Fréttablaðið - 05.09.2003, Blaðsíða 25
26 5. ágúst 2003 FÖSTUDAGUR
Nóbelsverðlaunahafinn MóðirTeresa dó á þessum degi, 87
ára gömul, en í henni kristallað-
ist góðmennskan í áratugi. Hún
fékk hjartaáfall skömmu fyrir
17 að staðartíma á aðalskrifstof-
um trúboðsstöðvarinnar Charity
í Kalkútta á Indlandi. Þessi
heimsfræga albanska nunna
hafði barist við veikindi í þó
nokkur ár en þegar fréttir bár-
ust af andláti hennar sagði páf-
inn að þarna færi kona sem
hefði sett mark sitt á sögu aldar-
innar.
Móðir Teresa var skírð Agnes
Bojaxhiu þegar hún fæddist í
litlu þorpi rétt fyrir utan
Skopje. Hún tók nafnið Systir
Teresa í klaustri á Írlandi en var
þjálfuð af Loreto-systrunum þar
ytra. 1948 setti hún svo á stofn
sína eigin reglu og hóf hjálpar-
störf í fátækrahverfum Kal-
kúttaborgar á Indlandi. Hindúar
gagnrýndu hana á stundum,
töldu hana reyna um of að
kristna hina fáttæku, en frjáls-
lynt fólk á Indlandi gagnrýndi
hana líka, fyrir íhaldssöm við-
horf hennar hvað varðaði fóst-
ureyðingar og getnaðarvarnir.
Restin af heiminum sér nafn
hennar sem tákn fyrir góð-
mennsku og samhug. ■
FREDDY MERCURY
Freddy heitinn Mercury fæddist á þessum
degi fyrir 57 árum en hann lést 1991.
Hann deilir deginum með Lúðvíki VIII og
Lúðvíki XIV Frakklandskonungum.
13.30 Páll Guðmundsson, Fagradal 1,
Vogum, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju.
13.30 Jón Guðmundsson, húsasmíða-
meistari, hjúkrunarheimilinu
Holtsbúð, verður jarðsunginn frá
Garðakirkju.
13.30 Birgitta Guðmundsdóttir,
Kleppsvegi 30, verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni.
13.30 Jóhann E. Óskarsson verður jarð-
sunginn frá Fríkirkjunni.
14.00 Theodór Laxdal, fyrrverandi
bóndi í Túnsbergi á Svalbarðs-
strönd, verður jarðsunginn frá
Svalbarðskirkju.
14.00 Runólfur Óttar Hallfreðsson,
Krókatúni 9, Akranesi, verður jarð-
sunginn frá Akraneskirkju.
15.00 Ingileif Káradóttir, Drauplaugar-
stöðum, áður Espigerði 2, Reykja-
vík, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni.
15.00 Engilbert Ragnar Valdimarsson,
Hrafnistu, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju.
1877 Indjáninn Crazy Horse var drepinn.
1885 Fyrsta bensíndælan komst í hend-
ur bensínstöðvar.
1957 Jack Kerouac sendi frá sér skáld-
söguna On the Road.
1958 Fyrsta litasjónvarpsútsendingin var
send út á sjónvarpsstöðinni
WBTV-TV.
1960 Cassius Clay, eða Muhammad Ali
eins og hann kallar sig í dag, fékk
gullið á ólympíuleikunum í hnefa-
leikum.
1972 Arabískir hryðjuverkamenn drápu
11 Ísraela á ólympíleikunum í
Munchen.
1984 Geimskutlan Discovery lenti eftir
jómfrúarferðina.
1987 La Bamba með Los Lobos var á
toppnum.
MÓÐIR TERESA
■ dó á þessum degi fyrir 6 árum. Hún
fékk friðarverðlaun Nóbels fyrir störf sín á
trúboðsstöð í Kalkútta á Indlandi en dó
úr hjartaáfalli 87 ára gömul.
5. september
1997
Móðir Teresa deyr
■ Andlát
■ Afmæli
■ Jarðarfarir
Salóme J. Jónsdóttir, Flateyri, lést mið-
vikudaginn 3. september.
