Fréttablaðið - 21.06.2003, Blaðsíða 2
EVRÓPUSAMBANDIÐ „Sjávarútvegs-
stefna ESB hefur verið að breyt-
ast,“ segir Örn D. Jónsson, pró-
fessor í viðskipta- og hagfræði-
deild HÍ. Í gær komu út tvær nýj-
ar skýrslur hjá Alþjóðamálastofn-
un Háskóla Íslands, sem unnar
eru í samstarfi við norsku al-
þjóðamálastofn-
unina NUPI,
sem taka á hugs-
anlegri inn-
göngu Íslands
og Noregs í Evr-
ópusambandið.
Önnur skýrslan
fjallar um þrjár
leiðir fyrir ríkin
tvö til að tengjast Evrópusam-
bandinu almennt. Hin skýrslan er
sérstakur viðauki um sjávarút-
vegsmál. Þar er Örn einn íslensku
höfundanna, ásamt Þórólfi Matth-
íassyni dósent og Sveini Agnars-
syni hagfræðingi.
Í sjávarútvegsskýrslunni er
það skoðað hverju það myndi
breyta ef Norðmenn og Íslending-
ar sæktu sameiginlega um aðild
að ESB. Við það, segir í útdrætti
skýrslunnar, myndi heildarafli
ESB-ríkjanna aukast úr 6-7 millj-
ón tonnum í 10-11 milljón tonn.
Innkoma ríkjanna gæti því hugs-
anlega, á grundvelli þess að um
svo miklar sjávarútvegsþjóðir er
að ræða, haft í för með sér endur-
skoðun á sameiginlegri sjávarút-
vegsstefnu ESB.
Örn bendir á að sjávarútvegur
hafi sífellt minni efnahagslega
þýðingu innan ESB. „Ef stefna
ESB í sjávarútvegsmálum er
skoðuð er þetta greinilegt, að þeir
eru að reyna að minnka hina stað-
bundnu hagsmuni í sjávarútvegi,
sem hafa oft verið mjög óþægileg-
ir pólitískt séð,“ segir Örn. Hann
bendir á Spán í þessu sambandi og
að úthafsveiðifloti Spánar hafi
minnkað mjög á undanförnum
árum. Á stöðum eins og Bilbao
hafi meiri áhersla verið lögð á
ferðamannaiðnað en sjávarútveg.
Af þessu leiðir, að sögn Arnar,
að þrýstingur innan bandalagsins
á að fá aðgang að fiskimiðum Nor-
egs og Íslands er ekki jafnmikill
og áður.
Í hinni skýrslunni eru þrjár
leiðir skoðaðar til að tengjast
ESB, með áframhaldandi EES
samningi, með inngöngu í ESB
eða með tvíhliða samningum.
Meginniðurstaðan var sú að það
myndu litlu breyta efnahagslega,
einkum fyrir Noreg, hvaða leið
væri valin. Í norskum fjölmiðlum
í gær var niðurstaðan túlkuð
þannig að ákvörðunin um inn-
göngu væri fyrst og fremst póli-
tísk.
gs@frettabladid.is
2 21. júní 2003 LAUGARDAGUR
Já, það er ekki spurning. Þetta er
með auðveldari spurningum sem
ég hef fengið. Hann er algjörlega
ómissandi í brekkusöngnum.
Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, hefur gagn-
rýnt Guðjón Hjörleifsson, fyrrum bæjarstjóra í
Vestmannaeyjum, fyrir hringlandahátt í bæjar-
stjórn.
Spurningdagsins
Guðjón, viltu fá Árna Johnsen
á Þjóðhátíð?
■ Evrópa
SJÁVARÚTVEGUR Samherjamenn hafa
keypt þýska fiskvinnslufyrirtækið
Pickenpack og sameinað það Huss-
mann & Hahn í Cuxhaven. Finn-
bogi A. Baldvinsson er fram-
kvæmdastjóri sameinaða fyrir-
tækisins og segir hann tilganginn
með sameiningunni að fullnýta
framleiðslugetu Pickenpack, þar
sem vinnslur Hussmann & Hahn
hafi fullnýtt afkastagetu sína.
Sameiginlega fullvinna fyrirtækin
um 70 þúsund tonna afla, sem jafn-
gildir þriðjungi alls þorskkvóta við
Ísland.
