Fréttablaðið - 07.09.2003, Side 12

Fréttablaðið - 07.09.2003, Side 12
Björgólfur Guðmundsson,bankaráðsformaður Lands- bankans, lýsti því yfir í vikunni að markmið hans í íslensku við- skiptalífi væru að rjúfa eigna- tengsl fyrirtækja og hafa arðsemi að leiðarljósi í fjárfestingum. Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson eru ásamt viðskiptafélaga þeirra, Magnúsi Þorsteinssyni, nýtt afl í íslensku viðskiptalífi. Feðgarnir eru taldir eiga yfir fimmtíu millj- arða og á mælikvarða þjóðar- framleiðslu eru þeir tíu sinnum ríkari á Íslandi en ríkasti maður heims, Bill Gates, er í Bandaríkj- unum. Yfirlýsingar Björgólfs eru, miðað við styrk hans í íslensku viðskiptalífi, stefnumarkandi og grannt verður fylgst með því hvernig hann beitir sér á vett- vangi atvinnulífsins. Björgólfur telur að stór hluti fjárfestinga hér á landi sé til þess að tryggja völd og áhrif. Að flestra mati hefur þó á síðustu árum dregið verulega úr valda- og áhrifahugsun við fjár- festingar. Jarðvegurinn Holdgervingur eignatengsla- fyrirtækja síðustu árin er fyrir- tækjahópurinn sem kenndur er við Kolkrabbann. Eimskipafélag Íslands var í miðju þessarar blokkar. Áratugum saman gnæfðu tveir fyrirtækjastólpar yfir aðra í atvinnulífi landsmanna; Kol- krabbinn og Samband íslenskra samvinnufélaga. Rekstrarum- hverfi þessara fyrirtækja var miðstýrt skömmtunarhagkerfi, þar sem tengsl stjórnmála og við- skipta voru órjúfanleg. Gagn- kvæm hagsmunagæsla var milli Kolkrabbans og Sjálfstæðis- flokksins annars vegar og milli SÍS og Framsóknarflokksins hins vegar. Ríkisbankarnir voru lykill- inn að fyrirgreiðslu fyrirtækj- anna og lutu pólitískri stjórn. Gengi krónunnar var handstýrt og viðskiptalífið kepptist við að fá upplýsingar um gengisfellingar ríkisstjórnar til þess að geta keypt gjaldeyri áður en hann hækkaði í verði. Þannig sögðu gárungarnir að slegist hefði verið um skrifstofuhúsnæði við Arnar- hól svo menn gætu séð út um gluggann þegar gjaldkeri SÍS gekk úr höfuðstöðvunum niður í Seðlabankann í Hafnarstræti. Þá hlupu hinir á eftir til að selja krónurnar sínar og kaupa gjald- eyri. Daginn eftir var svo gengið fellt. Gylfi Magnússon, dósent við viðskiptadeild Háskóla Íslands, telur að ýmislegt í ytra umhverfi viðskiptalífsins skýri blokkar- myndunina. „Skattalögin voru þannig að það var eiginlega von- laust að greiða arð út úr fyrir- tækjunum, nema mjög lítið. Þá fara menn að freistast til þess að halda arðinum inni í fyrirtækjun- um.“ Gylfi segir að ef sá arður nýtist ekki til þess að byggja fyr- irtækin sjálf upp sé hann jafnvel settur í óskyldan rekstur. Hann bætir því við að þegar verðbólga hafi verið há, engin verðtrygging og hlutabréfamarkaður ekki til, hafi ekki verið margar leiðir til þess að fjárfesta nema í stein- steypu og öðrum fyrirtækjum. Sambandsfyrirtækin gömlu voru seld. Þegar SÍS var bútað í sund- ur gerðu ýmsir ágæt kaup. Ólaf- ur Ólafsson, forstjóri Samskipa, sem var eitt fyrirtækja SÍS-veld- isins, var einn þeirra. Leifarnar af veldi Samvinnuhreyfingarinn- ar hafa gengið undir nafninu S- hópurinn. Ólafur segir að mark- visst hafi verið unnið að því að rjúfa eignatengslin milli fyrir- tækjanna. Hann bendir á við- skipti þar sem gagnkvæm eigna- tengsl olíufélagsins Kers og Vá- tryggingafélags Íslands voru rof- in. Hugsunin nú sé að fjárfesta í tengdum rekstri og láta arðsem- ina ráða för. Samsteypuhugsunin Vægi fyrirtækjasamsteypa eins og við þekkjum þær er mis- munandi eftir löndum. Slíkar samsteypur eru þekktar í Japan, Kóreu og í Þýskalandi. Þar eru fyrirtæki með ólíka framleiðslu- vöru undir einum hatti. Í Banda- ríkjunum eru fyrirtækjasam- steypur fátíðari og markaðurinn einkennist fremur af því að hvert fyrirtæki einbeitir