
ekki fram til þings eftir það.
Eggert segir að á sínum tíma
hafi það reynst sér létt að bjóða
fram lista. Með sér hafi verið
margt ágætis fólk og það hafi
ekki verið síst fyrir þær sakir að
framboðið gekk vel. „Ég held að
ég hafi verið frá upphafi bjart-
sýnn á að framboðið myndi
takast. Það skiptir ekki síst máli
að vera með gott fólk með sér og
ég man að okkur var afskaplega
vel tekið hvar sem við komum.
Tilfinning mín varð fljótt sú að
framboðið myndi takast,“ segir
hann.
Eggert telur sérframboð
aldrei vera af hinu góða. Betra
væri ef flokkarnir lærðu af
reynslunni. „Það er ljóst að það
fer enginn í sérframboð nema
vegna þess að þeir meta það svo
að að þeim sé vegið og þeir ekki
notið réttlætis innan flokksins.
Mér sýnist á fréttum að málum
hafi þannig verið háttað hjá
Kristjáni Pálssyni án þess að ég
hafi sett mig sérstaklega inn í
það mál,“ segir Eggert.
Í byrjun þings var Eggert ut-
anflokka en 1980 tókust sættir á
milli Eggerts og Sjálfstæðis-
flokksins og gekk hann að nýju
til liðs við þingflokkinn. ■
EGGERT HAUKDAL
Hann fór í sérframboð í Suðurlandskjör-
dæmi árið 1979 og hafði erindi sem erfiði.
Eggert Haukdal:
Reyndist létt að
bjóða fram lista
Maður með
víðtæka reynslu
KRISTJÁN PÁLSSON
Árið 1977 varð Kristján Pálsson sveitarstjóri
á Suðureyri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Prófkvíðanámskeið
Námskeið um orsakir og viðbrögð við prófkvíða. Áhrifaríkt
námskeið sem miðar að því að nemendur dragi markvisst úr
prófkvíða og áhrifum sem hann getur haft á námsárangur.
Hentar nemendur á öllum skólastigum.
Kennari Anna Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
Námskeiðin verða í boði daglega 8. – 11. apríl frá kl. 16.00 –
19.00. Verð: 5000 kr.
Kennsla fer fram í Dverg, Brekkugötu 2.
Innritun og upplýsingar í síma 5855860 og
á skrifstofu Námsflokkanna, í Dverg, Brekkugötu 2.
Námsflokkar Hafnarfjarðar
Miðstöð símenntunar
og Símenntunarstofnun
Kennaraháskóla Íslands