Fyrirtækið vinnur tilbúnar
frystar afurðir og selur þær í smá-
sölu. Það verður með sameining-
unni það eitt stærsta sinnar teg-
undar í Evrópu og mun velta um 20
milljörðum króna á ári. Hráefnið
kemur meðal annars frá Banda-
ríkjunum, Rússlandi og Chile, en
stærsti hluti hráefnisins er Alaska-
ufsi sem unninn er í fiskstauta. Þá
kaupir fyrirtækið karfa frá Ís-
landi, sem að sögn Finnboga er
vinsæll hjá venjulegum húsmæðr-
um í Þýskalandi. „Þegar maður
borðar einu sinni karfa hættir
maður því aldrei,“ segir hann. ■
SLYS Ung kona slasaðist á golfvell-
inum Hlíðavelli í Mosfellsbæ í
fyrradag þegar hún fékk golfkúlu
í höfuðið af stuttu færi. Hún fékk
heilahristing og var flutt á slysa-
deild með sjúkrabíl. Henni hefur
nú verið leyft að fara heim.
Þetta er í annað sinn sem slys
verður á sama stað á vellinum á
þessu ári. Fyrir fáeinum mánuð-
um varð maður á sextugsaldri
fyrir alvarlegu slysi þegar kúla
lenti í auga mannsins með þeim
afleiðingum að hann missti sjón á
öðru auga.
Bæði slysin áttu sér stað á flöt-
inni á þriðju braut en þar fyrir
ofan er teigur fyrir næstu braut á
eftir. Í báðum tilvikum misfórust
upphafshögg hjá fólki á fjórða
teig með þeim afleiðingum að
golfkúlan skrúfaðist niður á flöt
þriðju brautar.
„Við erum þegar búnir að færa
teiginn,“ sagði Haukur Hafsteins-
son, framkvæmdastjóri golf-
klúbbsins Kjalar, sem hefur að-
stöðu á Hlíðavelli. „Það hefur orð-
ið það mikil aukning á félögum í
klúbbnum að hættan á að svona
gerist vex mikið en þess ber að
geta að í fyrra tilfellinu voru að-
stæður öðruvísi en nú er, þá var
spilað af svokölluðum vetrarteig
sem var ekki á sama stað og hann
er nú. En slys eru alltaf leiðinleg
og við höfum þegar gert ráðstaf-
anir og fært teiginn.“ ■
Vestfjarðagöng:
Þriggja bíla
árekstur
ÁREKSTUR Þrír bílar lentu í
árekstri í Vestfjarðagöngunum í
gærdag. Einn ökumaðurinn leit-
aði sér læknisaðstoðar vegna
minniháttar áverka, aðrir sluppu
við meiðsl.
Áreksturinn varð með þeim
hætti að sendibíll var á leið inn í
göngin Ísafjarðarmegin og olíu-
bíll á leið út og rákust þeir sam-
an. Skömmu síðar var fólksbíl
ekið aftan á sendibílinn. Bílarnir
voru óökufærir og þurfti að
draga þá af vettvangi. Loka
þurfti göngunum í klukkutíma. ■
Mótmæli á leiðtogafundi:
Lögreglan
beitti táragasi
GRIKKLAND, AP Gríska óeirðalög-
reglan beitti táragasi til að dreifa
mótmælendum í
bænum Þessa-
lóníku þar sem
leiðtogafundur
E v r ó p u s a m -
bandsins stendur
nú yfir.
H u n d r u ð
ó e i r ð a s e g g j a
drógu sig út úr
um 10.000 manna
hópi friðsamra
mótmælenda og
tóku að kasta
eldsprengjum,
grjóti og flöskum
að lögreglunni.
Árásunum var svarað með því að
sprauta táragasi á fólkið, sem
lagði skelfingu lostið á flótta.
Mikill meirihluti mótmælenda
tók ekki þátt í átökunum heldur
kaus að koma málstað sínum á
framfæri með friðsamlegri
hætti. ■
Æði rann á slátrara:
Stakk sex
þorpsbúa
FRAKKLAND, AP Mikil skelfing greip
um sig í þorpinu Salleboeuf í
Frakklandi þegar æði rann á mið-
aldra slátrara. Maðurinn hljóp viti
sínu fjær um götur bæjarins og
réðst með hnífi á þorpsbúa.
Slátrarinn kom fyrst við í bak-
aríi við hliðina á kjötverslun sinni
og stakk þar bakarann og einn við-
skiptavin í andlitið. Því næst hljóp
hann að aðaltorgi bæjarins og
stakk fjögur börn. Eitt fórnar-
lambanna liggur þungt haldið á
sjúkrahúsi eftir hnífstungu í
brjóstkassann.
„Við getum okkur þess til að
maðurinn hafi misst vitið en það
hefur ekki fengið staðfest,“ sagði
lögreglustjóri bæjarins. ■
VAXANDI ANDSTAÐA VIÐ EVRUNA
Andstaðan við evruna fer vax-
andi í Svíþjóð,
ef marka má
nýja skoðana-
könnun sem
birtist í Dag-
ens Nyheter.
Um 51% að-
spurðra sögð-
ust myndu
hafna aðild landsins að mynt-
bandalaginu í þjóðaratkvæða-
greiðslu í september. Um 35%
sögðust fylgjandi evrunni. Í síð-
asta mánuði sögðust 48% mundu
greiða atkvæði gegn evrunni.
MEINTUR BARNAMORÐINGI FYR-
IR RÉTT Réttarhöld yfir Belgan-
um Marc Dutroux, sem ákærður
er fyrir að hafa misnotað og myrt
fjölda barna, munu hefjast í mars
á næsta ári. Dutroux var hand-
tekinn fyrir tæpum átta árum
síðan og vakti mál hans athygli
um allan heim. Gert er ráð fyrir
því að það muni taka að minnsta
kosti mánuð að rétta yfir
Dutroux.
Samherjamenn sameina fyrirtæki í Þýskalandi:
Stórfyrirtæki í Evrópu
BALDVIN ÞORSTEINSSON VIÐ LÖNDUN Í SUNDAHÖFN
Samherji hefur keypt þýska fiskvinnslufyrirtækið Pickenpack og sameinað það Hussmann
& Hahn í Cuxhaven.
UNGUR
MÓTMÆLANDI
Þúsundir manna
eru komnir til
Grikklands til þess
að mótmæla
stefnu Evrópusam-
bandsins.
HLÍÐAVÖLLUR Í MOSFELLSBÆ
Tvö alvarleg slys hafa orðið á flötinni á
þriðju braut en þar fyrir ofan er teigur fyrir
næstu braut á eftir.
Tvö alvarleg slys hafa orðið á sama stað á golfvelli í
Mosfellsbæ:
Maður missti sjón og
kona fékk heilahristing
Aðstoðaði útlendinga við
að komast ólöglega til
landsins:
Sex mánaða
fangelsi
DÓMSMÁL Rúmlega þrítugur banda-
rískur ríkisborgari var dæmdur í
sex mánaða fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness í gær. Dóminn fékk
hann fyrir að hafa með skipulögð-
um hætti aðstoðað útlendinga við
að koma ólöglega til landsins eða
annars ríkis með viðkomu hér.
Fjórir Kínverjar voru stöðvaðir á
Keflavíkurflugvelli með vegabréf
sem voru fölsuð eða í eign annarra
aðila. Áður hafði hann aðstoðað tvo
Kínverja til að komast til Banda-
ríkjanna. Átti hann að fá 50 til 60
þúsund Bandaríkjadali fyrir hvern
þann sem kæmist á bandaríska
grund. Frá dómnum dregst óslitið
gæsluvarðhald mannsins frá því í
lok mars. ■
Sífellt minna vægi
fiskveiða innan ESB
Segir Örn D. Jónsson, prófessor og einn höfunda nýrrar skýrslu um
sjávarútvegsstefnu ESB. Krafan um aðgang að Íslandsmiðum er sögð
vera minni nú en áður.
FISKVEIÐAR
Í nýrri skýrslu um sjávarútvegsstefnu ESB er bent á að floti sambandsins hafi minnkað og
þrýstingur á aðgang að fiskimiðum Íslendinga sé minni nú en áður.
„Sjávarút-
vegsstefna
ESB hefur
verið að
breytast.