Fréttablaðið - 21.06.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 21.06.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 26 Leikhús 26 Myndlist 26 Bíó 28 Íþróttir 10 Sjónvarp 30 KVÖLDIÐ Í KVÖLD LAUGARDAGUR 21. júní 2003 – 138. tölublað – 3. árgangur ÍÞRÓTTIR Spænska deildin klárast bls. 10 FÓLK Skrítin gælunöfn bls. 16 TÍSKA Ótrúlega litrík bls. 24 STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V Kvennahlaupið HLAUP Íþróttasambands Íslands mun fara fram í 14. sinn í dag. Hlaupið verður á yfir 90 stöðum hérlendis og á 15 stöðum í 9 lönd- um erlendis. Í Garðabæ hefst hlaupið á Garðatorgi klukkan 14, en hlaupnar verða vegalengdirnar 2, 5, 7 og 9 km. Á Akureyri hefst hlaupið hins vegar klukkan 11 og í Mosfellsbæ klukkan 12. SÞ í kjölfar Íraksstríðsins FUNDUR Utanríkisráðuneytið og stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála standa fyrir fundi um stöðu og hlutverk Sameinuðu þjóð- anna í kjölfar Íraksstríðsins. Til- efni fundarins er heimsókn dr. David M. Malone, þekkts fyrirles- ara um alþjóðamál. Malone hefur undanfarin fjögur ár verið forseti Alþjóða friðarakademíunnar. Fundurinn stendur frá klukkan 10.30 til 12. BIÐIN LANGA Unga fólkið lagði ýmislegt á sig til að komast yfir fimmta bindi Harry Potter-bókanna. Mikil leynd hvíldi yfir söguþræði bókarinnar og hófst sala hennar á sama tíma um allan heim í gær, á miðnætti hérlendis. Við bókabúð Máls og menningar á Laugavegi myndaðist biðröð strax á hádegi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T REYKJAVÍK Norðlæg átt, 5-10 m/s, en hægari í nótt og á morgun. Bjartviðri og hiti 11 til 15 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 3-5 Skúrir 11 Akureyri 3-5 Skýjað 10 Egilsstaðir 3-5 Skýjað 11 Vestmannaeyjar 5-10 Léttskýjað 15 ➜ ➜ ➜ ➜ + + laugardag og sunnudag Kringlu kast Það liggur auðvitað ljóst fyrir aðsamstarfsaðilar okkar í R-list- anum, Framsóknarflokkur einkan- lega, hafa sett hornin í Samfylk- inguna oft og einatt,“ segir Guð- mundur Árni S t e f á n s s o n , þingmaður Sam- fylkingarinnar. „Því segi ég ein- faldlega að við eigum að vera í stakk búin til þess að mæta því sem að höndum ber.“ Guðmund- ur Árni lýsti þeirri skoðun sinni á nýliðnu flokksþingi að hann teldi rétt að Samfylkingin byði fram sér í öllum sveitarfélögum í næstu kosningum. Það myndi leiða til þess að Reykjavíkurlistasamstarf- ið yrði látið lönd og leið. Guðmundur segir það hafa breytt talsverðu í sínum huga varðandi Reykjavíkurlistasam- starfið að Framsóknarflokkurinn hafi ekki viljað fara í ríkisstjórn- arsamstarf með Samfylkingunni eftir síðustu kosningar. „Auðvitað voru það ákveðin skilaboð sem Framsóknarflokkurinn sendi frá sér í því sambandi,“ segir Guð- mundur. „Hann lét ekki svo lítið að eiga orðastað við Samfylkinguna þegar tækifæri gafst á því að mynda jafnaðarstjórn á miðju ís- lenskra stjórnmála í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins. Hann eyddi ekki einu sinni mínútu í að ræða það mál. Það er því augljóst á hvaða ferðalagi þessi Framsóknarflokk- ur er. Ég leyni því ekki að það er ekki síst í því ljósi sem ég tel það vera ábyrgðarleysi að vera ekki í stakk búin og reiðubúin til þess að stilla upp sjálfstæðum Samfylk- ingarlista í næstu borgarstjórnar- kosningum.“ Guðmundur Árni segir það einnig vera ástæðu fyrir Samfylk- inguna til að „vera á tánum,“ að oddviti Sjálfstæðisflokksins í borg- arstjórn hafi sent frá sér þau skila- boð að Sjálfstæðisflokkurinn geti hugsanleg myndað nýjan meiri- hluta í borgarstjórn með einhverj- um þriggja flokka Reykjavíkurlist- ans. Ekkert launungarmál sé að þar sé átt við Framsóknarflokkinn. „Ég veit ekki meira um það en næsti maður,“ segir Guðmundur. „En ég heyri og les það sem eftir Vilhjálmi Vilhjálmssyni er haft og hann hefur gefið það til kynna að einhverjir möguleikar séu í stöð- unni fyrir Sjálfstæðisflokkinn að lauma sér inn í meirihlutastjórn í borginni utan kosninga. Það eitt veit ég að hann er ekki í samtölum við Samfylkinguna um það mál.“ gs@frettabladid.is Viðsnúningur í efnahags- málum: Nýtt hag- vaxtarskeið EFNAHAGSMÁL Nýtt hagvaxtarskeið er runnið upp, að mati greiningar- deildar Íslandsbanka. Hagstofan birti hagvaxtartölur í gær, sem bankinn telur að renni stoðum undir þetta mat sitt. Samkvæmt Hagstofunni er landsframleiðsla talin hafa vaxið um 3,3% á fyrsta fjórðungi ársins. Það er mikill viðsnúningur því á þriðja ársfjórðungi ársins 2002 var hún neikvæð um 1,3% og á síðasta ársfjórðungi síðasta árs dróst hún saman um 2,5%. Vöxturinn nú er knúinn áfram af vaxandi neyslu og útflutningi. Einkaneysla jókst um 4,6%, sam- anborið við 1,3% á fjórða árs- fjórðungi síðasta árs. Aukninguna má helst rekja til aukinna bif- reiðakaupa og útgjalda erlendis. ■ Tortryggni í garð Framsóknarflokks Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir málflutning Framsóknar- flokks í síðustu kosningum gefa tilefni til þess að vera á tánum í Reykjavíkurlistasamstarfinu. „Það er augljóst á hvaða ferða- lagi þessi Framsóknar- flokkur er. JERÚSALEM, AP Colin Powell, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, segir að Hamas-samtökin séu óvinur friðar- ins og palestínsk yfirvöld verði að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að brjóta hryðjuverkastarfsemi samtakanna á bak aftur. Samninga- viðræður Mahmoud Abbas, forsæt- isráðherra Palestínumanna, við leiðtoga öfgahópa dugi ekki til. Powell kom til Ísraels í gær til að funda með leiðtogum Palestínu- manna og Ísraela og reyna að bjarga vegvísinum til friðar. Á með- an hann ræddi við Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, féll ísra- elskur ökumaður fyrir hendi liðs- manna Hamas-samtakanna og þrír aðrir særðust í skotárás á Vestur- bakkanum. Á fundi með fjölmiðlum ítrekaði Powell mikilvægi þess að hrinda vegvísinum í framkvæmd nú þegar, ekki síst í ljósi átaka síðustu daga. Hann gagnrýndi Hamas-samtökin harðlega og sagði að þau hefðu í gegnum tíðina lagt sig fram um að grafa undan öllum friðaráætlunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Adbel Aziz Rantisi, einn af leið- togum Hamas, brást hart við ásök- unum bandaríska utanríkisráðherr- ans. Rantisi kallaði Powell lygara og þræl Sharons og sagði að hann væri hinn raunverulegi óvinur frið- arins. ■ Colin Powell heldur til Ísraels: Ávítar Hamas-samtökin KA leikur í Evrópukeppninni FÓTBOLTI KA mætir FK Sloboda Tuzla frá Bosníu-Hersegóvínu í Int- ertoto-keppninni klukkan 17 á Ak- ureyrarvelli. Einn leikur fer fram í Landsbankadeild karla. Grindavík tekur á móti Þrótti á Grindavíkur- velli klukkan 14. GUÐMUNDUR ÁRNI STEFÁNSSON Segir sjálfstæðismenn vera að reyna að lauma sér í meirihlutastjórn í borginni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.