Fréttablaðið - 28.06.2003, Page 38

Fréttablaðið - 28.06.2003, Page 38
Maður lærir að setja vissmörk. Ég finn oft fyrir því í lok dags að ég er mjög orkulaus,“ segir Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri hjá Útfararstofu Ís- lands, aðspurð hvort hún taki starf sitt inn á sig. Nýlega fór af stað auglýsinga- herferð gegn umferðarslysum. Ein myndanna þar er sérlega dramatísk en þar er Bryndís í hlutverki útfararstjóra og er í ákveðnum skilningi að leika sjálfa sig. „VÍS hafði samband við mig og sagði mér frá þjóðarátaki gegn umferðarslysum. Forvarnarher- ferðin byggir á því að ræða við að- ila sem kynnast afleiðingum um- ferðarslysa í starfi. Þar er talað við lækna, lögreglumenn, sjúkra- flutningamenn, sjúkraþjálfara og svo útfararstjóra – sem er ákveð- in endastöð.“ Bryndís segist hafa kunnað ágætlega við sig í hlutverki ljós- myndafyrirsætu en leggur áherslu á alvöru málsins. Hún segir gott að geta lagt eitthvað af mörkum af sinni reynslu geti það orðið til góðs og vakið til umhugs- unar. Og júní og júlí eru hættuleg- ustu mánuðirnir. En á henni er að heyra að hún hafi verið tvístíg- andi. „Þetta er náttúrlega mjög við- kvæmt og þó að ég komi þarna fram fyrir hönd Útfararstofu Ís- lands er þetta alls ekki ætlað sem auglýsing fyrir hana heldur er ég þarna í hlutverki útfararstjóra.“ Bryndís hefur starfað sem út- fararstjóri í tvö ár með hléum en samhliða guðfræðinámi, sem hún nú hefur lokið, starfaði hún sem kirkjuvörður að sumri til og kynntist starfinu þá. Hún segir ekki frítt við að fólk hafi ákveðna fordóma gagnvart starfi sínu. „Fólk náttúrlega deyr – það eina sem vitað er er að við fæðumst og við deyjum. Sumum finnst dauðinn óhugnanlegur. Þegar fólk veit hvað ég geri, en við sækjum látna ein- staklinga, klæðum og snyrtum – töluverður tími fer í að laga fólk til eftir umferðarslys – þá heyri ég að sumum finnst þetta svoldið hrylli- legt. Jú, fólk er forvitið um starfið.“ jakob@frettabladid.is Hrósið 38 28. júní 2003 LAUGARDAGUR TÓNLIST „Hér er brjáluð blíða og yndislegt veður,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás 2, sem nú er á Hró- arskelduhátíðinni í Danmörku og sendir þaðan út tónlist og tal. „Hér er uppselt en seldir voru 75 þúsund miðar. Þá er starfsfólk hátíðarinnar um 18 þúsund tals- ins og af öllu þessu fólki trúi ég að Íslendingar séu ekki færri en þúsund hér,“ segir útvarpsmað- urinn. „Hér er mikið fjör og á sunnudaginn verður ókeypis inn fyrir alla fimmtuga og eldri.“ Ólafur Páll Gunnarsson er fæddur og uppalinn á Akranesi en flutti alfarið til höfuðborgar- innar 1991. Hóf hann þá störf sem tæknimaður á Ríkisútvarp- inu en söðlaði yfir í dagskrár- gerð fimm árum síðar. Gegnir hann nú starfi tónlistarstjóra Rásar 2. Óli Palli, eins og hann er yfirleitt kallaður, er 34 ára og býr í Hafnarfirði ásamt eigin- konu sinni, Stellu Maríu Sigurð- ardóttur, sem starfar hjá Ís- lenskri erfðagreiningu. Saman eiga þau tvö börn, Ólaf Alexand- er, átta