Fréttablaðið - 21.06.2003, Blaðsíða 8
„Það er mikið í húfi þegar kem-
ur að því að dönsku þjóðinni verð-
ur gert að greiða atkvæði um nýja
stjórnarskrá Evrópusambands-
ins,“ segir í leiðara Politiken. Af-
leiðingarnar af aðild Danmerkur
að sambandinu verða djúpstæðari
og margþættari þegar nýja stjórn-
arskráin gengur í gildi. Af þeim
sökum er mikilvægt að danska
þjóðin gefi sér góðan tíma til að
ræða málið á grundvelli raunveru-
legra aðstæðna en ekki út frá þeim
tálsýnum og óraunhæfu hugmynd-
um sem oftar en ekki hafa ein-
kennt umræður um Evrópusam-
bandið.
Leiðarahöfundur hvetur al-
menning til þess að lesa stjórnar-
skrárdrögin og kynna sér þær
breytingar sem í vændum eru.
Hann segir mikilvægt að líflegar
umræður skapist um málið á öllum
sviðum samfélagsins og stjórn-
málamenn verði ekki látnir einir
um það að komast að niðurstöðu
um framtíð Evrópusambandsins.
„Allir eiga að vera með því þetta
snýst ekki síst um það að gera ESB
að lýðræðislegum vígvelli þar sem
takast á hugmyndir og skoðanir.“
Leiðarahöfundur breska viku-
blaðsins The Economist studdi á
sínum tíma þá hugmynd að Evr-
ópusambandið fengi fullgilda
stjórnarskrá og batt miklar vonir
við innihaldið. Eftir að hafa kynnt
sér nýju stjórnarskrárdrögin hef-
ur afstaða hans breyst verulega.
Hann segir að vonir sínar um að
fundnar yrðu lausnir á þeim
vandamálum sem hingað til hefðu
íþyngt sambandinu séu nú orðnar
að engu.
Meðal þess sem leiðarahöfund-
ur er ósáttur við er það hvernig
fjallað er um stjórnskipulag Evr-
ópusambandsins í nýju stjórnar-
skránni. Að hans mati er það enn
óskiljanlegra en áður og umfjöllun
um valdskiptinguna innan sam-
bandsins mjög óskýr og loðin.
„Skilgreining valds, eða valdsviða
á máli Evrópusambandsins, er svo
óræð að í mörgum tilfellum geta
þeir sem unnu að gerð stjórnar-
skrárinnar ekki einu sinni útskýrt
sjálfir hvað í textanum felst.“
Leiðarahöfundur Jyllandspost-
en er talsvert jákvæðari í garð
nýju stjórnarskrárinnar en koll-
egi hans í Bretlandi. „Tekist hefur
að skapa skynsamlega heild með
því að grípa til ýmis konar mála-
miðlana,“ segir um stjórnar-
skrána í leiðara blaðsins.
Bent er á að fyrirhuguð þjóðar-
atkvæðagreiðsla um stjórnar-
skrána geti haft úrslitaþýðingu
fyrir áframhaldandi aðild Dan-
merkur að Evrópusambandinu.
Leiðarahöfundur telur þó ekki að
stjórnarskráin feli í sér víðtækar
breytingar. Hann saknar þess að
ekki skuli vera fjallað af alvöru
um framtíð Evrópu í þessu mikil-
væga og langþráða plaggi. Hann
hefur jafnframt litla trú á því að
stórar ákvarðanir verði teknar á
leiðtogafundi sambandsins sem
nú stendur yfir. „Þátttakendur í
fundinum munu að öllum líkind-
um eiga tíma aflögu til að njóta út-
sýnisins yfir flóann.“ ■
Úr leiðurum
■ Leiðtogar Evrópusambandsins eru mætt-
ir til Grikklands til að ræða drög að nýrri
stjórnarskrá. Leiðarahöfundar evrópskra
dagblaða hafa kynnt sér stjórnarskrárdrögin
og hafa ýmislegt við þau að athuga.