Birgir Lorange, forritari, lést í Danmörku
fimmtudaginn 28. ágúst.
Árni Guðjónsson, lögfræðingur, Fjarðar-
seli 35, lést mánudaginn 1. september.
Hárlaugur Ingvarsson, Hlíðartúni, Bisk-
upstungum, lést mánudaginn 1. sept-
ember.
■ Tilkynningar
Fréttablaðið býður lesendum aðsenda inn tilkynningar um dán-
arfregnir, jarðarfarir, afmæli eða
aðra stórviðburði. Tekið er á móti
tilkynningum á tölvupóstfangið:
tilkynningar@frettabladid.is.
Athugið að upplýsingar þurfa að
vera ítarlegar og helst tæmandi.
Ég ætla að fara í klippingu ogsíðan æta ég að hitta manninn
minn í hádeginu og borða með
honum,“ segir Katrín Hermanns-
dóttir, sjónvarpsþula og kennari í
Garðabæ, sem á afmæli í dag.
Katrín segist ekki vera mikið
afmælisbarn og tekur þar undir
með öðrum í meyjarmerkinu en
flestir vilja lítið af afmæli sínu
vita. „Já, ég hef alltaf verið þann-
ig að mér finnst vont að vera mið-
punktur athyglinnar. Ég hef því
aldrei haldið upp á afmæli mitt
með stórri veislu. Þegar ég var
þrítug komu aðeins þeir sem næst
mér standa og héldu upp á daginn
með mér.“
Katrín kennir við Hofstaða-
skóla í Garðabæ en er nú í barn-
eignarleyfi. „Ég á fjórtán mánaða
strák sem ég vil vera heima hjá
eins lengi og mér er unnt. Ég hef
gagnrýnt svo marga fyrir að fara
of snemma til vinnu frá börnum
sínum að það er nú annað hvort
að ég standi mig eins og mann-
eskja,“ segir hún hlæjandi. Hún
hefur verið þula í þrjú ár og kann
sérstaklega vel við sig í því
starfi. „Það er mikið af góðu og
skemmtilegu fólki hjá Sjónvarp-
inu og mér líður vel þar. Ég var
mjög stressuð fyrstu dagana í
starfi en það rann af mér tiltölu-
lega fljótt. En það þýðir ekki að
maður verði ekki alltaf að halda
vöku sinni og maður leynir því
alls ekki ef maður er illa upplagð-
ur. Það sést svo sannarlega á
manni.“
Katrín er alin upp í Reykjavík
og á Akureyri. Hún stundaði nám
við MS og síðan við Kennarahá-
skólann. „Kennslustarfið er mjög
gefandi og skemmtilegt en um
leið er það krefjandi og erfitt.,“
segir Katrín Hermannsdóttir
sjónvarpsþula, sem segir móður-
hlutverkið það skemmtilegasta
sem hún hefur tekist á við. ■
KATRÍN HERMANNSDÓTTIR
Hún á fjórtán mánaða gamlan son sem hún
er heima hjá daginn. Um áramót byrjar hún
að kenna í Hofstaðaskóla.
Afmæli
KATRÍN HERMANNSDÓTTIR
■ sjónvarpsþula er þrjátíu og tveggja ára.
Hún ætlar í klippingu á afmælinu og út
að borða með manninum sínum.
Vont er að vera mið-
punktur athyglinnar
Björn Ingi Hrafnsson tók viðstarfi aðstoðarmanns Hall-
dórs Ásgrímssonar utanríkisráð-
herra um mánaðamótin. Hann
hefur um skeið verið fram-
kvæmdastjóri þingflokks Fram-
sóknarflokksins og var í vor á
framboðslista flokksins í Reykja-
vík. „Starfið leggst afskaplega vel
í mig og ég held að það sé mjög
spennandi. Ég fæ tækifæri til að
kynnast störfum í stjórnsýslunni
og stjórnkerfinu sem mér þykir
afar gott,“ segir hann.
Björn Ingi segir þessa fyrstu
daga vera mjög annasama. „Í
fyrradag hófst fundur norrænna
varnarmálaráðherra og farið var
á Höfn í Hornafirði og ratsjár-
stöðin skoðuð. Í gær hófst þing-
flokksfundur framsóknarmanna
á Egilsstöðum,“ segir hann.