sér að sinni vöru eða þjónustu og leitar hag- stæðustu viðskipta við önnur fyr- irtæki. Gylfi segir undantekning- ar frá þessu. Bandaríska stórfyr- irtækið General Electric er dæmi um slíka samsteypu. Forstjóri þess um skeið var Jack Welch, sem heimsótti Ísland fyrir skemmstu og miðlaði af víðfrægri þekkingu sinni á viðskiptum og rekstri fyrirtækja. General Elect- ric var og er mjög arðsamt fyrir- tæki þar sem miklar kröfur voru til hverrar rekstrareiningar um árangur. Þeim sem ekki stóðust væntingar var lokað eða þær seld- ar. Samsteypufyrirtæki gera hins vegar miklar kröfur til stjórnenda um að missa ekki sjónar af arð- semi hverrar einingar fyrir sig. Einingarnar innan samsteypunn- ar eiga þá viðskipti sín á milli, en hvatinn til þess að gera sem best í slíkum viðskiptum hverfur þegar fært er milli vasa í sömu buxum. Samsteypuhugsun hefur verið ríkjandi hjá félögum eins og Eim- skipi og Flugleiðum. Flugleiðir eiga dótturfélög sem tengjast kjarnarekstri þeirra; ferðaskrif- stofur, bílaleigu, hótel og hesta- leigur. Eignatengsl milli fyrir- tækja í blokkinni eru einnig milli félaga í óskyldum rekstri. Það módel er vel þekkt í Asíu, bæði í Japan og Kóreu. Þar eru fjármálafyrirtæki gjarnan miðj- an í neti ólíkra fyrirtækja. Sér- fræðingar hafa bent á að fjár- málakreppan í Japan eigi rætur í slíkri samsetningu atvinnulífs- ins. Gylfi Magnússon segir þetta eflaust hluta skýringarinnar á erfiðleikum í efnahagslífi Jap- ans. „Þegar byggð eru upp flókin veldi er erfitt að meta stöðu fyr- irtækjanna eða jafnvel sam- steypunnar í heild. Þegar illa áraði fjaraði gjarnan meira und- an þessum fyrirtækjum áður en gripið var í taumanna heldur en hefði verið gert ef fyrirtækin hefðu verið einfaldari og rekin hvert fyrir sig.“ Þegar hlutabréfamarkaður varð til og takmarkanir á arð- greiðslum voru afnumdar hurfu líka rökin fyrir fjárfestingum í óskyldum rekstri. Eimskipafélag- ið var harðlega gagnrýnt á tíma- bili fyrir að beina hagnaði sínum inn í fjárfestingarfélag sitt Burðarás í stað þess að greiða hluthöfum meiri arð og láta þá síðan um hvernig þeir ráðstöfuðu honum. Morgunblaðið hélt uppi gagnrýni á þessa stefnu félagsins. Gagnrýnisraddirnar hljóðnuðu þegar miklar hækkanir urðu á hlutabréfamarkaði. Hækkanir sem skiluðu Burðarási miklum gengishagnaði. Tískusveiflur í fyrirtækja- rekstri Grundvallarlögmál fjármála- heimsins og mannlífsins eru nokkurn veginn þau sömu. Þar komast hlutir í og fara úr tísku. Samsteypuhugsunin er ekki í tísku. Yfirlýsingar Björgólfs eru því tímanna tákn. Áherslan er á sjálfstæð fyrirtæki sem einbeita sér að því sem þau gera best. Frjálst flæði fjármagns, virkur verðbréfamarkaður og nú síðast einkavæðing bankanna ýta undir samkeppnishugsun í íslensku við- skiptalífi. Lánaviðskipti stórra fyrirtækja eru boðin út og hag- stæðasta tilboði tekið. Stór fyrir- tæki geta sótt sér fjármagn bæði á markað og til erlendra banka ef því er að skipta. Fjármálamarkað- urinn á Íslandi er því ekki lengur það eyland sem hann var. Slíkt hlýtur að kalla á menn leiti hag- kvæmustu leiða til að fjármagna og reka fyrirtæki sín. Samkeppn- is- og viðskiptahugsun er ríkjandi hjá nýrri kynslóð í viðskiptalífinu. Ísland er lítið land og menn þekkjast þvers og kruss um sam- félagið. Þannig eru ýmis merki um samvinnu þvert á blokkir. Ís- landsbanki og Landsbanki hafa tekist á um fjárfestingarfélagið Straum, en eru á sama tíma að vinna að sameiningu sölufyrir- tækjanna SH og SÍF. Þó eigna- tengsl fari minnkandi halda menn áfram að þekkjast. Viðskipti eru auðvitað mannleg samskipti að stórum hluta og vilji manna til að vinna saman er mismikill. Löng 12 7. september 2003 SUNNUDAGUR Eftirsóknar- verðir prent- gripir Seðlabankastjóri