8 21. júní 2003 LAUGARDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands-
byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Ritstjóri Fréttablaðsins skrifaðióvenju óljósan ritstjórnarpistil
í blaðið sitt í gær um spurninguna
um opinbera birtingu í fjölmiðlum
á nöfnum þeirra sem sakaðir eru
um einhver misindismál, annars
vegar fjármálamisferli og hins veg-
ar níðingsskap gegn börnum. Ég
skildi ekki hver átti að vera niður-
staða Gunnars Smára; sú helst,
sýndist mér, að ekki ætti að líta á
nafnbirtingar í fjölmiðlum eða fjöl-
miðlana almennt sem framhald á
dómsmála- eða lögreglusýstemi
landsins. Sú athugasemd er vita-
skuld rétt en svo almenn að segja
má að hún hafi nánast ekkert gildi –
þó fannst mér að ritstjórinn hlyti,
með því að setja hana fram, að eiga
við að nafnbirtingar ættu ekki að
eiga sér stað, hvorki í málum sem
snertu fjárglæfra né ofbeldi gegn
börnum.
Og af því tilefni má láta fáein
orð falla.
Ef einhver hefur áhuga: almennt
séð er ég ekki talsmaður þess að
fjölmiðlar birti í tíma og ótíma nöfn
á mönnum sem sakaðir eru um
ýmsa glæpi. En þó gildir annað um
þá menn sem berir verða að níð-
ingsskap gegn börnum. Ástæður
þess þarf vonandi ekki að fjölyrða
að ráði. Þessir glæpir eru í senn svo
viðbjóðslegir og hafa svo afdrifa-
ríkar afleiðingar gegn varnarlaus-
um börnum að það hljóta allir menn
að skilja.
Má ég taka dæmi?
Dæmdur kynferðisbrotamaður
Fyrir allnokkrum árum varð
maður nokkur sem þá var búsettur
á Akureyri uppvís að því að hafa
níðst á börnum nágranna sinna en
hann hafði leikið sannan barnavin
og sóst eftir því að fá að passa börn-
in. Þegar málið varð uppvíst kom
jafnframt í ljós að maðurinn átti
langan sakaferil að baki. Fyrir
sunnan hafði hann verið ákærður
og dæmdur fyrir níðingsskap af
sama tagi og hann hafði nú gerst
sekur um á Akureyri. Eftir að hann
hafði afplánað dóm sinn flutti hann
sem sagt norður, laus allra mála, og
sóttist eftir að passa börn. Það sem
gerði málið alvarlegra var að við-
komandi yfirvöld vissu vel af
manninum og vissu meira að segja
líka að hann var farinn að sækja í
að gæta þessara barna nágranna
sinna. En á þeim grundvelli að mað-
urinn hefði tekið út sinn dóm var
ákveðið að ekkert væri hægt að
gera, það væri skerðing á mann-
réttindum mannsins ef vara ætti
fólk opinberlega við honum. Eftir
að málið komst í hámæli kom meira
að segja lögfræðingur Barnavernd-
arstofu eða hvað sem það apparat
hét þá og varði þá ákvörðun að hafa
ekki látið nágranna mannsins vita
af fortíð hans. Jú, vissulega væri
málið hörmulegt, en svona væri það
nú bara – maðurinn hefði eins og
allir aðrir sín mannréttindi og það
hefði verið partur af mannréttind-
um hans að fá að lifa sínu lífi
óáreittur eftir að hann hafði tekið
út dóm sinn. Því hefði ekki verið
varað við honum. Þó snerist þetta
mál í raun eingöngu um þá stór-
kostlegu skerðingu á mannréttind-
um dæmds kynferðisbrotamanns
að nágrönnum hans væri bent á að
hann væri kannski ekki allra
manna heppilegust barnapía.
Víti til varnaðar?
