Fréttablaðið - 21.06.2003, Page 27
14.00 Íslensk-japanska félagið
stendur fyrir kynningu á bonsai; ræktun
dvergtrjáa í bonsai-garðinum í Hellis-
gerði í Hafnarfirði. Páll Kristjánsson
bonsairæktandi mun kynna þessa
ævafornu japönsku listgrein. Bonsai-
garðurinn er í eigu Hafnarfjarðarbæjar.
16.00 Liður í Jónsmessuhátíð á
Eyrarbakka. Jörg Sondermann leikur á
orgel Eyrarbakkakirkju og Magnús Karel
Hannesson segir sögu kirkjunnar og
greinir frá kirkjugripum.
21.00 Félagar úr kvæðamannafé-
laginu Iðunni koma og kveða af kappi.
Boðið verður upp á siglingar og fleira á
hafnarsvæðinu í Búðardal. Dagskráin er
liður í Jónsmessuhátíð í Dölunum.
23.30 Skemmtun á Bjargi í Búðar-
dal. Þar kemur meðal annars Lalli
Hannesar, Presley lætur drauminn ræt-
ast og fleira. Dagskráin er liður í Jóns-
messuhátíð í Dölunum.
■ ■ KVIKMYNDASÝNINGAR
Kvikmyndasafn Íslands stendur fyrir
sýningu á myndinni Karlsen stýrimaður
eða Styrmand Karlsen. Leikstjóri mynd-
arinnar er Annelise Reenberg og aðal-
hlutverkin eru í höndum þeirra Frits
Helmuth, Johannes Meyer og Dirch
Passer. Sýningin er í Bæjarbíó við
Strandgötu 6, Hafnarfirði.
■ ■ TÓNLIST
14.00 Barnatónleikar í Norræna
húsinu sem eru liður í Norrænum sum-
artónum. Camerarctica og Norræna hús-
ið bjóða ókeypis aðgang á þessa tæplega
klukkustundar tónleika þar sem börn fá
að hlusta á, syngja og dansa við tónlist.
20.00 Tónleikar í Hafnarfjarðar-
kirkju. Tónleikarnir eru liður í Syngjandi
sumri í Hafnarfjarðarkirkju. Kristín R.
Sigurðardóttir sópran syngur kirkjuleg
lög og óperuaríur við undirleik Antoníu
Hevesi á orgel og píanó.
20.00 Kammertónleikar sem eru
liður í Norrænum sumartónum, hátíð
sem haldin er í Norræna húsinu þessa
dagana. Þar flytur Camerarctica strengja-
kvartett eftir Franz Berwald, „In the
Twilight“ fyrir flautu, fiðlu og víólu eftir
Árna Egilsson og kvartett fyrir klarinett
og strengi eftir Bernhard Crusell.
20.00 Síðustu aðaltónleikarnir í
röðinni Við Djúpið verða í Hömrum Ísa-
firði en þar koma þeir Jónas og Ólafur
aftur fram og flytja sígildar söngperlur.
21.00 Tónleikar Guðrúnar Gunn-
arsdóttur, Óður til Ellýjar, ásamt hljóm-
sveitarmeðlimunum Eyþóri Gunnarssyni,
Birgi Bragasyni, Sigurði Flosasyni, Erik
Qvick og gestasöngvaranum Friðriki
Ómari Hjörleifssyni. Tónleikarnir eru í
Ketilshúsinu.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Rómeó og Júlía sýnt á Litla
sviðinu í Borgarleikhúsinu. Verkið er
sett upp í samstarfi við Vesturport.
■ ■ KEPPNI
14.00 Hálanda- og kraftakeppn-
in Uppsveitartröllið 2003 verður haldin
að Flúðum.
■ ■ ÚTIVERA
Gangan Fljúgandi fiskisaga með
landvörðum í Þjóðgarði Snæfellsjökli.
Farið er að Gufuskálavör og í fiskibyrgin.
Gengið er frá fiskibyrgunum.
■ ■ SAMKOMUR
14.00 Messa í gömlu safnkirkj-
unni á Árbæjarsafni. Prestur er séra
Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Að lokinni
messu býður húsfreyjan í Árbæ gestum
og gangandi upp á nýbakaðar lummur.
Á baðstofuloftinu verður prjónað og
saumaðir roðskór. Í Dillonshúsi eru ljúf-
fengar veitingar og Karl Jónatansson
leikur á harmóníku.
Flugdrekadagur í Árbæjarsafni. Allir
þeir sem eiga flugdreka eru sérstaklega
hvattir til að mæta, og sá sem kemur
með flottasta heimagerða flugdrekann
fær viðurkenningu frá safninu.
21.00 BSKH-samsteypan býður til
kvöldvöku í Súfistanum í Hafnarfirði.
Kvöldvakan er lokaþáttur sýningarinnar
Skopparakringlur með boðskap og Mitt
lið, sem staðið hefur frá 7. júní.
