Fréttablaðið - 28.06.2003, Page 18
Flestum bílum er fært í Kerl-ingarfjöll yfir sumarmánuð-
ina. Áætlunarbílar ganga frá
Reykjavík og Akureyri yfir Kjöl
yfir sumartímann og lagt er af
stað að morgni frá báðum stöðum.
Það tekur um það bil 3-4 tíma að
aka frá Reykjavík eða Akureyri
til Kerlingarfjalla. Áætlunarbíl-
arnir fara ekki í Kerlingarfjöll, en
hægt er að hringja í síma 852 4223
áður en lagt er af stað og láta
sækja sig gegn vægu gjaldi á
vegamót Kjalar og Kerlingar-
fjallavegar.
Veitingastaður er á staðnum
fyrir allt að 80 manns, setustofa
og svefnpokapláss fyrir 28.
Einnig er hægt að gista í smáhýs-
um, þannig að 120 manns geta
hæglega gist innanhúss. Þá eru
tjaldstæði á eyrum Ásgarðsár.
Á staðnum eru baðhús, heitir
pottar og lítil dísilrafstöð, en raf-
magn er að mestu framleitt í
Sælufossvirkjun. Fyrir yngri kyn-
slóðina eru trampólín og rólur og
að sjálfsögðu umhverfi sem gleð-
ur jafnt unga sem aldna. Þá er á
svæðinu hestagirðing og aðstaða
til að taka á móti stórum hópum
hestamanna. ■
Áhugamannafélagið Fannborg,sem meðal annars samanstend-
ur af gömlum Kerlingarfjallajöxl-
um, ákvað fyrir þremur árum að
Kerlingarfjallasvæðið mætti ekki
drabbast niður þrátt fyrir snjóleys-
ið og nú er þarna frábær aðstaða
fyrir ferðamenn. Munurinn er bara
sá að í dag skilur fólk skíðin eftir
heima, en tekur í staðinn með sér
góða gönguskó. Þar með er því ekk-
ert að vanbúnaði að leggja land
undir fót og virða fyrir sér nátt-
úruperlurnar.
Í Kerlingarfjöll er farið frá
Kjalvegi inn, yfir þrjú vatnsföll,
Fossrófulæk, sem er lítill og mein-
laus, Blákvísl, sem er nokkuð
stærri, en hættulaus yfir að fara,
og Ásgarðsána, sem nú hefur verið
brúuð. Þegar komið er yfir Ás-
garðsána er ekið upp allbratta
brekku og síðan eftir malarási með
gil Ásgarðsárinnar á hægri hönd.
Stuttu síðar opnast sýn inn í Ás-
garð, þar sem Fannborg hefur
byggt upp aðstöðu sína.
Glaðbeittir vinnumenn
Í Kerlingarfjöllum þessa helgi
voru glaðbeittir harðjaxlar við
vinnu og rétt nýbúnir að leggja
nýjan dúk á eldhúsgólfið þegar
blaðamaður leit inn. „Það kom nú
reyndar í ljós að gólfið var morkið
undir vaskinum og ekkert við því
að gera nema smíða nýtt gólf,“
sögðu smiðirnir brosmildir og
horfðu stoltir yfir dagsverkið. Á
öðrum stað var verið að rífa niður
gamla innganginn í aðalbygging-
unni, koma hreinlætisaðstöðunni í
gagnið, hreinsa smáhýsin, sem
„heimamenn“ kalla nípur, og gera
allt klárt fyrir ferðamenn. Ráðs-
maðurinn var mættur ásamt eigin-
konu og dóttur og fyrr en varði
voru komnir dúkar og blóm á borð,
að ógleymdri snarkandi matarlykt-
inni, sem barst um húsið og æsti
upp hungrið í viðstöddum.
Snjórinn farinn – en svæðið
dýrðlegt eftir sem áður
Jónas Kjerúlf er Fannborgar-
maður og bílstjóri til fjölda ára.
Hann kann margar sögur af svaðil-
förum í fjöllin og það örlar á
eftirsjá þegar Jónas rifjar upp
gömlu ferðirnar. En nú hefur skíða-
iðkun lagst af sökum breytinga í
snjóalögum og því er áherslan lögð
á gönguferðir og aðra útivist.
Það er næstum hægt að segja að
Jónas þekki Kerlingarfjöllin eins
og lófana á sér, en hann segir fjöll-
in þyrpingu tinda og eggja sem nái
yfir um það bil 150 ferkílómetra
svæði. „Ferðafélag Íslands byggði
skála í Ásgarði 1937-38,“ segir
Jónas, „en það var svo ekki fyrr en
1961 sem menn fóru að kanna
möguleika til skíðaiðkunar í Kerl-
ingarfjöllum. Þar fór auðvitað
fremstur í flokki Valdimar Örn-
ólfsson, en í framhaldi af því hóf
félagið Fannborg ehf. starfsemi
árið 1963.“
Félagið byggði upp öfluga starf-
semi í Ásgarði, gisti- og mötuneyt-
isaðstoðu, vatnsveitu, rafveitu, frá-
veitur, heita potta, skíðalyftur, vegi
og annað sem til þurfti vegna starf-
seminnar. Fjöllin sjást mjög langt
að og hæstu tindarnir eru í 1.500 m
hæð yfir sjó. Hæstu tindarnir eru
Loðmundur, sem er 1.432 m, og
Snækollur, sem er allra hæstur, eða
1.477 m.
