Fréttablaðið - 21.06.2003, Side 28

Fréttablaðið - 21.06.2003, Side 28
21. júní 2003 LAUGARDAGUR28 JOHNNY ENGLISH kl. 3.45 THE MATRIX R.. 5.30, 8, 10.30 b.i 12 BRINGING DOWN... kl. 3.45, 5.50, 8, 10.15 Sýnd kl. 2. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl.4, 6, 8 og 10 kl. 4NÓI ALBINÓI kl.4 og10 b.i 12THE MATRIX REL... 6, 8 og10 TRICKY LIFE (EN LA PUTA VIDA) OLD SCHOOL b.i. 12 kl. 3.45, 5.50, 8, 10.15 b.i 12 Lúxus kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15 TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl. kl. 2 og 4 IDENTITY kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i 16 kl. 8 Sýnd kl. 5.40, 8, og 10.20 b.i. 16 ára Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i 16 Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 Sýnd í lúxus kl. 3.30, 6 og 8.30 kl. 4JOHNNY ENGLISH kl. 5.45, 8 og 10.15HOW TO LOSE A... XMEN kl. 10.15 bi 12 SKÓGARLÍF 2 kl. 2 og 4 KANGAROO JACK kl. 2, 4, 6, 8 og 10 Fréttiraf fólki TÖLVULEIKIR MurK vann Drake í æsispennandi úrslitaleik í HK hús- inu Digranesi um helgina. „Skjálfti er langstærsta keppnin hérlendis og við leggjum fullan metnað í hana hvert sinn,“ segir Kristján, klan- meðlimur í MurK. „Okkur þykir í raun aðeins virkilega skemmtilegt að keppa núna, að spila leikinn einn á Netinu hefur ekki sama sjarma og þegar maður var að byrja í þessu.“ MurK-menn eru þó engin undra- börn, að baki velgengninni liggja þrotlausar æfingar og þeir eiga sitt eigið æfingarhúsnæði við Frakka- stíg. „Ætli við æfum ekki að meðal- tali 4 tíma virka daga, með fríum.“ Æfingar eru þó langt því frá að spila bara leikinn. Jóhannes klan- meðlimur útskýrir, „Við tökum venjulega eitt kort (borð) fyrir og skoðum það vandlega einir fyrst. Þá erum við að móta áætlanir og skipa mönnum í stöður. Svo tökum við æf- ingu með öðru klani, oftast erlendu.“ En hver er svo uppskera erfiðis- ins? „Að vinna Skjálfta er náttúrlega aðallega bara spurning um veg og virðingu, þó auðvitað séu líka verð- laun. Höfum fengið fjóra síma síð- asta árið,“ segir Kristján glettinn. „Já, verðlaunin eru oftast ágæt, en einu sinni fengum við samt FIFA 2002, það var slappt,“ segir Jóhann- es. „Og mínu eintaki var stolið seinna um daginn til að fullkomna það,“ bætir Kristján við hlæjandi. „Svo er maður náttúrlega frægur innan viss hóps, sem er bæði blessun og bölvun. Maður mætir kannski í partí þar sem maður þekkir engan, og svo berst það bara út, „Knifah er hér, Knifah er hér!“, og allt í einu er maður umkringdur strákum að tala um CS, og gellurnar flýja.“ Kristján tekur undir þetta: „Já, maður er þekktur fyrir að sitja fyrir framan tölvu allan daginn, svo við höstlum nú ekkert út á þetta, en maður er beðinn um eiginhandaráritanir og einu sinni fékk ég rós frá drengjum sem sáu mig á gangi.“ MurKarar stefna til útlanda á eiginlegt heimsmeistaramót í leikn- um. Mótið CPL er haldið tvisvar á ári í Dallas í Bandaríkjunum og þangað mæta öll bestu liðin hvaðanæva að úr heiminum. „Við erum að taka þátt í fyrsta skipti, en höfum fulla trú á að við verðum í slag um toppsæti,“ fullyrðir Krist- ján. Á CPL eru peningaverðlaun, en MurKarar segjast frekar gera þetta vegna ánægjunnar en fjármuna, þó þeir væru góður bónus. „Við þurfum allir að borga meira en 100.000 kr. fyrir ferðina, en það hefur verið mjög erfitt að útvega okkur styrkt- araðila. Bunker, net-cafe, styrkir okkur, en almennt virðist fólk ekki gera sér grein fyrir því að við séum góð auglýsing. Ótrúlegur fjöldi ungra stráka er að spila þennan leik.“ david@frettabladid.is  23.00 Hljómsveitin Singapore Sling spilar á Grand Rokk.  Hinn stórgóði Labbi í Glóru skemmtir á Gömlu Borg Grímsnesi.  Stórdansleikur með Á móti sól í Hvíta húsinu, Selfossi, í tengslum við hátíðina Sumar á Selfossi.  Hljómagoðið Rúnar Júlíusson og hljómsveit halda uppi stemningunni alla helgina á Kringlukránni.  Miðsumarsfögnuður á Nasa, nánar tiltekið Hvítt ball. Allir eru hvattir til að mæta í hvítu. Páll Óskar verður plötu- snúður og sérstakur gestur verður ind- verska prinsessan Leoncie.  Hljómsveitin Spútnik spilar í Pakk- húsinu. MURKARAR Í MURKHOLTI Hér í MurKholti æfa MurK menn sig og keppa við yfir netið, en Counter-Strike byggist á mikilli samvinnu. Meðal þeirra allra bestu Counter-Strike er sérsveita- og hryðjuverkaskotleikur sem nýtur gífurlegra vin- sælda. Hann er stærsta keppnisgrein tölvuleikjastórmótsins Skjálfta, sem var haldið um síðustu helgi í 20. sinn. Counter-Strike og Quake-klanið MurK sigraði þar. GULL PLÁNETTAN kl. 2 DIDDA OG DAUÐI KÖTT.. kl. 2 Mörkinni 6, sími 588 5518. Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga. Vínrauðir Leðurjakkar 19.900 kr Stutt kápur hvað?hvar?hvenær? 18 19 20 21 22 23 24 JÚNÍ Laugardagur Leikkonan Demi Moore er mikiðá milli tannanna á fólkinu í glæsibænum Hollywood þessa dagana. Kannski ekki að ástæðu- lausu því hún mætti til frumsýn- ingar nýjustu myndar sinnar „Charlie’s Angels 2: Full Throttle“ með tvo menn og þrjú börn upp á arm- inn. Þar var nýi ungi elskhug- inn hennar Ashton Kutcher úr „That 70’s Show“, fyrrum eig- inmaður hennar Bruce Willis og börn þeirra þrjú. Vin- skapur þríeyk- isins þykir meira en lítið undarlegur. Robert Smith, söngvari TheCure, hefur tekið að sér að syngja eitt lag með bandarísku rokksveitinni Blink 182. Lagið á að vera ríkt í niðursveiflunni og því vel við hæfi að fuglahræðu- kóngurinn syngi lagið. Ekki eru allir Cure-aðdáendur jafn ánægð- ir með ákvörðun Smiths enda verður það að viðurkennast að tónlist Blink 182 hefur hingað til ekki svipað til depurðar The Cure. Upptökustjórinn snjalli Ross Robertson stjórnar upptök- um á næstu plötu The Cure og er fyrirhugað að upptökur hefjist í september. Leikararnir Will Smith og MartinLawrence vilja gera þriðju myndina í „Bad Boys“-seríunni. Ef verður af þriðju myndinni ætti hún að skila sér í bíó eftir tvö til þrjú ár. Leikkonan Elizabeth Taylor eign-aðist fjórða barnabarnabarn sitt á dögun- um. Hún náði þó ekki að fagna því að hún væri orðin langamma í fjórða sinn þar sem hún var á spítala vegna maga- verkja. Að þessu sinni bættist strákur í fjölskylduna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Þá er komin áþreifanleg sönnunfyrir því að Guð er til. Og hann er örugglega í þessari hljómsveit, The Mars Volta. Afróhausarnir tveir Cedric og Omar úr At the Drive-in stofnuðu þessa eftir að sú merka sveit klofnaði í tvennt á hátindi ferils síns. Hinir héldu áfram sem Sparta. Munurinn á hljómsveitunum er ótrúlegur, og nú greinilegt að ferskari hugmyndirnar voru allar teknar úr hárflækjum afróhausanna. Ef þessi plata er ljón, konungur frumskógarins, er Sparta eins og saurfluga sem lifir bara í viku og nærist á úrgangi ljónsins. Ofsinn, spilagleðin, tilrauna- mennskan og melódían eru hér í al- gleymingi. Cedric býr yfir hreint stórkostlegri rödd. Hreinni, tilfinn- ingaþrunginni og svo ofarlega á tónskalanum að hún gæti skorið leið sína í gegnum stál, steypu og dem- anta. Hér blanda hann og Omar sam- an hráu rokki ATDI, sambatónlist á köflum og „noise“-pælingum með vænni slettu af „space-echo“ döbbi. Textar plötunnar eru víst saga sem segir frá manni sem fellur í dá eftir að hafa reynt að kála sér með stórum morfínskammti. Í viku dái sínu upplifir hann súrrealíska drau- ma og ævintýri í sinni eigin undir- meðvitund. Platan fékk fullt hús hjá Kerrang, 9 af 10 hjá NME. Ef ég mætti gefa henni stig frá einum upp í tíu yrði þessi hrein og klár ellefa. Ég verð hissa ef það kemur út betri plata en þetta á árinu! Birgir Örn Steinarsson Umfjölluntónlist Meistaraverk THE MARS VOLTA: De-Loused in the Comatorium AGENT CODY BANKS 3, 5.50 og 8 Nokkur pláss laus í sumar. Bókaðu strax hjá Guðrúnu í Keramik fyrir alla, sími 552 2882 eða á www.keramik.is Hvernig fannst þér á sumar- námskeiðinu fyrir skapandi börn hjá Keramik fyrir alla? Soffía Lára: Frábært! Ég hef mjög gaman af því að fara í Keramik og námskeiðið var skemmtilegt, við áttum mikið af myndum og munum eftir vikuna. Námskeið fyrir skapandi börn

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.