Fréttablaðið - 28.06.2003, Síða 12
12 28. júní 2003 LAUGARDAGUR
Fótboltaheimurinn virðist verabúinn að jafna sig eftir vista-
skipti David Beckham. Líkast til
magnast umræðan aftur þegar
nær dregur deildakeppnunum á
Englandi og Spáni. Enska deildin
hefst 16. ágúst og sú spænska
hálfum mánuði síðar.
Sir Alex Ferguson hefur áður
tekið umdeildar ákvarðanir í leik-
mannamálum á þeim tíma sem
hann hefur stýrt United. Sumarið
1995 seldi hann Paul Ince til Inter
Milano og Andrei Kanchelskis til
Everton og Mark Hughes fór til
Chelsea án endurgjalds. Þetta
gerði hann til að rýma til fyrir
ungum leikmönnum á borð við
Beckham, Butt og Scholes. United
steinlá í fyrsta leik gegn Aston
Villa og Alan Hansen lét þessi
fleygu orð falla: „Þú vinnur ekk-
ert með stráklingum.“ Strákling-
arnir unnu samt bæði deild og bik-
ar vorið eftir.
Hér á eftir verða rifjaðar upp
skoðanir nokkurra aðila á helstu
þáttum sölunnar á David Beck-
ham.
Ástæðan fyrir sölunni
„Yfirleitt þegar leikmaður á
eftir tvö ár af samningi sínum
endurnýjum við samninginn eða
sættum okkur við að það sé best
að hann fari annað og að við fáum
tekjur af sölunni,“ sagði Peter
Kenyon, stjórnarformaður
Manchester United, í viðtali við
Manchester Evening News. „Það
er hins vegar óskynsamlegt að
láta bestu leikmennina fara fyrir
ekkert þegar samningur þeirra
rennur út.“
Ted Beckham, faðir leikmanns-
ins, hefur aðra skoðun. „Ég virði
Alex Ferguson en í þetta skipti
gekk hann of langt. Mér finnst
hann hafa rekið rýting í bakið á
okkur. David sagði mér að hann
langaði til að spila, hann vildi ekki
veslast upp með varaliðinu. Hann
sá hvað kom fyrir Dwight Yorke
og hann vildi ekki að það sama
henti sig. Ég er viss um að hann
hefði skrifað undir nýjan samn-
ing. Hann á stórkostlegt hús og
fjölskyldunni leið vel.“
Alan Hansen hjá BBC velti fyr-
ir sér samskiptum Ferguson og
Beckham. „Umræðan hefur mikið
snúist um hvort Beckham hafi
verið seldur vegna vandamála
milli hans og Ferguson. Ég held að
það sé ekki rétt. Ég held að salan
sé fjárhagsleg ákvörðun.“
„Það var svo margt í daglegu
lífi Beckham utan vallar að kanns-
ki hefur Sir Alex Ferguson fund-
ist að hann hafi ekki verið 100%
trúr Manchester United.“ sagði
Mark Lawrenson, fyrrum sam-
herji Hansen í Liverpool-vörn-
inni, í dálki sínum á BBC-vefnum.
„Við höfðum samband við ráð-
gjafa Beckham um miðjan maí
með framlengingu á samningi
hans í huga en fengum ekki já-
kvæðar undirtektir,“ sagði
Kenyon við Manchester Evening
News. „Um svipað leyti höfðu
nokkur ítölsk og spænsk félög
samband við okkur og höfðu
áhuga á að kaupa Beckham. Ráð-
gjafar leikmannsins sögðu okkur
að erlend félög hefðu haft sam-
band við þá vegna Beckham. Eftir
þetta var það verkefni okkar að
ná réttum samningi fyrir félagið
og verkefni ráðgjafanna að gera
það sama fyrir Beckham. Ég held
að báðum hafi tekist það.“
Verðið
Phil McNulty, helsti fótbolta-
skríbent BBC, tekur svipaða af-
stöðu og United og segir að félag-
ið hafi fengið fullkomlega við-
unandi tilboð í 28 ára leikmann
sem var langt kominn með sinn
samning. „Það var skynsamlegt
að samþykkja tilboð í leikmann
sem er ekki inni í framtíðarplön-
um félagsins. Ferguson og
Manchester United vissu að það
var mögulegt að Beckham léti
samninginn renna út og þetta var
rétti tíminn til að selja.“
Arsene Wenger, framkvæmda-
stjóri Arsenal, telur hins vegar að
David Beckham hafi verið seldur
á „tilboðsverði“ vegna deilna
sinna við Ferguson. „Persónuleg
vandamál í samskiptum Beckham
og Ferguson lækkuðu örugglega
verðið.“
„Þegar allt kemur til alls er ég
sammála Wenger. Mér finnst að
David hafi verið seldur of ódýrt,“
sagði Ted Beckham.
Skóatvikið
Atvikið þegar Ferguson spark-
aði fótboltaskó í höfuð Beckham
eftis 0:2 tap gegn Arsenal í bikar-
keppninni komst aftur í umræð-
una þegar Beckham var seldur til
Real Madrid. Ted Beckham segir
að atvikið hafi ekkert með söluna
að gera. „Ég held að fram-
kvæmdastjóranum hafi verið
brugðið. Þetta hefði getað orðið
alvarlegt. Umtalið um að hann
hafi ekki beðist afsökunar er
bull.“
George Best telur að atvikið sé
ástæðan fyrir brotthvarfi Beck-
ham. Hann segir að þó Ferguson
og Beckham hafi reynt að gera lít-
ið úr því munum við síðar heyra
aðra sögu. „Við munum að
minnsta kosti heyra aðra sögu í
september. Ég hef það eftir áreið-
anlegum heimildum að David
verði ekki sami diplómatinn.
Hann mun segja allt.“
Lífið á Spáni
Alan Hansen velti fyrir sér
væntingunum sem bíða Beckham
hjá Real Madrid. „Nýir leikmenn
á Englandi fá yfirleitt tíma til að
laga sig að aðstæðum. Beckham
fær ekki tíma til þess enda eru
áhorfendur þar sérstaklega óþol-
inmóðir. En Beckham er maður
stóru stundanna og mun standast
álagið.“
Sjálfur sagði Beckham í sinni
yfirlýsingu: „Ég hef gengið til liðs
við stórkostlegt félag. Ef ég átti
einhvern tímann eftir að yfirgefa
United þá var það draumurinn að
fara til Real Madrid. Þegar United
fékk niðurstöðu í peningahliðina
lá endanleg ákvörðun hjá mér.
Fyrir mér er þetta góð ákvörðun.
Ég er orðinn leikmaður Real
Madrid og ég hlakka til. Þetta
verður spennandi fyrir alla fjöl-
skylduna mína.“
Áhrifin á Manchester
United
„Liðið hefur sannað, að vissu
marki, að Beckham er ekki
ómissandi,“ skrifaði Phil Mc-
Nulty. „Ruud van Nistelrooy og
Paul Scholes eru áhrifameiri
karakterar í Old Trafford-leikhús-
inu. Beckham verður ekki besti
Er viss um
að United
muni eflast
David Beckham telur að Manchester United
muni eflast en skiptar skoðanir eru um söluverðið,
styrk United án Beckham, áhrif skóatviksins,
aðdraganda sölunnar og flestu því sem snýr að
vistaskiptum leikmannsins.
BECKHAM OG ROBERTO CARLOS
David Beckham og Roberto Carlos hafa oft mæst í leikjum Manchester United og Real Madrid og Englands og Brasilíu. Þeir verða sam-
herjar frá og með næsta hausti.
BECKHAM
Frægasti leikmaður Bretlandseyja en ekki
eru allir á því að hann sé bestur.