Kerlingin í fjöllunum
Kerlingin sem fjöllin draga nafn
sitt af er samkvæmt gamalli þjóð-
trú af tröllkonuætt, um 25 metra
hár drangur úr móbergi sem stend-
ur sunnan í Kerlingartindi. „Sam-
kvæmt gamalli trú er talið að þar
sé komin tröllkerling sem dagaði
uppi og varð að steini,“ segir Jónas.
„En vegna þess hversu sárasjaldan
menn fóru á þessar slóðir fyrr á
öldum er svæðið lítt þekkt. Þjóð-
sögur benda þó til að Kerlingarfjöll
hafi fyrrum verið griðarstaður úti-
legumanna og trölla,“ segir hann
og bendir á að ofan af Snækolli sé í
góðu skyggni hægt að sjá til hafs
bæði í suðri og norðri. „Þá má ekki
gleyma jarðhitasvæðinu sem er á
söðlinum milli ánna, en það mun
vera meðal stærstu jarðhitasvæða
á landinu,“ segir Jónas.
Vinnugleðin og fjörið smitandi
Meðan á dvöl blaðamanns í
Kerlingarfjöllum stóð gerðust þar
undur og stórmerki. Ungir og
gamlir voru virkjaðir til vinnu og
undir skemmtilegri og öruggri
leiðsögn Friðriks Pálssonar, eins
stjórnarmanna í Fannborg, og
Jónasar Kjerúlf, fékk blaðamaður
að upplifa ævintýri engu líkt. Með-
al annars var farið niður á Hvera-
svæðið í brúarsmíði, bílnum lagt á
tindinum og brúarefnið borið niður
brattar fjallshlíðarnar, sem blaða-
manni fannst að væru að minnsta
kosti milljón, ef ekki „skrilljón“
metra háár. Jónas var þó fljótur að
leiðrétta þann misskilning og gerði
þar með afrekið ögn ómerkara. En
gaman var það. Brúin var smíðuð í
grenjandi slagveðri og sól á víxl og
stendur nú í botni dalsins svo
ferðamönnum sé auðvelt í framtíð-
inni að komast að gönguleiðum hin-
um megin árinnar. Eftir dýrðlegan
kvöldverð var svo lagt af stað í
ökuferð um fjöllin og endað í pott-
inum góða inn með Ásgarðsá, sem
var á föstudagskvöldinu gamalt
ryðgað baðkar, en hafði deginum
eftir verið breytt í náttúrulegan
pott með gosbrunni í miðjunni.
Paradís í einskismannslandi, langt,
langt úti í óbyggðum.
edda@frettabladid.is
18 28. júní 2003 LAUGARDAGUR
Hole in One • Bæjarlind 1-3 • sími 577 40 40 • www.holeinone.is
Golfskór
TILBOÐ
6.500
FARA GOLFSKÓR
4.500KR
TILBOÐ
NÝTT Í HOLE
IN ONE
6.500
FARA GOLFSKÓR
4.500KR
TILBOÐ
„Bjarnastaða-
beljurnar“ ekki
lengur aðalsmellurinn
Ekkert mál að komast
í Kerlingarfjöll
GAMLI INNGANGURINN FÉKK AÐ
FJÚKA
Nú er inngangurinn virðulegri eins og
sæmir alvöru gistiskála.
AÐALSKÁLINN Í KERLINGARFJÖLLUM
Boðið er upp á gistingu fyrir allt að 120
manns í aðalskála og smáhýsum í kring.
HEITUR POTTUR VIÐ BORHOLUNA
Þegar keyrt er um það bil kílómetra upp
með Ásgarðsánni blasir við þessi dýrðlegi
pottur, sem rúmar auðveldlega 20 manns.
JARÐHITASVÆÐIÐ ER FEGURRA EN ORÐ FÁ LÝST
Á Kerlingarfjallasvæðinu eru merktar gönguleiðir, sem henta bæði vönum göngugörpum
og þeim sem styttra eru komnir.
SMIÐIRNIR LÉTU SIG EKKI MUNA UM
AÐ BYGGJA NÝTT GÓLF
„Ef gólfið er morkið byggjum við bara
nýtt,“ sögðu þeir. Svo var dúkurinn lagður.
Þegar blaðamann bar að garði í Kerlingarfjöllum um miðjan mánuðinn var þar
allt á útopnu og menn unnu sér engrar hvíldar við að undirbúa svæðið fyrir ferða-
menn sumarsins. Það er nefnilega reginmisskilningur að ekkert sé um að vera í
Kerlingarfjöllum eftir að snjórinn hvarf.