Ég veit ekki hvort þetta mál
varð til þess að yfirvöld hafi í ein-
hverju breytt sínu eftirliti með
kynferðisbrotamönnum. Á hinn
bóginn er ljóst að ef nafn þessa
manns hefði á sínum tíma birst í
fjölmiðlum er mjög sennilegt – en
vissulega ekki alveg öruggt – að
hann hefði ekki komist upp með að
leika barnavininn mesta norður á
Akureyri. Og þau börn sem hann
níddist á þar þyrftu þess vegna
ekki að bera til æviloka á sálinni
örin eftir hann.
Nú má segja sem svo: þótt þessi
tiltekni barnaníðingur hafi því
miður sótt í sama farið er ekki víst
að svo hefði farið um aðra. Annar
dæmdur barnaníðingur hefði
kannski látið alveg af iðju sinni en
ef nafn hans hefði samt verið birt,
þá hefði hann að ósekju mátt glíma
við alls konar fordóma og andúð
samborgara sinna. Vel má það
vera, en hvorn pólinn á að taka í
hæðina – að svipta dæmdan barna-
níðing til æviloka þeim mannrétt-
indum að fá að hæna að sér börn –
eða létta af börnum í nágrenni
slíkra manna allri hættu sem af
þeim KYNNI að stafa. Það er rétt
hjá Gunnari Smára að ákvarðanir
um slíkt á ekki að taka á bönkum
eða bensínstöðvum. En það má al-
veg heita partur af því að vinna á
fjölmiðli að horfast í augu við slík-
ar ákvarðanir.
Uppsögn tengdist ásælni í börn
Annað mál, nýtilkomið. Maður
hefur orðið uppvís að því að eiga
ókjör af barnaklámi. Og hefur ber-
sýnilega sótt í börn gegnum tíðina.
Um málið hafa orðið miklar um-
ræður – til dæmis rakti DV ævi
mannsins í smáatriðum um dag-
inn. Þar vantaði þó eina mikilvæga
staðreynd. Frá því var greint að
manninum hefði á sínum tíma ver-
ið sagt upp störfum hjá KFUM en
það hefði ekki tengst kynferðis-
legri ásælni hans í börn, hann hefði
einfaldlega þótt slæmur starfs-
maður. Nú vill svo til að ég veit að
þetta er rangt. Uppsögn mannsins
hjá KFUM tengdist VÍST ásælni í
börn – hann varð uppvís að því að
vilja „kenna“ sjö átta drengjum
kynferðislegt athæfi og var m.a.s.
kærður. Málinu lauk með dóms-
sátt. Það varð hins vegar aldrei op-
inbert, nafn mannsins var aldrei
birt í fjölmiðlum og því gat hann
haldið áfram að sækja um störf
þar sem hann gat verið í samvist-
um við börn. Hvaða skaða það
gerði vitum við ekki enn. ■
Brúin yfir
Víðidalsá
horfin
Christina Böhner og Hans-Martin Mozer skrifa:
Við erum tveir Þjóðverjar semstörfum við ferðaþjónustu á
Íslandi á sumrin. Í gönguferð 11.
júní síðastliðinn uppgötvuðu við
að brúin yfir Víðidalsána, á
gönguleiðinni frá Víðidal yfir í
Lónsöræfi að Múlaskálanum, var
horfin. Steinsteyptir stöplar stóðu
eftir en járnbitar sem tilheyrðu
brúnni lágu um það bil fimmtíu
metrum neðar í straumharðri
ánni. Ferðahópurinn sem við
stýrðum ákvað að vaða yfir ánna.
Sem betur fer gekk sú ferð greið-
lega þrátt fyrir að vatnið næði
ferðalöngunum upp að mjöðmum
og áin væri straummikil. Það er
ekki víst að allir treysti sér til
þess að vaða ána og er leitt til þess
að vita að göngufólk þurfi jafnvel
að snúa frá.
