Fréttablaðið - 28.06.2003, Page 28
28. júní 2003 LAUGARDAGUR28
FOOSBALL
Talið er að leikurinn hafi fyrst orðið til í Þýskalandi á þriðja áratug síðustu aldar. Þar í landi, og víðs vegar í Evrópu, er spilið jafn al-
gengt á börum og billjardborð eða píluspjald.
GULL PLÁNETTAN m/ísl. kl. 2
JOHNNY ENGLISH kl. 2, 3.45
THE MATRIX R.. 5.30, 8, 10.30 b.i 12
BRINGING DOWN... kl. 3.45, 5.50, 8, 10.20
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i. 12 ára
kl. 6NÓI ALBINÓI
kl. 4, 6, 8 og 10 RESPIRO
kl. 4JOHNNY ENGLISH
kl. 2, 4, 6, 8 og 10
TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl. kl. 2 og 4
ANGER MANAGEMENT 5.45, 8 ,10.30
Sýnd kl. 5.30, 8, og 10.30 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 b.i. 12
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 POWERSÝNING
Sýnd í lúxus kl. 2, 4, 6, 8 og10 b.i 14
kl.3.40, 5.50 8, 10.15HOW TO LOSE A...
4, 8 og 10 b.i. 16FILMUNDUR: TRICKY LIFE
XMEN kl. 10.15 bi 12
AGENT CODY B... kl. 3, 5.30 og 8
SKÓGARLÍF 2 m/ísl. kl. 2 og 4
KANGAROO JACK kl. 2, 4, 6, 8 og 10
DARK BLUE kl. 5.40, 8, 10.20 b.i 16
Sköftum snúið til sigurs
Á morgun verður fyrsta opinbera mótið í Foosball haldið á Bar 11 við Laugaveg
11. Þar hafa áhugamenn á þessum sérkennilega borðleik æft sig og keppt sín á
milli frá opnun staðarins. Nú er að færast alvara í leikinn.
■ ■ SKEMMTANIR
21.00 Fjölmenningarhljómsveitin
Spaðarnir kemur í Ketilhúsið og
skemmtir með léttri tónlist, upplestri,
söng og dansi.
Gunnar Óla og Einar Ágúst úr
Skítamóral leika og syngja lög eftir sjálfa
sig og aðra á Ásláki í Mosfellsbæ.
Sumardjamm FM957 á Sauðárkróki
en þar mun Á móti sól halda dansleik í
Miðgarði, Skagafirði.
Hljómsveitin Írafár á Hótel Egils-
búð í Neskaupstað.
Trúbadorinn Óskar Einarsson
skemmtir á Ara í Ögri.
Gullfoss og Geysir verða í sveittri
sveiflu á Kjallaranum.
Stuðbandalagið frá Borgarnesi
skemmtir á Kringlukránni.
Hljómsveitin Dikta leikur á Grand
Rokk.
Hljómsveitin Spútnik ætlar að
halda dúndrandi sumardansleik í Útlag-
anum á Flúðum.
Halli Reynis leikur á Catalinu í
Hamraborg.
Threesome og Garðar Garðars
leika á Celtic Cross.
Hljómsveitin Í svörtum fötum leik-
ur á Gauknum.
Hljómsveit Rúnars Júlíussonar leik-
ur á Græna hattinum á Akureyri.
Stórsveit Ásgeirs Páls leikur á
Gullöldinni.
Hljómsveit Rúnars Þórs leikur á
Ránni í Reykjanesbæ.
Hljómsveit Harðar G. Ólafssonar
á Oddvitanum Akureyri.
Papar leika á Players í Kópavogi.
Dj Sesar spilar á Spotlight.
Land og synir í Stapanum, Kefla-
vík.
Fyrsti dansleikur sumarsins með
Geirmundi Valtýssyni í Úthlíð, Biskups-
tungum.
Hljómsveitin Fjandakornið leikur á
Vídalín.
Þór Óskar trúbador spilar á Kránni
Laugavegi 73.
sniðin að þörfum
húðarinnar
með mildum ilmi
Krem
sápa
ph 3,5
e
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
2
8
5.
0
18
hvað?hvar?hvenær?
25 26 27 28 29 30 1
JÚNÍ
Laugardagur
Hingað til hefur það verið velþekkt á ölstofum bæjarins að
menn beri saman færni sína í pool,
billjard eða pílukasti. En lengi vel
var borðfótboltaspil, eða foosball
eins og Kanarnir vilja kalla það,
hvergi að finna. Nú hefur orðið
breyting á því á hinum nýopnaða
Bar 11 er að finna borðfótboltaspil
á efri hæð hússins. Þar hafa gestir
tekist á frá opnunardegi og þykja
nokkrir þeirra vera orðnir afar
færir í því að snúa sköftunum. Það
er því kannski ekkert undarlegt að
nú sé að færast alvara í leikinn. Á
morgun hefst fyrsta opinbera mót
staðarins.
„Það eru nokkrar gamlar fé-
lagsmiðstöðvarottur hérna sem
eru orðnar útúrgóðar í þessu,“
segir Andri Viðarsson, dagskrár-
gerðamaður X-ins 977 á daginn og
áhuga foosball-spilari á kvöldin.
„Einn þeirra er t.d. Bjössi „Kid“ ,
trommari Mínus, sem er alveg
svakalegur. Hann var líka starfs-
maður í félagsmiðstöð í mörg ár.
Úlli, söngvari Stjörnukisa, er svo
baneitraður spilari. Einnig má
nefna Rikka og Guðna, þeir eru
með svakalegt lið. Alveg „dedd-
lí“.“
Andri segir að fastagestir stað-
arins hafi pressað á eigandann um
að halda svona mót, enda menn
orðnir „sjóðheitir“ í það að fá við-
urkenningu fyrir spilamennsku
sína. Andri tekur sjálfur þátt og
segir hann að síðast þegar hann
gáði hafi um fimmtán lið verið
búin að skrá sig. Keppnin hefst
ekki fyrr en kl. 21 annað kvöld og
stendur skráning yfir fram að því.
Snerpa er samkvæmt Andra
það fyrsta sem leikmenn verða að
tileinka sér eigi þeir að ná árangri.
Mikilvægt er að samhæfa hend-
urnar vel því stranglega bannað er
að „spinna“ í svona mótum, en það
kallast það þegar menn snúa köll-
unum í stöðuga hringi í von um að
hitta á boltann og skora í slysni.
„Menn eru komnir á það stig að
vera með smá stæla og sýna
brögð. Hliðarskot, spil og svo
framvegis. Menn eru að sýna ótrú-
legustu tækni á borðinu.“
Dómari frá húsinu mun sjá til
þess að menn haldi sig við leik-
reglurnar en þær eru mjög harðar.
Ef menn taka t.d. upp á því að
skora með því að „spinna“ fær sá
stigið sem skorað var hjá.
Sigurlaunin eru glæsilegur far-
andsbikar og nokkrir kassar af
bjór. En truflar það ekkert snerpu
að spila stöðugt undir áhrifum?
„Hmm, ég bara veit það ekki,“
svarar Andri hissa. „Sumir hérna
hafa ekkert spilað þetta öðruvísi.
Ég held að maður sé alltaf bestur í
þessu þegar maður er kominn á
svona annan bjór.“
Keppt verður í fyrsta riðli ann-
að kvöld, en eftir það verður keppt
á öllum sunnudögum þar til úrslit
ráðast.
biggi@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ/INGÓLFUR
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga.
ÚTSALA
ÚTSALA