Fréttablaðið - 05.09.2003, Side 27
Ræktun kryddjurta er skemmti-leg og bragðgóð leið til að lífga
upp á matreiðsluna. Innanhúss er
hægt að rækta kryddjurtir allt árið
um kring og á sumrin einnig utan-
húss.
Að sögn Guðbjargar Kristjáns-
dóttur, garðyrkjufræðings og starfs-
manns Garðheima, er basilikum vin-
sælasta kryddjurtin í dag. Hana er
þó aðeins hægt að rækta utanhúss.
Einnig er mikið keypt af rósmarín,
kóríander og tímían, auk þess sem
sala á óreganó hefur verið að aukast
mikið.
„Það hefur orðið bylting á sl.
þremur árum í sölu á kryddi. Ástæð-
an er fyrst og fremst sú að fólk er
farið að ferðast mikið meira erlend-
is og námsfólk sem kemur heim er
búið að venja sig á aðra siði. Konur
frá Asíu hafa einnig verið að kaupa
mikið af kóríander sem þær
nota í austurlenska rétti.“
Guðbjörg segir að margt
fólk rækti kryddin í eld-
húsglugganum heima hjá
sér. Það geri fólk frekar
en að rækta kryddin úti í
garði enda vilji það ekki
labba langar leiðir til að
ná sér í krydd. Hún seg-
ir að nokkuð hafi verið
um að fólk hafi keypt
hjá sér perur til að lýsa
jurtirnar upp á veturna
svo þær vaxi betur í
skammdeginu.
Fyrir fólk sem ætlar
að hefja kryddræktun
heima hjá sér mælir Guð-
björg ekki með því að setja
fræ í pottamold því hún sé
allt of sterk. Sjálf hefur
hún sett fræin í litla sam-
anpressaða kubba sem
fara í vatn og stækka síðan fimm-
falt. Því næst þegar plantan er farin
að vaxa er hún sett í sterkari mold.
Aðspurð segir Guðbjörg að það sé
mismunandi eftir tegundum hversu
langan tíma tekur að rækta krydd-
jurt. Rósmarín er til að mynda mjög
lengi að spíra, frá hálfum mánuði til
þriggja vikna. Mörg fræ eru hins
vegar um eina viku að spíra. „Yfir-
leitt er maður með
nokkur fræ sam-
an til að hafa
þetta þétt og
síðan klippir
maður bara af
þessu.“ ■
matur o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is
Bylting í ræktun kryddjurta:
Basilikum
vinsælast
Egils Pilsner er ný íslensk bjórteg-und sem er til sölu í verslunum
ÁTVR frá og með 1. september 2003.
Egils Pilsner er ódýrasti bjórinn á
markaðnum en hann kostar 149 krón-
ur í 0,5 lítra umbúðum.
Bruggmeistarar Ölgerðarinnar
hafa unnið að þróun hins nýja Egils
Pilsners undanfarna mánuði en bjór-
inn er byggður á Egils Pilsner létt-
bjórnum sem bruggaður hefur verið
síðan 1917. Hann flokkast undir pil-
sen-bjór og er 4,5% að styrkleika. Að
sögn Guðmundar Mars Magnússonar,
bruggmeistara Ölgerðarinnar, er
bjórinn ljósbrúnn á lit og ber keim af
maltkorni, örlítilli sætu og beisku en
mildu bragði.
Til fróðleiks má geta þess að sam-
bærilegar bjórtegundir í Danmörku í
0,5 lítra umbúðum kosta tæplega 110
krónur en Egils Pilsner kostar 149
krónur. Opinber gjöld nema tæpum
82% af verði Egils Pilsners. Þar ber
hæst áfengisgjaldið en það er 44,3%
af söluverðinu. Séu áfengisgjöldin
dregin frá er Egils Pilsner 12% ódýr-
ari en sambærilegur bjór í Danmörku.
Að sögn Önnu Maríu Árnadóttur,
vörumerkjastjóra Ölgerðarinnar, hef-
ur Ölgerðin mætt kröfum neytenda
um mjög góðan bjór á lágu verði með
tilkomu Egils Pilsner bjórsins en
markmið Ölgerðarinnar er að Egils
Pilsner verði alltaf ódýrasti bjórinn í
ÁTVR. Fyrst um sinn verður Egils
Pilsner seldur í tveimur vínbúðum
ÁTVR, Heiðrúnu og Kringlunni. ■
Egils Pilsner fæst í Heiðrúnu og Kringlunni:
Ódýrasti bjórinn
í 0,5 l umbúðum
10 ViNSÆLAR KRYDDJURTIR
Dill
Grönn þráðlaga blöðin notuð með fiski, skel-
dýrum, lambakjöti, kartöflum, í sósur og til
skrauts.
Graslaukur
Í salöt, eggja- og grænmetisrétti, sósur,
brauð og fleira.
Meriam
Notað í grænmetisrétti, lifrarrétti, kæfu og
tómatrétti. Í flatbökur er meriam ómissandi
og er þá notað með basilikum.
Mynta
Notuð í lambakjötsrétti, sósur, drykki og
hlaup. Hrokkinminta er notuð í jurtate. Pip-
arminta er mest notuð í sælgæti og líkjöra.
Óreganó
Er notað með steiktum fiski, kjötdeigs- og
tómatréttum, pítsum og tómatrétti.
Steinselja
Notuð í kryddvönd við suðu á fiski, kjöti og
grænmeti. Svo í kryddlegi og í salöt en mest
er hún notuð til skrauts.
Rósmarín
Notuð í rétti úr lamba-, svína- og fuglakjöti
og einnig á villibráð. Ómissandi á lamba-
stórsteikur, hrygg og læri.
Basilika
Er notað í pizzur, í tómatrétti, spagettírétti,
með ljósu kjöti og alifuglum.
Salvía
Er með mildu beisku og áberandi bragði.
Salvía er notuð í rétti úr svína- kálfa- og
lambakjöti, fars, pylsur og kæfu.
Tímían
Er notað í kryddlegi og á vel við svína-,
nauta- og kálfakjöt. Tiímían bragðast vel
með hvítlauk, lárviðarlaufi og tómati. Ómiss-
andi í baunasúpu.
Heimild: Gardheimar.is
EGILS PILSNER
Byggður á létt-
pilsnernum sem
hefur verið brugg-
aður síðan 1917.
KRYDD
Bylting hefur orðið á
undanförnum þrem-
ur árum í sölu
kryddjurta.
FRÉTTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM