Fréttablaðið - 21.06.2003, Blaðsíða 24
Appelsínugult, neongrænt,sterkgult, skærblátt,
mínípils, sléttbotna skór, legg-
hlífar og gammosíur eru lykilorð
tískunnar í sumar. Þess utan
verða allir sem vilja vera flottir
að eiga Hensongalla eða annan
viðlíka íþróttagalla.
Vala Björk Ásbjörnsdóttir,
verslunarstjóri í Sautján í
Kringlunni, segir litagleðina
allsráðandi í sumar. Blanda má
öllum litum saman; aðalatriði
sé að vera nógu skrautlegur.
„Legghlífar og sokkar sem
krumpast niður eru mikið með
mínípilsunum. Við það ganga
konur í sléttbotna skóm í öll-
um litum. Gammosíur eru
einnig mikið notaðar við
mínípilsin,“ segir hún.
Buxurnar eru að þrengjast og
eiga nú að vera beinar niður þótt
að þær útvíðu sjáist mikið enn.
Bolir eru í öllum litum og nú er
mikið um að tveir litir séu notað-
ir saman. Innri bolurinn er þá
síðari og nær lengra fram á erm-
um. Vala segir að nú séu allir
jakkar stuttir með stroffi og ren-
nilás eins og var fyrir 20 árum.
„Það er ekki laust við að það sé
dálítið afturhvarf til áttunda
áratugarins eins og legghlífarn-
ar og gammósíurnar sýna. Ef
pilsin eru síðari þá eru mikið
núna hálfhringskorin pils sem
ná niður að hné eða rétt þar fyr-
ir neðan,“ segir hún.
Jogginggallar og íþróttaföt
eru klæðnaður sumarsins sem
aldrei fyrr. Hensongallarnir sem
voru hvað vinsælastir fyrir 20-
30 árum og voru þá að mestu
notaðir í íþróttum skrýða nú
konur á öllum aldri. „Það eru
engin aldurstakmörk þar því
konur allt yfir fimmtugt koma
og kaupa á sig Hensongalla,“
segir Guðný Ólafsdóttir í Deres.
Íþróttaskór eru notaðir við – og
jafnvel háhælaðir skór! – og þá
má segja að tískan sé komin í
hring. Hver man ekki eftir
krumpugöllunum þegar þeir
komu um árið? Þá þótti ekki par
fínt að ganga í há-
hæluðum skóm
við.
Skór með
í þ r ó t t a s n i ð i
eru þó mun vin-
sælli og er hægt
að fá hin ýmsu af-
brigði þeirra. Fylgi-
hlutir eins og belti eru í
öllum litum og mest er
um að þau séu einföld úr
striga.
Karlfatatískan er
alltaf íhaldssamari en þó
eru þar stökkbreytingar,
svo sem áprentaðar
skyrtur á baki. Bolir eru
meira en nokkru sinni
fyrr áprentaðir og nú er
í lagi fyrir karlmenn að
ganga í bol með blóma-
mynstri. Fötin eru úr
þvegnu flaueli og kakí
auk þess sem jakkaföt úr
gallabuxnaefni eru í mikilli
tísku. Hárið er að síkka og nú er
það bítlatískan sem þykir hvað
flottust. ■
24 21. júní 2003 LAUGARDAGUR
Sléttbotna skór,
hringskorin pils
og jakkar með stroffi
Tískan í sumar er ótrúlega litrík. Allar síddir af pilsum, támjóir
háhælaðir skór jafnt og sléttbotna en umfram allt í sterkum litum.
BOLIR OG GALLABUXUR
Í tísku í sumar eins og svo oft áður. Efnið í gallabuxurnar eru með
föstum krumpum á lærunum.
SKÓR Í ÖLLUM LITUM?
Allar konur gengu í skóm með þessu lagi fyrir 25 árum en skórnir í dag eru lit-
skrúðugari en þá. Hællin með svokölluðu klósettlagi.
SUMARIÐ ER Í MEIRA LAGI LITSKRÚÐUGT
Bolir í öllum litum, hringskorin pils og sokkarni krumpast á
leggjunum. Nú eiga allir jakkir að vera með stroffi.
HENSON GALLAR
30 ár eru síðan þeir
komu fyrst fram og
þá voru þeir
nákvæmlega eins og
þessi galli.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓ
BERT