■ ■ SÝNINGAR
Ljósmyndasýning í Listasafni
Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum. Ís-
lenskar samtímaljósmyndir eftir ýmsa
listamenn. Sýningin var áður í Rúss-
landi.
Samsýning listamanna úr Gallery
VERU í Veitingahúsinu Ránni í Kefla-
vík. Sýndar er landslags- og blóma-
myndir. Sýningin stendur til 14. júlí.
Síðasta sýningarvikan er að hefjast
hjá Ragnari Kjartanssyni í gallerí Kling
og Bang. Ragnar er þar með einkasýn-
ingu sem nefnist Nýlendan.
Lovísa Lóa Sigurðardóttir myndlist-
armaður sýnir í Rauða húsinu á Eyrar-
bakka 11 myndverk unnin í olíu og
blandaðri tækni á striga. Sýningin stend-
ur fram í ágúst.
Í Bóka- og byggðasafni N-Þingey-
inga hefur verið opnuð leikfangasýning.
Leikföngin hafa verið fengin að láni frá
mörgum íbúum í nágrenni safnsins.
Sýningin verður opin til 31. ágúst.
Ormarnir sýna í fyrsta sinn saman
listir sínar í Hafnarhvoli, Tryggvagötu
11 í Reykjavík. Sýningin nefnist Hafsýnir
og stendur til 29. júní.
Þrjár nýjar sýningar í Safnasafninu –
Alþýðulistasafni Íslands, á Svalbarðs-
strönd, Eyjafirði. Í Hornstofu verða sýnd
málverk eftir Sigurð Einarsson í Hvera-
gerði. Í garðinum er sýning á trjáköttum
eftir Aðalheiði Eysteinsdóttur á Akureyri
og nær ánni er samsýning 11 og 12 ára
nemenda í Valsárskóla.
Sýningin Ísjakar og Sahara opnar í
Hveragerði að Klettahlíð 7. Hún er í
Stúdíó-gallerí Jóhönnu Bogadóttur en
þar verða málverk og múrristur bæði úti
og inni. Sérstök áhersla er þó núna á
nýjar litógrafíur sem Jóhanna hefur unn-
ið að í vetur út frá skissum sem hún
hefur unnið á ýmsum stöðum í heimin-
um. Sýningin stendur frá 14. til 29. júní
frá kl. 14 til 18 alla daga.
Katrín Elvarsdóttir sýnir á Mokka.
Sýningin nefnist Lífsandinn en á henni
má sjá 12 ný verk sem eru seinni hluti
myndaraðarinnar Lífsfsanda.
Sigurdís Harpa Arnarsdóttir mynd-
listarmaður sýnir á verk sín á Næsta
bar, Ingólfsstræti 1.
Þrjár sýningar í Listasafni Reykjavík-
ur – Hafnarhúsinu. Sýningarnar Humar
eða frægð – Smekkleysa í 16 ár, Inn-
sýn í alþjóðlega samtímalist á Íslandi
og Erró Stríð.
Stóra norræna fílasýningin í sýning-
arsal Norræna hússins. Á sýningunni
eru verk eftir dönsku listamennina Peter
Hentze, Thomas Winding og Pernelle
Maegaard. Victoria Winding hefur gert
fræðslutexta.
Sýning sem nefnist Ferskt ung-
nautahakk á Björtum dögum. Mynd-
listarsýningin er í nýjum sal í menning-
ar- og kaffihúsi fyrir ungt fólk í Gamla
bókasafninu Mjósundinu.
Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona
er með myndlistarsýningu að Hvirfli í
Mosfellsdal. Sýningin er haldin utandyra.
20.00 Opnun á þremur sýning-
um í Listasafni Reykjavíkur – Hafn-
arhúsinu. Opnaðar verða sýningarnar
Humar eða frægð – Smekkleysa í 16
ár, Innsýn í alþjóðlega samtímalist
á Íslandi og Erró Stríð.
Höggmyndalistamaðurinn Teddi
(Magnús Th. Magnússon) verður með
sýningu á viðarhöggmyndum á
vinnustofu sinni til 1. júlí. Vinnustofan
er á horni Skúlagötu og Klapparstígs.
LAUGARDAGUR 21. júní 2003
✓
✓
27
Menntaskólinn að Laugarvatni 2002-2003
Hefurðu áhuga á íþróttum og
náttúruvísindagreinum?
Viltu verða stúdent með góðan undirbúning
undir háskóla?
Ertu góður nemandi?
Ef svörin við spurningunum eru jákvæð lestu þá áfram.
Menntaskólinn að Laugarvatni getur bætt við sig nemendum á íþróttabraut skólaárið 2003-
2004. Nýtt skipulag brautarinnar miðast við að nemendur taka áfanga brautarskipulags
íþróttabrautar menntamálaráðuneytisins (71 einingu) og 46 einingar af náttúrufræðibraut að
auki á þremur árum. Á fjórða árinu (valkvætt) taka nemendur allt að 38 einingar með
nemendum náttúrufræðibrautar til stúdentsprófs.
