Fréttablaðið - 07.09.2003, Síða 6
6 7. september 2003 SUNNUDAGURVeistusvarið?
1Hvað er fjárfesting við stækkun Norð-uráls, ef af verður, metin á háa fjár-
hæð?
2Fyrsti maðurinn hefur verið kærðurvegna sprengjutilræðisins í Omagh
1998. Hversu margir létust í tilræðinu?
3Umdeildur kínverskur ráðamaðurkemur hingað í opinbera heimsókn í
dag. Hvað heitir hann?
Svörin eru á bls. 38
Stjórnvöld í Þýskalandi senda Ítölum kvörtun:
Ósátt við vínflöskur
með mynd af Hitler
ÞÝSKALAND, AP Stjórnvöld í
Þýskalandi hafa sent formlega
kvörtun til Ítalíu vegna vínfram-
leiðanda sem skreytir flöskur
sínar með myndum af Adolf
Hitler.
Þýski dómsmálaráðherrann
Brigitte Zypries skrifaði bréf til
starfsbróður síns á Ítalíu til að
koma á framfæri þeirri skoðun
landa sinna að merkimiðarnir á
flöskunum væru „fyrirlitlegir
og ósmekklegir“. Bað hún ítals-
ka dómsmálaráðherrann að sýna
samstöðu með Þjóðverjum og
taka flöskurnar úr umferð.
Vínið sem um ræðir er selt
með löglegum hætti á Ítalíu en í
Þýskalandi er aftur á móti bann-
að að selja vörur með myndum
eða slagorðum frá stjórnartíð
nasista. Þýska sendiráðið í Róm
hefur árum saman barist gegn
sölu vínsins en án árangurs. Vín-
ið kallast „Führerwein“ og á
flöskunum eru myndir af Hitler
ásamt slagorðum á borð við
„Heil Hitler“. Vínframleiðand-
inn selur einnig flöskur með
myndum af ítalska einræðis-
herranum Benito Mussolini og
kommúnistaleiðtoganum Josef
Stalín. ■
Hvalaskoðunarskipið
Rainbow Warrior
Grænfriðungar fylgdu Hafsúlunni eftir þegar haldið var til hvalaskoð-
unar í Faxaflóanum. Lítið varð vart við hvali þrátt fyrir að veðurskilyrði
til þess væru afar hagstæð.
HVALASKOÐUN Talsverður fjöldi
fólks þáði boð Grænfriðunga um
að fá að skoða flaggskip samtak-
anna, Rainbow Warrior, sem liggur
við Faxagarð í Reykjavík. Um borð
fer fram sýning á umhverfisher-
ferðum samtakanna í gegnum tíð-
ina og einnig eru starfsmenn
reiðubúnir til skrafs og ráðagerða
um erindi þeirra hingað til lands.
„Þetta munum við gera á hverj-
um þeim stað sem við heimsækj-
um,“ sagði Frode Pleym, talsmað-
ur Grænfriðunga. „Við bjóðum
fólki að koma til okkar án skuld-
bindinga. Því er frjálst að skoða
sýningu okkar, hluta skipsins eða
eiga spjall við okkur um allt sem
okkur tengist.“
Fyrr um morguninn buðu
Grænfriðungar blaðamönnum til
hvalaskoðunar um borð í Rainbow
Warrior. Var haldið út á Faxaflóa í
fylgd hvalaskoðunarbátsins
Hafsúlunnar. Einnig voru fleiri
hvalaskoðunarbátar á svæðinu og
var þéttsetið af ferðafólki í þeim
öllum. Þrátt fyrir bestu veðurskil-
yrði til hvalaskoðunar lét hvalur-
inn lítið sjá sig. Tvær hrefnur
sáust úr fjarlægð og var einn af
þremur gúmmíbátum um borð í
skipinu gerður út til að komast bet-
ur að þeim.
Frode Pleym sagði að fjöldi með-
lima Grænfriðunga sem hefðu ósk-
að eftir upplýsingum um Ísland ef
hætt yrði hvalveiðum væri kominn
vel yfir 2 þúsund. „Það eru mjög
góð viðbrögð eftir aðeins einn dag á
Netinu. Við búumst við talsverðri
aukningu á næstu vikum þegar að
skilaboðin hafa borist til allra.“
albert@frettabladid.is
Dæmdar bætur:
Dýrmætt
bílflaut
MIAMI, AP Bandarísk kona sem var
handtekin eftir að hún flautaði á bíl-
stjóra sem fór ekki af stað á grænu
umferðarljósi fær greiddar rúmar
20 milljónir króna í bætur.
Lögreglumaðurinn sem handtók
hana þótti hafa sýnt allt of mikla
hörku þegar hann handtók konuna,
Kim Lee. Lee sagði að hann hefði
handjárnað sig og barið höfði henn-
ar við skottlok bílsins. Lee fór fram
á bætur að andvirði rúmra 40 millj-
óna króna vegna atviksins.
„Þetta var dæmigert tilvik þess
að einhver vildi beita of miklu valdi
bara vegna þess að hann var lögga,“
sagði einn kviðdómendanna.
HVALKJÖTIÐ GRILLAÐ
Fyrir aftan má sjá borða með beiðni Græn-
friðunga um að hætta hvalveiðum.
