Fréttablaðið - 05.09.2003, Qupperneq 20
SELFOSS Kaupfélag Árnesinga tapar
líklega 460 milljónum króna á
gjaldþroti eignarhaldsfélagsins
Brúar.
KÁ á 140 milljóna króna hlutafé
í Brú og hefur lánað Brú aðrar 140
milljónir, sem allt tapast með
gjaldþroti Brúar. Þá eru 180 millj-
óna króna kröfur gerðar á KÁ
vegna ábyrgða fyrir eignarhaldsfé-
lagið Brú. Stjórn KÁ véfengir rétt-
mæti sumra krafanna.
Hafliði Þórsson, fyrrverandi
stjórnarmaður í Brú og hluthafi í
félaginu, er í ábyrgðum fyrir ýms-
um reikningum svo nemur
nokkrum milljónum króna. Fyrir-
tæki hans, Ísoport, á 30 milljón
króna hlut í Brú. Hafliði segir ekk-
ert samráð hafa verið haft við sig
sem hluthafa áður en stjórnin
ákvað að lýsa félagið gjaldþrota. Þá
segist Hafliði ekki hafa verið boð-
aður á fund með almennum kröfu-
höfum, sem haldinn var nýlega, en
hann er einn af þeim sem eiga al-
menna kröfu á félagið eftir að hafa
lánað því fé.
Annað fyrirtæki í eigu Hafliða,
útgerðarfyrirtækið Njörður, átti
líka 24 milljóna hlut en seldi Olíu-
félaginu Essó hlutinn upp í við-
skiptaskuld. Essó hljóp svo undir
bagga með KÁ í vor þegar nauð-
ungarsala stóð fyrir dyrum hjá Brú
og ábyrgðist ríflega 15 milljóna
króna víxla til að forða Brú frá
uppboði. Þá víxla hefur Essó greitt.
Olíufélagið mun líka hafa lagt 6,5
milljónir króna í fyrirtækið X-ferð-
ir, sem var dótturfyrirtæki KÁ en
er nú gjaldþrota. Hlutafénu hefur
Esso nú tapað og líklega vænum
hluta af kröfunum tveimur sem nú
bætast í almenna bunkann hjá KÁ.
Olíufélagið á líka almennar við-
skiptakröfur á KÁ vegna reksturs
söluskálanna. ■
■ Lögreglufréttir
21FÖSTUDAGUR 5. september 2003
„Nú liggur fyrir að tæki, raflagn-
ir, pípur, leiðslur eða því um líkt
valda truflun á rekstri fjar-
skiptavirkis og er fjarskipta-
fyrirtæki þá heimilt að krefjast
úrbóta frá eiganda án tafar, en
ella er fjarskiptafyrirtæki heim-
ilt að gera nauðsynlegar ráðstaf-
anir til að koma í veg fyrir trufl-
un þá sem af þessu hlýst. Nú má
truflun að þessu leyti rekja til gá-
leysis eiganda viðkomandi bún-
aðar, og ber eiganda þá að greiða
allan kostnað sem af úrbótum
leiðir.“
Þetta segir Hlynur Halldórs-
son, hæstaréttarlögmaður og sér-
fræðingur í tölvu- og fjarskipta-
lögfræði, að gefi fyritækjum sem
selja áskrift að nettengingum
skýra heimild til þess að grípa til
ráðstafana gagnvart viðskiptavin-
um sem sýkst hafa af tölvuveirum
eins og SoBig.
„Sú skylda hvílir óumdeilan-
lega á fjarskiptafyrirtækinu að
hafa samband við aðila sem er
sýktur af tölvuveiru og krefjast
þess að viðkomandi geri viðeig-
andi ráðstafanir,“ segir Hlynur.
Hann segir að notendaskilmál-
ar, sem meðal annars banna send-
ingu á óumbeðnum fjöldapósti og
misnotkun á nettengingu, séu næg
stoð til þess að netfyrirtæki geti
lokað fyrir tengingar þeirra sem
senda sýkt tölvuskeyti. „Þetta
snýst um að vernda bandvídd í
fjarskiptavirkjum og það er klárt
mál að það má vernda þau. Að því
gefnu að menn átti sig á því að það
séu einhver vandamál í gangi
grípa þeir væntanlega til þessara
ráðstafana og þar með ætti mönn-
um að takast að stöðva frekari
smitun,“ segir hann.
Andri Óskarsson segir að
Hringiðan líti svo á að þeir sem
ekki gera viðeigandi ráðstafanir
til þess að bregðast við tölvuveir-
um á borð við SoBig séu að mis-
nota nettengingu og séu þar með
komnir á svig við notendaskil-
mála.
Stærri ormar á leiðinni
Þótt álagið vegna SoBig-orms-
ins hafi verið gríðarlegt er lík-
legt að fram komi tölvuveirur
sem valda muni meiri usla.
„Þetta hefur alltaf orðið verra.
Það var rosalegt flóð þegar klez.h
kom. Við höfðum aldrei séð ann-
að eins og við héldum að við ætt-
um aldrei eftir að sjá annað eins.
Svo kemur SoBig.F og hann er
miklu verri. Við höfum enga sér-
staka ástæðu til að ætla annað en
að næsti stóri vírus muni toppa
allt sem við höfum séð áður. Því
miður,“ segir Erlendur Þorsteins-
son hjá Frisk.
Hann telur að netfyrirtækin
hljóti að skoða þann möguleika að
gera áskrift að veirusíu að skil-
yrði fyrir notendasamningi. Hann
segir að það geti verið dýrt fyrir
netveitur að þurfa að bregðast við
veirum eftir að þær séu komnar í
dreifingu. Ef kerfi netfyrirtækj-
anna væru einöngruð, þ.e. allur
póstur hjá öllum notendum færi í
gegnum veirusíu, væri hægt að
tryggja að viðskiptavinir fyrir-
tækisins yrðu ekki fyrir óþægind-
um af völdum tölvuveira. Hann
telur að þetta myndi bæði draga
úr kostnaði og auka mjög öryggi
netsamskipta. ■
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
The Merry Ploughboys spila
á Ránni í Keflavík,
föstudag frá kl. 22-24,
Fjörukránni laugardag kl. 22-24
og Dubliners sunnudag
frá kl. 21.30 - 23.30.
Muni› Dublinarfer›ir Plúsfer›a
í október og nóvember.
...Dublin bí›ur flín
...Írarnir koma
Dettur flú í lukkupottinn?
Skila›u inn mi›anum hér a› ne›an
og flú gætir haft heppnina me› flér.
Alls konar ver›laun í bo›i svo sem:
Sko›unarfer›, kvöldskemmtun
í Dublin, fer›avinningar og margt
margt fleira.
Nafn:
Heimilisfang:
Sími: Netfang:
há
tí›
um
hel
gina
Du
bli
nar-
Fylltu út mi›ann og settu
hann í lukkupottinn á
skrifstofu Plúsfer›a
í Hlí›asmára,
8.-12. september.
Dregi› ver›ur úr pottinum
12. september kl. 16.30.
LUKKUMI‹I!
Sértilbo›
Ferð til Dublinar 27. nóvember.
Innifalið: Flug, gisting á Ormond Quay hótelinu
í 3 næturog allir flugvallaskattar.
Aðeins 20 sæti í boði.
35.420 kr. staðgreitt.
ELDUR Í HESTHÚSI Brunalykt
fannst í hesthúsahverfinu í Víðidal
í gærmorgun. Lögregla og slökkvi-
lið voru kölluð á staðinn. Lítill eld-
ur var í einu hesthúsinu og var
hann slökktur á skömmum tíma.
Engin dýr voru í húsinu og eigna-
tjón var lítið.
FARTÖLVUM STOLIÐ Í INNBROTI
Brotist var inn í fyrirtæki í Skip-
holti í fyrrinótt og fartölvum að
verðmæti nokkur hundruð þús-
und stolið.
HÖFUNDUR TÖLVUVEIRU
Blaster-ormur Jeffreys Lees Parsons sýkti þúsundir tölva eftir að honum var dreift í síðasta
mánuði. SoBig-veiran hefur ekki sýkt jafn margar tölvur en valdið miklum skaða.
TÖLVUPÓSTUR
Búist er við að veiruvandamálið
aukist til muna á næstunni.
SELFOSS
Stjórn Kaupfélags Árnesinga véfengir rétt-
mæti sumra krafa sem gerðar eru í fyrir-
tækið.
Gjaldþrot eignarhaldsfélagsins Brúar á Selfossi:
KÁ tapar 460 milljónum