Fréttablaðið - 21.06.2003, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 21.06.2003, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 21. júní 2003 29 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 MATRIX REL. b.i. 12 kl.10.10 BRINGING DOWN T... 3.45, 5.50 og 8 KANGAROO JACK kl.4, 6 og 10 Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15 b.i 12 10.15 powersýning KRINGLUKAST forsýning Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 4, 6. 8 og 10 2, 4, 6, 8 og 10ANGER MANAGEMENT IDENTITY bi 16. ára kl. 4, 6, 8 og 10THEY bi 16. ára kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 TÖLVULEIKIR Á síðasta ári kom út fjöl- spilunarleikurinn Battlefield 1942, sem notið hefur þó nokkurra vin- sælda. Það sem skildi hann frá hinni gríðarlegu mergð áþekkra fyrstu persónu skotleikja var hið eiginlega stríðsandrúmsloft (þó án dauða óbreyttra, nauðgana og rána); borðin voru gríðarstór, fjöldi spilara hverju sinni mikill og ýmis farartæki stóðu mönnum til boða; flugvélar, skriðdrekar og bátar. Sá var tíma- og staðsettur í síðari heimsstyrjöld. Nú er svo að koma út framhald, Battlefield Vietnam. Þar verða Víetnam-stríðinu gerð stafræn skil, en hægt verður að spila sem Bandaríkjaher, norður- víetnamski herinn og víetkong skæruliðar. Þyrlur eru nýjung í Battlefield-seríunni og gömlu far- artækin snúa öll aftur. Þau, ásamt vopnabúri leiksins, verða öll sögu- lega nákvæm. Mynd og hljóð verða að sjálfsögðu bætt eins og oft er með framhaldsleiki, en spilun leiksins mun einnig breytast. Til að mynda geta nú allt að fjórir spil- arar stigið um borð í sama farar- tækið og allir nema bílstjóri enn skotið af vopnum sínum. Þyrlur geta flutt önnur farartæki og frum- skógarátök bjóða upp á annars kon- ar bardaga en strendur, sveitir og bæir Evrópu. Leikurinn kemur út í byrjun árs 2004. ■ Battlefield Vietnam: Frumskógur í fjölspilun Nöfnum BritneySpears, Halle Berry og Anth- ony Hopkins verður bætt á gangstétt Hollywood Walk of Fame á næstunni. Að fá stjör- nu á gang- stéttinni þykir enn mikil heiður. Aðrir sem fá stjörnu með nafni sínu á næstunni verða Kevin Costner, Glenn Close, John Singleton og fjölmiðlajöfurinn Ted Turner. Leikkonan Kate Hudson á von áfyrsta barni sínu. Þar með verður leikkonan Goldie Hawn, sem er móðir Kate, að ömmu. Barnsfaðir stúlkunnar er söngv- ari Black Crowes, Chris Robinson. Barnið ætti að koma í heiminn snemma á næsta ári. Hudson sló í gegn í myndinni „Almost Famous“ og nú síðast í myndinni „How to Lose a Guy in 10 Days“. Það hefur vakið mikla athygliað strandvarðagellan Pamela Anderson er búin að taka af sér trú- lofunar- hringinn sem rokkar- inn Kid Rock gaf henni við bónorðið. Pamela Anderson hefur gefið í skyn að hún sé á lausu og að búið sé að aflýsa brúð- kaupi þeirra „um aldur og ævi“. Það er því nokkuð víst að Kid Rock situr eftir með sárt ennið þessa dagana. The Libertines: Úti er ævintýri? TÓNLIST Svo gæti farið að saga bresku rokksveitarinnar The Libertines sé öll rétt nokkrum mánuðum eftir að sveitin gaf út frumraun sína. The Libertines hefur átt vaxandi vinsældum að fagna í heimalandi sínu og fyrsta platan, „Up the Bracket“ selst ágætlega. En svo virðist sem liðs- menn séu ekkert sérlega sam- heldnir, sem sýndi sig best í vik- unni þegar söngvarinn og gítar- leikarinn Pete Doherty yfirgaf sveitina á miðri tónleikaferð sveitarinnar um Evrópu. Höfuðpaur sveitarinnar, gítar- leikarinn Carl Barat, réð þess í stað gítarrótara sveitarinnar í stað Pete og sagðist ekki vilja leika með fyrrum félaga sínum aftur. NME segir sveitina vera aðeins skugga af sjálfri sér án söngvarans. „Hann vill ekki spila með mér í núverandi „ástandi“ mínu,“ út- skýrir Pete á heimasíðu sveitar- innar. „Ég veit ekki alveg hvað hann á við en þetta er alvarlegt og þeir eru búnir að taka ákvörðun um málið. Það þýðir ekkert fyrir mig að væla út af þessu, ég held bara áfram án þeirra. Guð veit að ég elska þá enn, en þetta er ekki í gangi lengur svo þeir mega bara fara í rassgat.“ ■ THE LIBERTINES Frægðarsól The Libertines var á hraðri uppleið í Bretlandi. Fráhvarf söngvarans gæti hugsanlega togað hana niður. BATTLEFIELD Nýlega kom út aukapakkinn Battlefield 1942: The Road to Rome fyrir gamla leikinn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.