Mótmæla
Grænfriðungum:
Grilla
hrefnukjöt
MÓTMÆLI „Það voru svo mikil við-
brögð þegar við gerðum þetta
fyrst að við ákváðum að koma aft-
ur,“ sagði Ívar Örn Lárusson, einn
af fimm ungum mönnum sem
buðu fólki upp á grillað hvalkjöt,
nánast við hlið Rainbow Warrior,
þar sem það liggur við festar við
Faxagarð.
„Það er mikill umgangur hér
og þetta hefur vakið athygli enda
er hvalkjötið með eindæmum
gott. Jafnvel útlendingarnir sem
formæla okkur eru sammála um
það. Tilgangurinn er einungis sá
að koma þeim skilaboðum til nátt-
úruverndarsinna að til þess að við
getum virt þeirra skoðanir þurfi
þeir að virða okkar. Flestir Íslend-
ingar vilja halda áfram veiðum á
hval og Grænfriðungar verða að
virða það.“
Ívar sagði að forsvarsmenn
Grænfriðunga hefðu komið að
máli við strákana. „Þeir komu til
okkar í góðu en höfðu ekki áhuga
á að bragða hvalkjötið,“ sagði Ívar
um viðbrögð Grænfriðunga um
borð á Rainbow Warrior.
Frode Pleym, talsmaður Græn-
friðunga, lét hafa eftir sér að
þeim fyndist ekkert athugavert
við þetta uppátæki og hefðu ekki
gert athugasemdir við þessu. ■
Leitin að Saddam:
Í felum í
Tikrit
TIKRIT, AP „Ef hann misstígur sig,
þá grípum við hann,“ sagði Ray
Odierno, hershöfðingi í banda-
ríska hernum í Írak, um Saddam
Hussein, fyrrum forseta landsins.
Odierno segir að Saddam sé að
öllum líkindum í felum í eða við
heimabæ sinn, Tíkrit. Undirmenn
Odiernos hafa að undanförnu
handsamað fjölmarga fyrrum líf-
verði Saddams. Víðtæk leit stend-
ur enn að Saddam og hafa Banda-
ríkjamenn sagt um nokkurt skeið
að hringurinn þrengist stöðugt. ■
Svæði þar sem búast má við talsverðri vætu eru skyggð á kortinu. Minniháttar úrkoma er táknuð með dropum. Hitatölur sýna hæstu hitagildi.
FÍNT VEÐUR Í
BORGINNI
Hann er að halla
sér smám saman í
norðanátt á vestur-
hluta landsins og
því rofar til hægt og
rólega á sunnantil.
Morgundagurinn
verður þó töluvert
bjartari og veðrið
betra. Allt stefnir í
að við fáum leifar
af fellibylnum Fabi-
an á miðvikudag en
hann hefur valdið
miklum usla við
Bermúdaeyjar.
Eins og spárnar eru
í dag getur allt eins
orðið verulega
hvasst á Suður-
landi. En ennþá er
bara sunnudagur.
Kaupmannahöfn 19°C sk. m. köflum
London 20°C sk. m. köflum
París 21°C sk. m. köflum
Berlín 21°C sk. m. köflum
Algarve 27°C sk. m. köflum
Mallorca 27°C þrumuveður
Torrevieja 30°C þrumuveður
Krít 26°C sk. m. köflum
Kýpur 27°C sk. m. köflum
Róm 27°C sk. m. köflum
New York 18°C léttskýjað
Miami 34°C þrumuveður
Þriðjudagur
Mánudagur
+11
+12 +14
+14
+15
+12
+15
+11
+11
+11
+16
+14
+14
+13
+15
+13+14
Hæglætisveður um allt land.
+7
Hægur vindur
Strekkingur
Nokkur vindur
Hægur vindur
Hægur
vindur
Nokkur
vindur
Strekkingur
Hægur vindur
Nokkur vindur
Hægur vindur í fyrstu, vex síðdegis.
Nokkur vindur
Nokkur vindur
+13
DISNEYLAND Í ANAHEIM
Hér sést Þrumufjalls-rússíbaninn í
skemmtigarði Disney í Anaheim. Garður-
inn var opnaður árið 1979 og hefur viðlíka
slys ekki orðið áður.
Banaslys hjá Disney:
Rússíbani af
sporinu
ANAHEIM, AP Karlmaður lést og að
minnsta kosti tíu slösuðust þegar
einn vagn í Þrumufjalls-rússíban-
anum í Disneylandi í Anaheim i
Kaliforníu slitnaði frá lestinni.
Orsakir slyssins eru óljósar en
rússíbaninn var að fara gegnum
göng þegar vagninn slitnaði frá.
Hinir slösuðu eru á aldrinum 9
til 47 ára. Átta þeirra voru fluttir
á sjúkrahús. Rússíbaninn var tek-
inn í notkun árið 1979 og tekur allt
að 32 í hverri ferð. Þetta er fyrsta
mannskæða slysið í skemmtigaðr-
inum. ■
VÍN FORINGJANS
„Führerwein“ virðist höfða til ítalskra kaup-
enda þó Þjóðverjar hafi ekki smekk fyrir
því.
BÁTURINN
Skipið var upprunalega fiskiskip og var gert út lengi frá Aberdeen í Skotlandi.
RAINBOW WARRIOR OG HAFSÚLAN
Eins og sjá má var þéttskipaður bekkurinn á Hafsúlunni.
M
YN
D
N
IC
K
C
O
B
B
IN
G
/G
R
EE
N
PE
AC
E
M
YN
D
N
IC
K
C
O
B
B
IN
G
/G
R
EE
N
PE
AC
E