ára, og Tinnu Maríu sem er tíu ára. „Sjálfur spila ég vart á hljóð- færi en er gítareigandi og spila oft mér til ánægju en öðrum til ama. Svo syng ég stundum þegar sá gállinn er á mér og öðrum,“ segir Óli Palli í Hróarskeldu, sem heitir Roskilde á dönsku og hefur fóstrað marga af bestu sonum Danmerkur; þar á meðal skáldið H.C. Andersen. ■ Persónan ÓLAFUR PÁLL GUNNARSSON ■ útvarpsmaður er á Hróarskeldu- hátíðinni í Kaupmannahöfn ásamt 80 þúsund öðrum. Hann er rafeindavirki ofan af Skaga. Imbakassinn ...fær Hæstiréttur Bandaríkjanna fyrir að hnekkja lögum í Texas sem meðal annars bönnuðu náin samskipti samkynhneigðra. Fréttiraf fólki Ókeypis fyrir fimmtuga Sú ákvörðun lögreglunnar aðvísa mótmælendum frá hátíð- arhöldunum á Austurvelli á 17. júní hefur vakið nokkra athygli og mörgum þykir yfirvaldið hafa sýnt tjáningarfrelsinu lítilsvirð- ingu með uppátækinu. ÍTR og þjóðhátíðarnefnd eru aðstandend- ur samkomunnar og Kolbeinn Óttarsson Proppé hefur tekið málið upp innan stjórnar ÍTR. Á síðasta stjórnarfundi lét hann færa til bókar spurningar sínar til lögreglunnar um hver hafi ákveðið að vísa mótmælendunum frá og að beiðni hvers. Nokkur orðaskipti urðu á fundinum vegna málsins og Kjartan Magn- ússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, er til dæmis mjög á öndverð- um meiði við Kolbein. Málinu var vísað til þjóðhátíðarnefndar, sem fundar ekki fyrr en 12. ágúst. Það vill svo skemmtilega til að Kol- beinn og Kjartan eiga báðir sæti í nefndinni og munu því væntan- lega takast frekar á um málið þegar nefndin fundar. ■ Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að ný lög í Texas um samneyti samkynhneigðra karl- manna gilda ekki í samnefndum söluturni við Ingólfstorg. ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Texas. Á Selfossi. Eminem. Súlumót frá formaco ● úr pappa ● einföld og þægileg í notkun ● fæst í mörgum lengdum og breiddum Gylfaflöt 24-30 • 112 Reykjavík Sími 577 2050 • Fax 577 2055 formaco@formaco.is • www.formaco.is Hættið þessu, krakkar! Þið getið orðið svona! Mér er alvara! 1 6 7 8 9 10 11 13 14 15 12 2 3 4 5 Lárétt: l hrörlegar, 6 beiskar, 7 kraftur, 9 setur takmörk, 10 sælu, 13 kyrr, 14 ullarvinna, 15 kýs. Lóðrétt: 1 stór hönd, 2 kjána, 3 segir öðruvísi, 4 einkenni, 5 skundar, 8 rykkorn, 11 askur, 12 sunna, 14 drykkur. Lausn: Lárétt: 1hrumar, 6ramar, 7atorka, 9markar, 10unir, 13rór, 14tó,15vel. Lóðrétt: 1hrammur, 2rata,3umorðar, 4mark,5arkar, 8ar, 11nói,12sól, 14te. ÓLAFUR PÁLL GUNNARSSON Gítareigandi og tónlistarstjóri Rásar 2 á útihátíð í Danmörku. BRYNDÍS VALBJARNARDÓTTIR Leikur sjálfa sig í auglýsingunni. Það getur tekið langan tíma að laga lík til eftir umferðarslys. Sumum finnst dauð- inn óhugnanlegur Auglýsingar BRYNDÍS VALBJARNARDÓTTIR ■ leikur útfararstjóra í auglýsingaherferð VÍS gegn umferðarslysum. Sjálf er hún útfararstjóri og segir ákveðinna fordóma gæta gagnvart hinu viðkvæma starfi sínu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.