Fréttablaðið - 03.10.2003, Síða 1
STEFNURÆÐA Skattalækkanir og rík-
isfjármál voru í forgrunni í stefnu-
ræðu Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra í gærkvöldi. Hann rifjaði
upp að skattalækkanir hefðu átt
mestan hljómgrunn stjórnmála-
flokkanna fyrir síðustu kosningar,
að Vinstrihreyfingunni – grænu
framboði undanskildu. Það ætti því
að vera ánægjuefni að verja ætti 20
milljörðum króna í skattalækkanir
á kjördæminu þó útfærsla ein-
stakra breytinga liggi ekki fyrir,
sagði forsætisráðherra.
Eins og við var að búast munaði
miklu á málflutningi stjórnarliða
og stjórnarandstæðinga í stórum
málum:
Forsætisráðherra og Guðni
Ágústsson, varaformaður Fram-
sóknarflokksins, lögðu áherslu á að
halda í varnarliðið á Keflavíkur-
flugvelli. „Við vitum það öll að það
er ekki lengur á vísan að róa þar
sem Bandaríkjamenn eru,“ sagði
hins vegar Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingar, og lagði
áherslu á sterkari samskipti við
Evrópusambandið.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, og Össur
lýstu áhyggjum af kjörum og að-
stæðum verkamanna við Kára-
hnjúka. Sagði Steingrímur nú kom-
ið í ljós að tilboði Impregilo í fram-
kvæmdirnar hefði verið tekið þó
ljóst hefði verið að greiða þyrfti
fyrirtækinu mun meira en sem til-
boðinu nam. Landbúnaðarráðherra
fagnaði hins vegar framkvæmdun-
um og þeim efnahagsávinningi sem
þær hefðu í för með sér.
„Ríkisstjórnin lemur hausnum
við steininn og neitar að hlusta,“
sagði Magnús Þór Hafsteinsson,
varaformaður Frjálslynda flokks-
ins, og átaldi stefnu ríkisstjórnar-
innar í sjávarútvegsmálum sem
hefði leitt ófá sveitarfélög í ógöng-
ur. Hann furðaðist jafnframt að
einungis fjórum línum væri varið í
svo mikilvægan málaflokk í stefnu-
ræðu forsætisráðherra.
Halldór Blöndal, forseti Alþing-
is, gerði leka á stefnuræðu forsæt-
isráðherra til fréttastofu Stöðvar 2
að umræðuefni í upphafi umræð-
unnar. „Þetta verður áfram til at-
hugunar og hvernig skuli brugðist
við því.“
brynjolfur@frettabladid.is
SEÚL, AP Spennan jókst enn á
Kóreuskaga þegar stjórnvöld í
Norður-Kóreu lýstu því yfir að
þau hefðu framleitt nægilegt
magn plútons til að smíða sex
kjarnorkusprengjur. Choe Su-hon
aðstoðarutanríkisráðherra segir
að Norður-Kóreumenn hafi ekki
átt annarra kosta völ þar sem
Bandaríkin hafi hótað að beita
kjarnorkuvopnum gegn landinu.
Í viðtali við kínversku frétta-
stofuna Xinhua sagði Choe Su-hon
að kommúnistaríkið hefði lokið
við að endurvinna 8.000 kjarn-
orkueldsneytisstangir. Þetta er í
fyrsta sinn sem Norður-Kóreu-
menn viðurkenna opinberlega að
þeir séu að undirbúa framleiðslu
kjarnorkuvopna en fyrr á þessu
ári gáfu stjórnvöld í skyn að byrj-
að væri að endurvinna eldsneytis-
stangir.
Norður-kóreskir ráðamenn
fullyrða sem áður að aðgerðir
þeirra séu í friðsamlegum til-
gangi. Þeir segjast ekki hafa í
hyggju að selja kjarnorkuvopn
eða tækniþekkingu úr landi eins
og Bandaríkjamenn óttast. Tals-
maður suður-kóreska utanríkis-
ráðuneytisins og ýmsir sérfræð-
ingar benda á að Norður-Kóreu-
menn séu að líkindum fyrst og
fremst að reyna að styrkja stöðu
sína í samningaviðræðum við
Bandaríkin. ■
fengu frábæra dóma
Rómeó og Júlía:
▲
SÍÐA 46
Leiksigur í
London
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 40
Leikhús 40
Myndlist 40
Íþróttir 36
Sjónvarp 44
FÖSTUDAGUR
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í sept. ‘03
Meðallestur fólks 25-49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
á föstudögum
80%
54%
20%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
REGLUR TIL SKOÐ-
UNAR Stórviðskipti
með félög í Kauphöll Ís-
lands vekja margar
spurningar að mati
Greiningardeildar Kaup-
þings Búnaðarbanka.
Kauphöllin segir ekki ágreining um að
skoða þurfi reglur um fjárhagsleg tengsl og
yfirtökuverð félaga. Sjá síðu 2.
LINKIND EFTIRLITSSTOFNANA
Framkvæmdastjóri ASÍ segir að sú linkind
sem eftirlitsstofnanir hafi sýnt Impregilo
komi á óvart. Fyrirtækið hafi fengið frest og
áminningar mánuðum saman en aðbúnaði
sé enn ábótavant. Sjá síðu 2.
EKKERT MÓTFRAMLAG Ríkið ætlar
að hætta að leggja með launþegum sem
leggja hluta launa sinna í aukalífeyrissparnað
samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Sjá síðu 4.
MEINT STJÓRNSÝSLUBROT Kvik-
myndamiðstöð Íslands hefur verið kærð
fyrir að fara ekki að reglum við styrkveiting-
ar. Kærandi telur að stofnunin hafi dregið
sér allt vald vegna styrkúthlutana framtíðar-
innar. Sjá síðu 10.
STEPHANSSTEFNA HÁSKÓLA
ÍSLANDS 150 ár eru í dag liðin frá
fæðingu Stephans G. Stephanssonar. Í til-
efni af því verður haldin ráðstefna um
skáldið, samtíð hans, verk og hugmyndir
í hátíðarsal Háskóla Íslands. Ráðstefnan
sem stendur fram á sunnudag verður sett
klukkan 20.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJARTUR Í HAUSTVEÐRI Enda þótt
sólin skíni í heiði víða um land vantar að-
eins upp á hitann svo notalegt sé. Ef sam-
an fer hins vegar sól í hjarta og sól í heiði
fer allt vel. Sjá síðu 6.
3. október 2003 – 240. tölublað – 3. árgangur
matur o.fl.
vín ● uppáhaldsmaturinn
Gamla góða kartaflan:
▲
SