Fréttablaðið - 07.09.2003, Side 24

Fréttablaðið - 07.09.2003, Side 24
Ég var á Íslandi í tíu daga fyrirsex eða sjö árum síðan, þegar ég var að vinna að grein um land- ið fyrir franskt tímarit. Ég var mest í Reykjavík en leigði mér bíl og keyrði aðeins um landið og fannst það alveg frábært,“ segir Emmanuel Carrère, sem er einn fjölmargra erlendra gesta á Bók- menntahátíð í Reykjavík sem hefst í dag. „Ég get því miður bara verið hérna í fjóra daga að þessu sinni. Ég hefði viljað vera lengur en hef ekki tíma til þess.“ Carrère er þekktastur fyrir bókina L’adversaire, eða Óvininn, sem kom út í þýðingu Sigurðar Pálssonar á síðasta ári og var end- urútgefin í kilju í síðasta mánuði. Þar sótti hann efnivið sinn í blá- kaldan raunveruleikann og sagði sögu Jean-Claude Romand, sem myrti eiginkonu sína, börn og for- eldra í ársbyrjun 1993. Hræðileg saga Mál Romands vakti vitaskuld mikinn óhug í Frakklandi á sínum tíma og réttarhöldin yfir morð- ingjanum komust í heimsfréttirn- ar. Carrère vann að bókinni í sjö ár, skrifaðist á við Romand, fylgd- ist með réttarhöldunum yfir hon- um og hitti hann í eigin persónu. „Það tók mig sex ár að finna mér útgangspunkt. Þetta er hræðileg saga. Viðfangsefnið var mér erfitt viðureignar og ég ákvað að hætta við þetta en vildi samt draga saman einhverja punkta úr þessari sex ára vinnu minni. Ég ákvað að skrifa ekki meira um málið sjálft heldur áhrif þess á sjálfan mig og það var þá sem ég fann réttu leiðina, þegar ég leit á þetta sem persónulega frásögn en ekki bók.“ Carrère hefur ekki sent frá sér bók eftir að Óvinurinn kom út og segist ekki vera með verk í vinnslu sem stendur. „Ég hef ný- lokið við kvikmyndina Retour à Kotelnitch sem ég skrifaði og leikstýrði. Hún gerist í litlum smábæ í Rússlandi og var frum- sýnd í Feneyjum á dögunum og verður tekin til sýninga í Frakk- landi í vetur.“ Örlagaríkur laugardags- morgunn Að morgni laugardagsins 9. janúar 1993, á sama tíma og Jean- Claude Romand var að myrða konu sína og börn, var ég með fjöl- skyldu minni á foreldrafundi í skólanum. Carrère byrjar bók sína á þess- ari mögnuðu setningu og finnur sjálfum sér strax stað í verkinu. Hann segir setninguna hafa verið leiðarvísi sinn inn í bókina og í framhaldinu rekur hann sögu morðingjans og segir frá kynnum sínum af honum. Carrère hefur starfað sem blaðamaður og hann segist að- spurður telja meginmuninn á starfi rithöfundarins og blaða- mannsins felast í fjarlægð þeirra á viðfangsefnið. „Ég tel mig ekki hafa skrifað Óvininn sem blaða- maður og lít á hana sem skáld- sögulega nálgun á blaðaefni. Rit- höfundurinn verður að reyna að horfa á viðfangsefni sitt úr ákveð- inni fjarlægð og taka sér góðan tíma. Blaðamaðurinn er aftur á móti með nefið ofan í viðfangsefn- inu og verður að vinna hratt.“ Hið illa í hverjum manni Carrère segir að þrátt fyrir náin kynni sín af Romand hafi hann ekki reynt að komast inn í hausinn á honum. „Það var nógu erfitt að finna rétta staðinn í mín- um huga þó ég væri ekki að reyna að setja mig í spor Romands. Ég hef ekki trú á því að vera að krukka í kollinum á öðrum. Ég gerði mér líka fulla grein fyrir því að ég myndi ekki gera neinar stór- kostlegar uppgötvanir og setti mér ekki það markmið að reyna að skilja hið óskiljanlega. Ég fann mig hins vegar knúinn til þess að segja þessa sögu. Ég hugsaði um Romand á hverjum degi öll þessi ár, um sögu hans og börnin hans sem voru á aldur við börnin mín.