Fréttablaðið - 28.06.2003, Síða 13
LAUGARDAGUR 28. júní 2003
leikmaður Real því hann var ekki
besti leikmaður United. Hann á
virðingu skilið fyrir feril sinn hjá
United. Hann átti þátt í sögu
United og verður minnst af hlý-
hug vegna þess en aldrei í sömu
andrá og George Best, Denis Law,
Bobby Charlton eða Eric Cantona.
Þeir yfirgáfu allir Old Trafford en
lífið hélt áfram. Beckham er að-
eins enn eitt nafnið á þessum
lista.“
Gary Neville, leikmaður
United, hafði svipaða afstöðu: „Ég
veit að Becks er sama þó ég segi
að félagið muni lifa af brotthvarf
hvaða leikmanns sem er, hvort
sem það er Cantona, Schmeichel,
Robson eða Hughes. Við munum
halda áfram eftir að Beckham er
farinn en hann skilur eftir margar
góðar minningar og hefur nokkr-
ar stórkostlegar með sér héðan.“
Arsene Wenger telur hins veg-
ar að salan marki endalok tíma-
bils á Old Trafford. „Einn þeirra
þátta sem gerðu Manchester öfl-
ugt er að hverfa og samstaða leik-
mannanna er að byrja að bresta.“
Mark Lawrenson bar saman
stöðu United og Juventus. „United
hefur tækifæri til að kaupa þrjá
leikmenn í heimsklassa í stað
Beckham svo ég held að þetta séu
frábær viðskipti af hálfu
félagsins. Þegar Juventus seldi
Zinedine Zidane til Real Madrid
héldu allir í Tórínó að það væru
endalokin hjá félaginu. Juventus
hefur unnið tvo titla síðan hann
fór.“
George Best segir hins vegar
að Sir Alex Ferguson hafi gert
stórkostleg mistök í því að selja
Beckham til eins af keppinautum
United í Meistaradeildinni. „Þetta
eru stórkostleg mistök sem Alex
Ferguson mun iðrast. Hann hefur
látið tilfinningarnar ráða.“
Roy Keane sagði: „Það er leið-
inlegt að hann sé að fara en ég
veit að framkvæmdastjórinn ger-
ir það sem er best fyrir Manchest-
er United. Ef hann telur það best
fyrir United að selja Becks þá er í
lagi að hann geri það.“
Beckham sagði í kveðjuyfirlýs-
ingu sinni: „Ég óska Manchester
United góðs gengis og með jafn
áhrifamikinn fyrirliða og Roy
Keane er ég viss um að liðið mun
halda áfram að eflast.“ ■
ALEX FERGUSON OG DAVID BECKHAM
Framkvæmdastjórinn og leikmaðurinn
hafa unnið saman í rúman áratug.