Björn Ingi var lengi blaðamað-
ur á Morgunblaðinu og meðal
annars þingfréttaritari blaðsins.
Hann hefur lengi haft mikinn
áhuga á stjórnmálum eins og
fyrri störf hans bera vitni um.
„Ég var nærri því að komast á
þing í vor og einhvern tíma um
nóttina var ég inni. Ég sætti mig
vel við það að komast ekki inn því
flokkurinn fékk mjög góða kosn-
ingu og það er það sem skiptir
máli.“
Björn Ingi er vel kunnugur
Halldóri Ásgrímssyni og segist
hyggja á góða samvinnu við hann.
„Við höfum unnið saman lengi og
í nánu samstarfi þar sem ég hef
verið starfsmaður flokksins. Það
er fjölmargt fram undan og hæst
ber umræðan við Bandaríkja-
menn sem ekki er lokið þrátt fyr-
ir að fundist hafi farsæl lausn í
bili.“
Björn Ingi er mikill KR-ingur
og segir það ljúfa tilfinningu að
fagna Íslandsmeistaratitli, bæði í
kvenna og karlaflokki. Hann er
mikill fjölskyldumaður og hefur
sérstakt yndi af að vera með fjög-
urra ára gömlum syni sínum. „Ég
hef einnig ánægju af skrifum og
reyni að gefa mér tíma til þess í
amstri hversdagsins. Ég er með
ýmis verkefni í gangi og skrifa
meðal annars smásögur sem enn
eru á harða disknum í tölv-
unni. Aldrei að vita hvað
verður úr því,“ segir Björn
Ingi Hrafnsson, nýráðinn
aðstoðarmaður Halldórs
Ásgrímssonar, sem segir
pólitíkina vera ástríðu.
bergljot@frettabladid.i
Stjórnmál eru ástríða
Tímamót
BJÖRN INGI HRAFNSSON
■ nýráðinn aðstoðarmaður utanríkisráð-
herra hefur gaman af fótbolta og er mik-
ill KR-ingur.
BJÖRN INGI
HRAFNSSON
Hann er mikill fjölskydu-
maður og á fjögurra ára
gamlan son sem hann
hefur yndi af að um-
gangast..
SNORRI MAGNÚSSON
Hann er á leið til Líberíu á vegum Samein-
uðu þjóðanna.
??? Hver?
„Fyrrum rannsóknarlögreglumaður og
núverandi starfsmaður Sameinuðu
þjóðanna.“
??? Hvar?
„Í frí með fjölskyldunni á Íslandi.“
??? Hvaðan?
„Reykvíkingur í húð og hár en bý á Sel-
tjarnarnesi, besta bæjarfélagi á landinu.“
??? Hvað?
„Gæta eigna og starfsmanna Samein-
uðu þjóðanna í Líberíu.“
??? Hvernig?
„Með vönduðu starfsfólki víðs vegar að
úr heiminum.“
??? Hvers vegna?
„Vegna langvarandi borgarastyrjaldar
sem geisað hefur í landinu.“
??? Hvenær?
„Ég fer héðan til Kosovo á laugardag og
um miðja næstu viku held ég til Líberíu.“
■ Persónan
■ Þetta gerðist
MÓÐIR TERESA
Í henni kristallaðist góðmennska seinni
hluta síðustu aldar.
5.september
Bessi Bjarnason leikari er 73 ára.
Hrafnhildur Schram listfræðingur er
62 ára.
Gerður G. Óskarsdóttir fræðslustjóri er
60 ára.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Styrktarreikningur
opnaður
Opnaður hefur verið
styrktarreikningur vegna
söfnunar fyrir fjölskyldu
Páls Guðmundssonar
sem lést þann 29. ágúst sl. af
slysförum. Páll lætur eftir sig
eiginkonu og þrjú börn.
Fjölskylda Páls er búsett í
Vogum á Vatnsleysuströnd og
er þeim sem vilja styðja við
bakið á eftirlifandi eiginkonu
hans og börnum bent á
styrktarreikning í
Sparisjóðnum í Keflavík:
1109-05-443339.