Nemendur íþróttabrautar ML geta orðið stúdentar eftir fjögurra ára nám með 80% námseiningum
hefðbundinnar náttúrufræðibrautar að jafnaði, auk verklegra og bóklegra faggreina.
Sérstaða íþróttabrautar ML er m.a. að áfangar skólans í íþróttagreinum eru fleiri en
viðmiðunarnámskrá gerir ráð fyrir, ekkert þriðja mál er kennt en aukaáhersla er á íslensku og
ensku. Einnig eru útivistaráfangar hans (8 ein.) alger sérstaða.
Kröfur eru gerðar á brautinni um áhuga og ástundun enda miðast skipulag hennar við að
veita sem bestan undirbúning fyrir Íþróttafræðisetur KHÍ á Laugarvatni, sjúkraþjálfunarnám
eða annað heilsutengt nám í háskólum og sérskólum, innanlands sem erlendis.
Á íþróttabraut ML er mikil áhersla á náttúruvísindi, íslensku, ensku og faggreinar
íþrótta - sem og áhuga og ástundun.
Laugarvatn - frábær aðstaða - öflugur menntaskóli - heimavist - mötuneyti -
þvottaþjónusta - þráðlaus nettenging haustið 2003 á öllu skólasvæði ML,
einnig á öllum vistum.
Sjá heimasíðu skólans; http://www.ml.is
Upplýsingar fást í símum 486 1156, 486 1258 og 486 1274 á skrifstofutíma.
Eins má senda tölvupóst á ml@ml.is
Umsóknarfrestur á brautina er framlengdur til 26. júní 2003.
Skólameistari
hvað?hvar?hvenær?
19 20 21 22 23 24 25
JÚNÍ
Sunnudagur
Markmið tónleikanna er aðleyfa ungu hljómsveitunum
að fá tækifæri til að spila með
þeim eldri og reyndari,“ segir
Logi Karlsson, skipuleggjandi
tónleika sem haldnir verða í
Hafnarfjarðarhöfn í dag. Að sögn
Loga er mikill skortur á tækifær-
um fyrir ungar hljómsveitir að
koma fram en það má með sanni
segja að hafnfirskum hljómsveit-
um gefist gott tækifæri í dag.
„Það eru um það bil sautján
hljómsveitir sem koma fram á
tónleikunum. Allt frá Írafári, sem
er toppurinn á poppísjakanum, til
Botnleðju og Jet Black Joe. Þarna
verða einnig ungir djassarar,
rapparar og örgustu rokkarar.“
Að sögn Loga er mikið að gerj-
ast í tónlist í Hafnarfirði og ótal
hljómsveitir til sem ekki enn eru
komnar út úr bílskúrnum. „Það
má að hluta til þakka bænum fyr-
ir gróskuna í tónlistarlífinu. Hann
lánar ungum hljómsveitum æf-
ingarhúsnæði endurgjaldslaust
og það er að skila sér. Hljómsveit-
irnar spila síðan í staðinn, sem
heldur kostnaði í lágmarki við at-
burði eins og þessa.“
Aðspurður um fjölda stelpna í
hafnfirskum hljómsveitum segir
Logi að stelpugrúbburnar séu
ekki á hverju strái og til að mynda
verði á tónleikunum í dag aðeins
tvær stelpur í þeim sautján
hljómsveitum sem fram koma
þrátt fyrir þó nokkra leit Loga.
„Tónleikarnir eru búnir að
vera nokkuð lengi í vinnslu. Ég
lagðist í rannsóknarstarfsemi og
reyndi að grafa upp sem flestar
hljómsveitir í Hafnarfirði. Helsta
vandamálið við skipulagninguna
hefur þó verið fólgið í því að bíl-
skúrsböndin eru alltaf að hætta
og sífellt er verið að stofna fleiri.
Það hættu til dæmis tvær hljóm-
sveitir í síðustu viku sem áttu að
spila.“
Tónleikarnir hefjast klukkan
15 í dag á Norðurbakkanum í
Hafnarfirði og standa til miðnætt-
is. „Írafár er klukkan 16.30 til að
fólk geti mætt með barnavagninn
en Jet Black Joe er klukkan 23
þegar búið er að svæfa börnin,“
segir Logi að lokum.
vbe@frettabladid.is
■ TÓNLIST
Reynsluboltar
og bílskúrsbönd
LOGI KARLSSON
Sautján hljómsveitin koma fram á tónleikunum í Hafnarfirði í dag. Meðal þeirra eru Dáða-
drengir, Botnleðja, Írafár og Jet Black Joe. Tónleikarnir hefjast klukkan 15 og lýkur klukkan 24.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M