Filippseyjasýnir nýprentaða hundrað pesó aseðla í heimsókn sinni í seðlaprentsmiðju bankans í aust- urhluta Maníla. Efnahagslíf Fil- ippseyja þykir ekki sérlega burð- ugt þessa dagana. Stjórnmála- ástandið þykir óöruggt og efna- hagslífið sýpur ennþá seyðið af uppreisn herforingja sem var kveðin niður í sumar. Gengisvísitala Gengisvísitala íslensku krónunnar mælir verðgildi erlendra gjaldmiðla gagnvart krónunni. Þegar vísitalan hækkar er verð erlendra gjaldmiðla að hækka í krónum talið. Hækkun vísitöl- unnar jafngildir því lækkun á gengi ís- lensku krónunnar. Vísitalan er samsett úr myntum þeirra þjóða sem við eig- um mest viðskipti við. Seðlabanki Ís- lands endurskoðar árlega samsetning- una í ljósi utanríkisviðskipta ársins á undan. ■ viðskipti ■ Hugtak vikunnar ■ Vikan sem leið Fresti til að skila uppgjörum fé-laga skráðra í Kauphöll Íslands er lokið. Næsta uppgjörstímabili lýkur í lok þessa mánaðar og má fara að búast við fyrstu níu mán- aða uppgjörum upp úr því. Krónan veiktist um 0,91% í vik-unni. Reiknað er með að þrýst- ingur verði í átt til veikingar krónunnar í kjölfar niðurstöðu stjórnar Landsvirkjunar um að ekki verði ráðist í framkvæmdir við Norðlingaöldu fyrr en að lokn- um framkvæmdum við Kára- hnjúka. Bæjarlind 2 Kópavogi 544 2210 www.tsk.is Tölvu- og skrifstofunám Hagnýtt og vandað 200 stunda starfsnám í takt við þarfir atvinnulífsins. Markmiðið með þessu námi er að útskrifa nemendur með hagnýta þekkingu á tölvunotkun í fyrirtækjum, bókhaldi og rekstri og kynna nýjustu tækni þar að lútandi. Þetta nám hentar þeim sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði með aukinni menntun, annast bókhald fyrirtækja og vilja öðlast mikla og hagnýta tölvuþekkingu. • Windows tölvugrunnur og skjalavarsla • Word • Excel 1 ogExcel í stjórnun og rekstri • Powerpoint glærugerð og kynningar • Myndvinnsla og stafrænarmyndavélar • Internet ogOutlook (tölvupóstur, dagbók og skipulag) • Verslunarreikningur • Virðisaukaskattur • Bókhaldsgrunnur • Tölvubókhald Kennsla hefst 15. sept. og lýkur 10. des. Kennt er þrisvar í viku. Morgun- og kvöldhópar. Verð kr. 136.000,- Innifalið eru öll námsgögnog alþjóðlegar próftökur. (TÖKpróf) (VISA/Euro eða starfsmenntalán) Helstu námsgreinar: Tölvugreinar: Viðskiptagreinar: Námið skiptist í tölvuhluta 100 kennslustundir og bókhald og rekstur 100 kennslustundir. Komin er mikil reynsla á þessa námsbraut og hefur hún verið í stöðugri þróun sl. átta ár. ATH. flest stéttarfélög niðurgreiða námskeið félagsmanna sinna Völdin rofin eða nýir valdhafar? Björgólfi Guðmundssyni munu gefast mörg tækifæri til þess að hafa áhrif á stefnuna í íslensku viðskiptalífi. Yfirlýsingar hans vekja vonir um að arðsemissjónarmið ríki yfir valda- og áhrifa- sjónarmiðum. Sumir efast og bíða þess að verkin sýni merkin. JACK WELCH Forstjóri samsteypu fyrirtækja í ólíkum rekstri. Gerði miklar kröfur um arðsemi eininganna og sló þær af ef þær uppfylltu ekki þær kröfur. KRISTINN H. GUNNARSSON Segir erfitt að slá einhverju föstu út frá yf- irlýsingum Björgólfs. BIRGIR ÁRMANNSSON Það er jákvætt ef menn vilja nýta sér tæki- færi sem nýtt viðskiptaumhverfi hefur skapað. Grundvallarlögmál fjármálaheimsins og mannlífsins eru nokkurn veginn þau sömu. Þar kom- ast hlutir í og fara úr tísku. Samsteypuhugsunin er ekki í tísku. Yfirlýsingar Björgólfs eru því tímanna tákn. Áherslan er á sjálfstæð fyrir- tæki sem einbeita sér að því sem þau gera best. Frjálst flæði fjármagns, virkur verð- bréfamarkaður og nú síðast einkavæðing bankanna ýta undir samkeppnishugsun í íslensku viðskiptalífi. Lána- viðskipti stórra fyrirtækja eru boðin út og hagstæðasta tilboði tekið. ,,

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.