Við teljum víst að smíði á nýrri
brú sé tímakrefjandi og erfið
vinna. Þrátt fyrir það hvetjum við
til þess að brúin verði endurbyggð
sem fyrst og um leið óskum við
fólkinu fyrir austan velfarnaðar
með endurbygginguna. ■
Um daginnog veginn
ILLUGI
JÖKULSSON
■
skrifar um nafnabirt-
ingar í fjölmiðlum.
Nafnabirtingar
í fjölmiðlum
■ Bréf til blaðsins Framtíð Evrópu
enn óráðin
■ Af Netinu
Undirgefni dugar skammt
„Eins ótrúlega og það hljómar, þá
tekur Bandaríkjastjórn ekkert
sérstakt tillit til ríkisstjórnar
sem hefur sýnt henni skilyrðis-
lausa hlýðni og undirgefni og lof-
ar því að gera það áfram um
ókomna framtíð.“
SVERRIR JAKOBSSON Á VEFNUM MURINN.IS.
Í stuði á þjóðhátíð
„Landsfaðirinn var í stuði eftir
sigurför gegn Írak og notaði þjóð-
hátíðina til að hreyta skætingi í
stjórnarandstæðinga, sem höfðu í
kosningabaráttunni amast við
gerðum hans á liðnu kjörtíma-
bili.“
JÓNAS KRISTJÁNSSON Á VEF SÍNUM JONAS.IS.
Árni Þór Sigurðsson
forseti borgarstjórnar
Unnt að spara
„Það er eðlilegt að borgaryfirvöld reyni á hverjum tíma
að gæta aðhalds og sparnaðar í rekstri og leita leiða til
að ná sem mestum árangri í því sambandi um leið og
tryggð er öflug samfélagsþjónusta við borgarbúa. Það
er okkar skoðun að unnt sé að ná fram verulegum
sparnaði með aðhaldi í ýmsum rekstrarþáttum, svo sem
síma- og fjarskiptakostnaði, ferðalögum, risnu, akstri og
þess háttar án þess að skerða þá grundvallarþjónustu
sem við viljum halda uppi í borginni. Í framhaldi af til-
lögum sparnaðarnefndar munu stofnanir vinna tillögur
um frekari útfærslu sem munu að sjálfsögðu fá póli-
tíska umfjöllun í sparnaðarnefnd og borgarráði áður en
þær koma til framkvæmda.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík
Útþensla ekki stöðvuð
„Það er mikilvægt að spara og hagræða eins og kost-
ur er í rekstri borgarinnar, ekki síst nú þegar fjárhags-
staðan er afar erfið. Það sem er gagnrýnisvert er að
stærstur hluti þessara sparnaðartillagna beinist að
fræðslu-, tómstunda- og félagsmálum en ekki að út-
þenslunni í stjórn borgarinnar. Þar á einungis að spara
6,5 milljónir króna. Það er einnig einkennandi fyrir
þessar tillögur að þær eru lítið rökstuddar, enda ekkert
samráð haft við forstöðumenn einstakra sviða við gerð
þeirra. Ljóst er að sífellt er að koma betur og betur í
ljós að allt sem við sjálfstæðismenn höfum sagt um fjár-
málastjórn borgarinnar og óhóflega skuldasöfnun er
rétt.“
Reykjavíkurborg sparar 500 milljónir
Skiptar skoðanir
Reykjavíkurborg hyggst spara 500 milljónir króna, þar af 200 milljónir í fræðslumálum, 50 milljónir
í Íþrótta- og tómstundaráði og einnig hjá Félagsþjónustunni.
Ísland í dag
Tryggur áskrifandi Stöðvar 2 skrifar:
Hvað hefur komið fyrir Ísland ídag? Þátturinn var góður og
skemmtilegur í
heild en nú er
maður hættur
að horfa. Er ein-
hver upplausn
og vandræða-
gangur á ferð-
inni? Kastljós
heldur sínu
striki ágætlega.
Getur Stöð 2
ekki lagað þetta
ástand? ■