Fréttablaðið - 28.06.2003, Side 37
37LAUGARDAGUR 28. júní 2003
■ Hreyfingin mín
Þar sem ég sé ekki til að keyrafer ég flestra minna ferða fót-
gangandi. Í því felst mikil hreyf-
ing,“ segir Helgi Hjörvar alþing-
ismaður, sem fyrir bragðið er í
ágætu formi: „Í sæmilegu formi,“
segir hann. Þá syndir Helgi ekki
ósjaldan í sundlaugum höfuðborg-
arinnar, sækir líkamsræktarstöð
endrum og sinnum og svo eru það
gönguskíðin: „Geri sitt lítið af
hverju en helst eru það göngurnar
sem halda mér við.“ ■
72 ÁRA „Ég er fluttur upp í Lækjar-
botna og hér ætla ég að njóta lífs-
ins á afmælisdaginn,“ segir Jakob
Jakobsson, fiskifræðingur og
fyrrum forstjóri Hafrannsókna-
stofnunar, sem er 72 ára í dag.
Jakob og eiginkona hans festu
kaup á sumarbústað í Lækjar-
botnum fyrir rúmum 30 árum og
hafa búið þar á sumrin lengi vel:
„Hingað þótti mér gott að koma
eftir þrasdag í vinnunni og þykir
enn. Ekkert sjónvarp en það gerir
ekkert til því ég á svo skemmti-
lega konu,“ segir Jakob og á þar
við Margréti Jónsdóttur, fyrrum
fréttamann Ríkisútvarpsins, en
þau hjón hættu störfum á sama
degi fyrir tveimur árum þegar
Jakob varð sjötugur. „En konan er
miklu yngri en ég,“ segir Jakob,
sem gerir ekki ráð fyrir miklum
veisluhöldum í tilefni dagsins.
Segir þau hjón una hag sínum vel
í sumarhúsinu við lestur góðra
bóka, spjall og tónlist. Og svo
ganga þau mikið: „Það er mann-
skepnunni mikilvægt að hreyfa
sig þegar hún er komin á þennan
aldur – ekki síður en fiskunum.
Við göngum hér um allt og á fjöll.
Erum nú að undirbúa fimm daga
gönguferð um hálendið upp af
Skagafirði,“ segir Jakob en á af-
mælisdegi hans í fyrra voru þau
hjón í fjallgöngum í Ölpunum.
„Það er alltaf gott veður á afmæl-
isdeginum mínum, sérstaklega
man ég eftir frábæru veðri þegar
ég varð sextugur 1991.“
Jakob og Margrét fá sér lík-
lega eitthvað gott að borða í Lækj-
arbotnum í kvöld að lokinni
gönguferð. Jakob segist ágætur
kokkur og sjá um hversdagsmat-
inn: „Veislumaturinn er hins veg-
ar á könnu konunnar,“ segir hann
svo það hlýtur að koma í hlut Mar-
grétar að skerpa undir pottunum
á afmælisdegi bóndans.
eir@frettabladid.is
JAKOB JAKOBSSON
Alltaf gott veður þegar hann á afmæli. Sérstaklega var það gott þegar hann varð sextugur 1991.
Skemmtileg
kona í stað sjónvarps
Afmæli
JAKOB JAKOBSSON
■ fiskifræðingur er 72 ára í dag. Hann er
fluttur upp í Lækjarbotna þar sem hann
dvelur á sumrin ásamt eiginkonu sinni og
plumar sig vel. Segist í fínu formi enda
hreyfi hann sig mikið, en það sé mann-
fólkinu ekki síður mikilvægt en fiskunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó
LF
U
R
Fimm Útkallsbækur ÓttarsSveinssonar blaðamanns eru
komnar út í kiljum en í þeim segir
Óttar sannar frásagnir af slysum
og björgunum. Í Útkall TF-SIF/-
TF-LÍF er úrval frásagna úr
fyrstu bók Óttars, Útkall Alfa-TF-
SIF og fjórðu bók hans, Útkall TF-
LÍF. Þar eru sannar og áhrifaríkar
sögur þyrluflugmanna Landhelg-
isgæslunnar og fólks sem þeir
hafa bjargað þar sem barist var
upp á líf og dauða.
Útkall Geysir er horfinn segir frá
einu mesta björgunarafreki Ís-
landssögunnar þegar áhöfn Geys-
is er bjargað af Vatnajökli.
Í Útkall á jólanótt lýsa fimm skip-
brotsmenn af ms. Suðurlandi ótrú-
legri vist um borð í hálfbotnlaus-
um gúmbáti eftir að skip þeirra
sökk á jólanótt 1986.
Útkall í Djúpinu greinir frá því
þegar tugir breskra og íslenskra
fiskiskipa lenda í versta illviðri í
manna minnum í febrúar árið
1968. Bókin hefur einnig verið
gefin út í enskri þýðingu, Doom in
the Deep, sem er hugsuð fyrir er-
lenda ferðamenn og gjöf til vina
hér heima sem erlendis. Doom in
the Deep verður væntanlega gefin
út erlendis síðar á árinu.
Vaka-Helgafell hefur gefið út íkilju metsölubókina Hvernig
á því stendur að karlar hlusta
aldrei og konur geta ekki bakkað
í stæði. Í þessari óvenjulegu bók
er leitast við að út-
skýra hvernig á
því stendur að
karlar og konur
eru svo ólík sem
raun ber vitni.
Höfundarnir
byggja á nýjustu
rannsóknum á starfsemi heilans,
eigin athugunum og viðtölum við
fólk um allan heim. Niðurstöður
þeirra hafa vakið mikla athygli
og umræður, enda oft á skjön við
ríkjandi skoðanir um hlutverk og
jafnrétti kynjanna. Bókin hefur
komið út víða um heim og setið
vikum saman á metsölulistum.
■ Nýjar bækur