Fréttablaðið - 04.04.2003, Síða 45
Hrósið 46 4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
MÓTMÆLI Hans Kristján Árnason er
að gera heimildarmynd og skrifa
handrit. „Ég vil ekki tala um það.
Það er ólukkumerki að ræða um
það sem maður er að skrifa.“ Hann
vill ekki láta kalla sig rithöfund.
„Ég titla mig aldrei rithöfund,“ seg-
ir Hans Kristján. Hann skrifaði nú
samt og gaf út bókina Að elska er
að lifa, ásamt Gunnari Dal. Bókin
var metsölubók.
Hans Kristján er hagfræðingur
að mennt, en vill ekki heldur kalla
sig hagfræðing. „Ég hef ekki litið í
hagfræðibækur í mörg ár. Ég held
meira að segja að ég sé búinn að
henda þeim öllum.“
Athafnaskáld mætti kannski
kalla hann. „Ég er nú samt misjafn-
lega aktívur. Ef ég verð verulega
hrifinn af einhverju, þá fer ég í
gang. Þess á milli er ég að lesa og
grúska.“
Þekktasta afsprengi athafna-
ástríðunnar er Stöð 2. Hans Krist-
ján átti hugmynd að henni og
byggði hana upp fyrstu árin ásamt
Jóni Óttari Ragnarssyni. „Það fór
nú eins og það fór,“ segir hann.
„Það má kannski segja að við höf-
um verið svolítið á undan tíman-
um. Þá var enginn hlutabréfa-
markaður og erfitt að fjármagna
fyrirtækið, en það gleður mig að
hún skuli starfa enn.“
Hans Kristján segist alla tíð
hafa haft mikinn áhuga á fjölmiðl-
um og þjóðfélagsmálum. „Ég er al-
inn upp á heimili þar sem alltaf
voru útlendingar inni á gafli. Ég lít
því á mig sem landamæramann
milli Íslands og umheimsins. Ég
hef alltaf haft mikinn áhuga á ut-
anríkismálum og að skoða Ísland
með augum útlendinga.“ Hann ber
sorgarband þessa dagana vegna
afstöðu íslenskra stjórnvalda til
Íraksstríðsins. „Þegar ég sé svona
fáránlegan afleik eða fávisku er
ekki hægt annað en að rísa upp.“ ■
Persónan
HANS KRISTJÁN ÁRNASON
■ ber sorgarband vegna afstöðu stjórn-
valda til stríðsins í Írak. Hann hvetur fólk
til að gera það sama. Það megi gera úr
svörtum ruslapoka eða fara í Vogue vilji
maður fínni útgáfu.
Fá blómabændur fyrir offram-leiðslu á rósum sem gefur höf-
uðborgarbúum kost á að skreyta
og fegra umhverfi sitt venju
fremur og gleðja þá sem eiga það
skilið.
Syrgir stríð og skrifar handrit
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
1000 kr. tilboð
TILBOÐ sótt kr. 1.000
Stór pizza með
4 áleggstegundum
®
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
SORG VEGNA STJÓRNVALDA
Hans Kristján Árnason ber sorgarband.
Hann er samt alltaf eitthvað að sýsla.
BYGGINGAR Það er helst í bíómynd-
um. Hús uppi í tré með gluggum
og öllu. Eiginlega bara í frum-
skógum þar sem fólk verður að
sofa hátt uppi til að forðast skepn-
ur og skriðdýr á jörðu niðri. Oft
haganlega fyrirkomið og í raun og
veru í felulitum. Fellur inn í tréð
eins og hluti þess. Samt hús.
Eitt slíkt er að finna í tré sem
slútir yfir Barónsstíginn á horni
Bergstaðastrætis. Listilega smíð-
að af húsbóndanum á heimilinu
fyrir börnin sem heima sitja. Karl
Arnar, framkvæmdastjóri hjá Ís-
graf, er laghentur maður og fjög-
urra barna faðir. Þess vegna smíð-
aði hann ævintýrahús í garðinum
og hafði það uppi í tré svona eins
og í frumskóginum og bíómynd-
unum.
Þarna hefur það verið í rúmt ár
og staðið af sér öll veður og vinda.
Og nágrannanir hafa ekki kvart-
að. Enda sjá þeir vart húsið því
það fellur inn í tréð eins og vera
ber. Karl átti eins von á heimsókn
frá byggingafulltrúa borgarinnar
því ekki sótti hann um leyfi fyrir
þessari nýbyggingu í trénu. En
byggingafulltrúinn hefur ekki lát-
ið sjá sig. Enda yrði honum líklega
orðs vant frammi fyrir þessari
byggingu sem tæpast fellur undir
verksvið hans. Borgarkerfið gerir
ekki ráð fyrir húsum í trjám.
Þarna leika börnin sér á sumr-
in. Í svona húsum verður allt að
leyndarmálum. Ofar jörðu þar
sem styttra er til himins. Á vet-
urna verður hins vegar kalt og þá
stendur húsið autt í trénu. Þess
vegna dreymir Karl Arnar um að
tengja rafmagn út í tréð og lýsa
og hita húsið upp. Þá verður hægt
að gista þar undir stjörnuhimni
og norðurljósum í bærilegri
hlýju. Á Bergstaðastrætishorn-
inu.
eir@frettabladid.is
Sögur herma að mikill órói sémeðal starfsmanna Lands-
banka Íslands eftir uppsagnir þar
fyrir skemmstu. Menn óttast að
þetta sé aðeins byrjunin og nýir
eigendur noti
ekki hjartað
heldur aðeins
heilann í stjórn
sinni á bankan-
um. Meðal
þeirra sem
fengu reisupass-
ann nú var
Benedikt Guð-
bjartsson, lög-
fræðingur til fjölda ára. Sagt er
að hann hafi aðeins átt örfáa mán-
uði í að fara á eftirlaun á góðum
launum en þessi uppsögn komi í
veg fyrir það. Fleiri gamalreynd-
ir starfsmenn fengu að fljóta með
og nú er bara beðið eftir næstu
hrinu frá þeim feðgum.
Ævintýri
■ Karl Arnar er laghentur maður og fjög-
urra barna faðir. Þess vegna smíðaði
hann hús í garðinum heima hjá sér og
hafði það uppi í tré. Þar leika börnin sér
og allt verður að leyndarmálum eins og í
bíómyndum sem gerast í frumskógi.
HÚSIÐ
Á horni Barónsstígs og Bergstaðastrætis. Ofar jörðu þar sem styttra er til himins.
Húsið í trénu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
H
O
R
ST
EN
Fréttiraf fólki
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M