Fréttablaðið - 04.04.2003, Side 36
FÖSTUDAGUR 4. apríl 2003 37
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 8 og 10THE HUNTED kl. 10.10
THUNDERPANTS kl. 4 SKÓGARLÍF 2 m/ísl. tali kl. 4
CRUSH kl. 3.45, 5.50 og 8
ABOUT SCHMIDT kl. 5.30
FINAL DESTINATION kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 11.15 b.i. 12 ára Sýnd kl. 5.50, 8, 10.10 og 12.10
FRIDA b.i. 12 kl. 5.30
SOLARIS b.i. 12 kl. 8
THE HOURS b.i. 12 5.40, 8 og 10.20
GANGS OF NEW YORK b.i. 16 kl. 10.20
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 b.i. 14 ára Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 b.i. 12 ára
■ TÓNLIST
Liðsmenn bresku rokksveitarinn-ar Radiohead eru mjög pirraðir
yfir því að útgáfa væntanlegrar
plötu þeirra „Hail to the Thief“ hafi
lekið á Netið. Samkvæmt gítarleik-
aranum Jonny Greenwood er sá
pirringur þó ekki út af því að sveit-
in sé mótfallinn frjálsri netdreif-
ingu á lögum, heldur vegna þess að
sú útgáfa plötunnar sem er í um-
ferð á Netinu er ekki sú endanlega.
Greenwood segir „stolnar óklárað-
ar útgáfur“ vera þar á ferð.
Öll lög nýju plötunnar urðu
skyndilega fáanleg í gegnum
skiptiforritin í síðustu viku. Þau
hafa verið með vinsælli efnum sem
netverjar eru að skiptast á þessa
daganna, bæði hér á landi sem er-
lendis.
„Það kom í ljós að útgáfurnar
sem eru í skiptum á Netinu eru
stolnar, ókláraðar, óhljóðblandaðar
útgáfur af lögunum,“ sagði Jonny í
viðtali við NME eftir að hafa náð í
lögin á Netinu. „Á Netinu skiptast
menn á heilum plötum, útgáfum af
plötum sem eru tilbúnar en ekki út-
gefnar svo skiptast menn á svona
hlutum. Ókláruðum grófum verk-
um, sem komast í umferð tíu vikum
fyrir útgáfu. Platan er ekki enn til-
búin. Þess vegna erum við pirraðir.
Lögin eru góð og upptökurnar, eins
og fólk getur heyrt, en við erum
búnir að vinna meira í þeim og
erum nú mun ánægðari. Það er
synd að fólk sé að heyra lögin
svona, eins og þau hljómuðu áður
en þau voru fullkláruð.“
Þá vitum við það. ■
Ókláruð útgáfa lak á Netið
RADIOHEAD
Eins og sést á þessari mynd er liðsmönn-
um ekki skemmt, enda fúlir vegna útgáf-
unnar af nýju plötunni sem lak á Netið.
Sex skandinavískum sveitum hef-ur verið bætt á dagskrá Hró-
arskelduhátíðarinnar í ár. Þar er
fremst á meðal jafningja sænska
sveitin The Cardigans, sem nýlega
gaf út sína fimmtu breiðskífu, „Long
Gone Before Daylight“.
Hinar sveitirnar eru The Sounds,
Kaizers Orchestra, The Hella-
copters, Kitty Wu og Mew.
Á hverju ári koma fram um 170
hljómsveitir og setja hátíðarhaldar-
ar sig alltaf í samband við fimm
sinnum fleiri sveitir en það. Þeir 700
miðar sem Stúdentaferðir voru að
selja á hátíðina í ár eru uppseldir.
Síðustu ár hafa þó margir Íslending-
ar keypt miðana sína erlendis þegar
þeir mæta á hátíðina. Það er því ekki
ólíklegt að tala Íslendinga á hátíðinni
í ár verði töluvert hærri en það og er
það mikil fjölgun frá síðustu árum. ■
■ HRÓARSKELDA
Cardigans bætt
á dagskrána
THE CARDIGANS
Nina Persson og félagar í The Cardigans ætla að skemmta gestum
Hróarskelduhátíðarinnar í ár.
afsláttur af öllum buxum og pilsum
Vortilboð 3.-9. október
20-50%