Fréttablaðið - 05.09.2003, Page 45

Fréttablaðið - 05.09.2003, Page 45
Hrósið 46 5. september 2003 FÖSTUDAGUR Húsið er til sölu. Þetta er ágæt-is sumarbústaður,“ segir Guðfinnur bílasali í Vatnsmýrinni en honum hefur verið gert að flytja eftir að hafa rekið bílasölu í „sumarbústaðnum“ í 18 ár. „Borg- in ætlar að byggja hér hraðbraut en Landspítalinn á lóðina þannig að mér er ekki vært lengur. Ég flyt upp á Bíldshöfða um næstu mánaðamót og opna þar glæsilega bílasölu.“ Guðfinnur segir ýmsa kosti fylgja því að vera með bílasölu í Vatnsmýrinni: „Héðan er stutt í miðbæinn og sérstaklega heim til mín þar sem ég bý á Lækjargöt- unni. Svo er hér alltaf gott veður. Gallarnir eru hins vegar þeir að allir aðrir bílasalar eru komnir upp á Höfða þannig að ég er orð- inn einn hér eftir,“ segir Guðfinn- ur, sem byrjaði að selja bíla 1969; árið sem menn stigu í fyrsta sinn fæti á tunglið. „Ég hef alltaf ekið um á sama bílnum; Mercedes Benz,“ segir hann. ■ Bílasala GUÐFINNUR BÍLASALI ■ er að flytja úr Vatnsmýrinni eftir að hafa stundað bílasölu frá því menn stigu fyrst fæti á tunglið; 1969. .. fær hljómsveitin Nilfisk frá Stokkseyri fyrir að bera hróður landsins út fyrir landsteinana með lítilli fyrirhöfn. Fréttiraf fólki Guðfinnur víkur fyrir hraðbraut Ekki er allt sem sýnist. ÖssurSkarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, þótti sýna töluverða kænsku þegar hann svaraði spurningu blaðsins um óskalagið sitt hér um daginn. Af íslenskum lögum nefndi hann lag Sigfúsar Halldórssonar, Vegir liggja til allra átta, og af erlend- um London Calling með Clash. Með fyrrnefnda laginu var hann að vísa til eigin möguleika í ferð- lagi um hið pólitíska landslag en hið síðara skírskotun til væntan- legrar námsdvalar Ingibjargar Sólrúnar í London. Össur kann að orða hugsanir sínar á ýmsan hátt. Mikið hefur verið skeggrættum Hannes Hólmstein Giss- urarson og fyrirhugaða útgáfu á ævisögu sem hann er að skrifa um Halldór Kiljan Laxness og koma á út nú fyrir jól. Mörgum sögum fer um hver muni gefa út og í Fréttablaðinu í gær var haft á orði að Páll Bragi Kristjánsson væri búinn að bjóða Hannesi út- gáfusamning. Ekkert er til í þessu og frá höfuðstöðvum Eddu koma allir af fjöllum og segjast ekki hafa hugmynd um hver gefi út umrædda bók. Edda hefur hins vegar gefið út viljayfirlýsingu varðandi útgáfu á þeirri ævisögu Laxness sem Halldór Guðmunds- son er að skrifa. Íslendingar geta nú lagst á eittog látið verðlaun í hendur leik- stjórans Dags Kára Péturssonar og Tómasar Lemarquis leikara fyrir framlag sitt við myndina Nóa albínóa. Slóðin er http://www.jameson.ie/peoples- choice/ og restin segir sig næst- um sjálf. Þú passar þig bara að kjósa rétt og standa með þínu fólki. ■ Leiðrétting ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Um 500 milljónir króna. Dujuan. Dallas Mavericks. Sjálfstraust og lífsgleði Upplýsingar í síma 561 8585 og á www.gauilitli.is Allt þetta er innifalið: Spinnig 3 í viku. Vikuleg vigtun, fitumæling, ummálsmælingar, ítarleg