Fréttablaðið - 21.06.2003, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 21.06.2003, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 21. júní 2003 Kristín Ómarsdóttir rithöfundurman greinilega eftir einu atviki úr sinni frumbernsku. „Ég hef verið milli tveggja og þriggja ára og vaknaði upp þennan dýrindismorg- un í voða góðu skapi. Það fyrsta sem ég geri þá er að setja plastpoka yfir hausinn á mér og valsa svo inn í svefnherbergi til pabba og mömmu, við bjuggum þá í blokk í Bogahlíð. Mér leið vel og fannst ég afskaplega fín, hálfmontin í raun með pokann, enda fór hann mér vel. En þar sem ég stend á svefnherbergisgólfinu hrekk ég skyndilega upp úr ham- ingjunni við lætin í foreldrum mín- um dauðskelkuðum sem rífa af mér pokann. Ég man ég stóð þarna og skildi ómögulega hvað var málið og hvers vegna þessi læti og tauga- veiklun voru skyndilega komin inn í áður flekklausan morguninn.“ ■ KRISTÍN ÓMARSDÓTTIR Man eftir sér með plastpoka á höfði og viðbrögð dauðskelkaðra foreldra hennar. Hjónin Þorvarður Þórðarsonog Guðríður Vestars eru mikið hundafólk og eiga fjóra hunda. Það er af sem áður var þegar Guðríður var svo hrædd við hunda að hún tók á sig stór- an krók ef hún mætti manni með hund. „Það breyttist í einni hendingu þegar ég kynntist Cavaliernum. Vinnustaður minn flutti þá í Glæsibæ, þar sem María Tómas- dóttir og eiginmaður hennar ráku verslun. Þau áttu einnig fallega Cavalier-hunda sem María var fyrst til að flytja inn til landsins. Hjá þeim sá ég þessa hundateg- und og það brá svo undarlega við að ég varð ekki hrædd við þessa hunda. Þvert á móti féll ég gjör- samlega fyrir þeim. Þegar ég svo kom heim einn daginn og sagði að mig langaði í hund missti fjöl- skyldan andlitið,“ rifjar Guðríður upp. Hún segist ekki vita hvers vegna þessir hundar hafi virkað svona á sig. „Þeir sem eiga svona hunda skilja það, því Cavalierinn er engum líkur,“ fullyrðir hún. Þau hjónin eignuðust fyrst Skut- uls-Tjörfa og ári seinna Ljúflings- Gáska. „Þorvarður féll gjörsam- lega fyrir hvolpinum þegar við sóttum hann og það varð ekki aft- ur snúið. Síðan hafa þessir hund- ar verið okkar helsta áhugamál,“ segir hún. Í fyrra fluttu þau inn þriðja hundinn af Cavalier-kyni frá Bret- landi en hann dó fyrir tveimur mánuðum úr nýrnasjúkdómi. „Það var okkur mikið áfall enda veiktist hann skyndilega og dó að- eins nokkrum dögum síðar.“ Fyrir nokkru kynntust þau nýrri hundategund sem þau féllu einnig fyrir eins og Cavaliernum forðum en það er Japanese Chin. „Þeir heita Kiki og Meme og eru mjög kelnir og hafa ekki ósvipað skap og Cavalierinn.“ Guðríður segist jafnan vera heima hjá þeim á morgnana og gefa þeim tíma sinn. „Þeir litlu sofa í búri saman á næturnar en þeir eldri eru í grind. Áður var það þannig að Tjörfi og Gáski sváfu uppi í hjá okkur og voru farnir að stjórna því hvenær við færum í rúmið. Það gat ekki geng- ið áfram og við tókum á því. Það kostaði grát í tvær, þrjár nætur og lítinn svefn en þeir áttuðu sig og eru nú sáttir við að fara í grindina sína,“ segir Guðríður. Fyrir nokkru lauk Guðríður námi í hundasnyrtingu í Bretlandi og nú vinnur hún alfarið við hunda. „Þeir eiga hug minn og hjarta og ég hef mikið yndi af að umgangast þá.“ bergljot@frettabladid.is GUÐRÍÐUR OG ÞORVARÐUR MEÐ HUNDANA SÍNA Guðríður vinnur nú eingöngu í kringum hunda, sem eru hennar helsta áhugamál. Þau hjón flytja einnig inn náttúruvænan hundamat. Var dauðhrædd við hunda Guðríður Vestars vann í banka og var hrædd við hunda. Þegar hún kynntist Cavalier hvarf hræðslan og hún féll gjörsamlega fyrir þeim. Nú á hún fjóra hunda og þar af tvo Japanese Chin. ■ GÆLUDÝRIÐ MITT Þegar ég svo kom heim einn daginn og sagði að mig langaði í hund missti fjölskyldan andlitið. ,, FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T ■ BERNSKUMINNINGIN Morgungleði og plastpoki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.