“ Carrère segist þó vissulega hafa unnið heimildarvinnu sína eins og blaðamaður. Hann var við- staddur réttarhöldin, ræddi við Romand, vini hans og kunningja og fór í vettvangsferðir á heima- slóðir Romands og víðar. En hvernig kom Romand Carrère fyrir sjónir? „Hann lítur alls ekki út eins og morðingi og er alls ekki nein „Hannibal Lecter“-týpa en hann er engu að síður illmenni og morð- ingi,“ segir hann. Orðið Óvinurinn er notað um djöfulinn í Biblíunni en Carrère segist þó ekki líta á Romand sem djöful í mannsmynd. „Innra með okkur öllum blundar sjálfsagt afl sem kalla má djöful og það er óvinurinn sem Romand glímdi við og sá djöfull sem ég reyndi að draga upp mynd af í bókinni. Þeir sem þekktu Romand lýstu honum sem ljúfmenni og sjálfsagt hefur hann verið það á einhvern hátt. Hann drap ekki vegna þess að hann naut þjáningarinnar held- ur vegna þess að hann óttaðist hana. Illu öflin í lífi hans voru ekki bara grimmd og blekkingar heldur ótti og tómleiki.“ Harmleikirnir heilla Óvinurinn vakti gríðarlega at- hygli þegar hún kom út í Frakk- landi og tröllreið frönskum met- sölulistum, en hvað veldur því að jafn hræðilegir atburðir og bókin fjallar um höfða svo sterkt til hins almenna lesanda? „Óvinurinn er ekki bara hryll- ingur þó sagan sé vissulega hræðileg og þó Romand sverji sig í ætt við aðra fjölda- og raðmorð- ingja tekur saga hans einnig á hlutum sem við þekkjum öll. Öll höfum við búið okkur til einhverja félagslega ímynd sem er frá- brugðin því sem við erum í raun og veru og svo er misjafnt hversu breitt bilið er þarna á milli. Í til- felli Romands var þetta hyldýpi en við þekkjum þetta öll og saga Romands leggur áherslu á þetta.“ Carrère bendir jafnframt á að áhugi á svona málum sé síður en svo nýtilkominn. „Við þekkjum öll Makbeð og Ödipus og Romand er mannlegur eins og þeir. Þetta er sjálfsagt ekki mjög huggulegt svar en þetta er eina rétta svarið. Við eigum ekki að skammast okk- ar, eins og við gerum svo oft, þeg- ar svona mál ber á góma.“ Carrère les úr verkum sínum, ásamt Hallgrími Helgasyni, Gerði Kristnýju, Per Olov Enquist og Yann Martel, í Iðnó klukkan 20 í kvöld. Á mánudaginn klukkan 20 verður hann með fyrirlestur og tekur þátt í umræðum með Sig- urði Pálssyni í nýju húsnæði Alli- ance française við Tryggvagötu 8 og í Norræna húsinu klukkan 15 á þriðjudaginn tekur hann þátt í pallborðsumræðum um hvaðan innblásturinn kemur, ásamt Jan Sonnergaard, Judith Hermann og Einari Kárasyni. thorarinn@frettabladid.is 24 7. september 2003 SUNNUDAGUR Ég ákvað að skrifa ekki meira um málið sjálft heldur áhrif þess á sjálfan mig og það var þá sem ég fann réttu leiðina, þegar ég leit á þetta sem persónulega frásögn en ekki bók. ,, Nærmynd af morðingja Franski rithöfundurinn Emmanuel Carrère vakti gríðarlega athygli með bók sinni Óvinurinn, þar sem hann sagði átak- anlega sögu manns sem myrti fjölskyldu sína eftir að blekkingarvefur sem hann hafi spunnið utan um líf sitt í 18 ár féll saman. Carrère kom til Íslands í gær og mun fjalla um verk sín á Bókmenntahátíð í Reykjavík, sem hefst í dag. Í viðtali við Fréttablaðið talar hann um verk sín og kynni sín af manninum og morðingjanum Romand. EMMANUEL CARRÈRE Fæddist í París árið 1957. Hann hefur skrifað fjölda skáldsagna, sló meðal annars í gegn með skáldsögunni Skíðaferðin og vakti heimsathygli með nýjustu skáldsögu sinni, Óvininum, sem byggir á sönnu sakamáli. Hann hefur einnig starfað sem blaðamaður og skrifað handrit bæði fyrir sjónvarps- og kvikmyndir. Ég hef ekki trú á því að vera að krukka í kollinum á öðrum. Ég gerði mér líka fulla grein fyrir því að ég myndi ekki gera nein- ar stórkostlegar uppgötvanir og setti mér ekki það mark- mið að reyna að skilja hið óskiljanlega. Ég fann mig hins vegar knúinn til þess að segja þessa sögu. Ég hugs- aði um Romand á hverjum degi öll þessi ár, um sögu hans og börnin hans sem voru á aldur við börnin mín. ,,

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.