kennslugögn, matardagbók og leiðbeiningar varðandi fæðuval, fræðsludagur, vatnsbrúsi, bolur, vegleg verðlaun! Vikuna 8. – 15. september hefjast í World Class hin vinsælu 8-vikna unglinganámskeið Gauja litla. Unglingafjör Gauja litla - 13-16 ára Bubbi Morthens hefur slegið öllfyrri met í sölu á hugverkum sínum hér á landi og kemst enginn íslenskur listamaður með tærnar þar sem hann hefur hælana. Bubbi hefur selt 260 þúsund hljómplötur en það jafngildir því að Michael Jackson hefði selt 260 milljónir hljómplatna á ferli sín- um. Sem hann hefur ekki gert. „Vissulega er þetta mikið og ég held að Laxness sé meira að segja fyrir aftan mig í þessum efnum,“ segir Bubbi ánægður með árangurinn þó lífsstarfið sé rétt hálfnað. Hann gerir lítið úr gróðanum af þessu öllu: „Ágóð- inn hefur dreifst víða þó ég hafi vissulega fengið minn hlut. Ætli plöturnar hafi ekki velt rúmlega 200 milljónum króna brúttó. Annars veit ég það ekki,“ segir Bubbi, sem sendir enn eina plöt- una frá sér nú eftir mánuð. Sú heitir Þúsund Kossa Nótt: „Mér fannst það fallegur titill,“ segir hann. Nýja platan er róleg og melódísk og Bubbi tekur ekki alls kostar undir að þarna fari vísnaplata: „Ég tók frekar mið af Cliff Richard og Herman’s Hermits og ég held að fólk eigi eftir að heyra það. Ég er ánægður,“ segir Bubbi og má vera það. Hefur skákað öllum og er enn að. ■ GUÐFINNUR VIÐ „SUMARBÚSTAÐINN“. Gott að vera nálægt miðbænum. Stutt að fara heim. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M BUBBI MORTHENS Undir áhrifum frá Cliff Richard og Herman’s Hermits. Íslandsmet BUBBI MORTHENS ■ hefur slegið öll fyrri met í útbreiðslu hugverka hér á landi. Meira að segja lagt Laxness að velli í þeim efnum. Í FYRRA ... ...átti ég ekki litla frænku. NÚNA ... ...á ég eina sem á sama afmælisdag og ég. Hörður Torfason heldur áfram að syngja og var að gefa út disk. Lárétt: 1 glaumur, 6 umkringja, 7 vitlaus- ar, 9 samtenging, 10 for, 11 tignara, 12 danskt stúlkunafn, 13 neitun, 15 kyrrð, 17 sjá eftir. Lóðrétt: 1 ósannsögli, 2 borg í Alsír, 3 uppistaða, 4 færði til betri vegar, 5 rugga, 8 fé, 11 veinar, 14 stafur, 16 ármynni. ■ Breyttir tímar Að gefnu tilefni skal tekið fram að þó allir fituhlunkarnir í Latabæ séu Hafnfirðingar eru ekki allir Hafnfirðingar feitir. Lausn. Lárétt: 1 sollur, 6 króa, 7 rangar, 9 en 10 aur, 11 æðra, 12 pia, 13 nei, 15 ró, 17 iðra. Lóðrétt: 1 skreytni, 2 oran, 3 lón, 4 lag- aði, 5 rorra, 8 aurar, 11 æpir, 14 eð, 16 ós. 1 6 7 9 10 2 3 4 5 8 15 16 17 13 14 11 12 Er símanúmerið þitt vinningsnúmer? Smáauglýsingar sem allir sjá 10 LORD OF THE RINGSÁ MYNDBANDI EÐA DVD Í smáauglýsingum Fréttablaðsins næsta laugardag birtast 10 símanúmer, valin af handahófi úr símaskránni, í einni smáauglýsingunni. Ef þú sérð þitt númer í þessari auglýsingu hefur þú unnið LORD OF THE RINGS í boði BT, ef þú hringir í okkur fyrir kl. 16.00 í síma 515 7500. Bubbi selt 260 þúsund plötur FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.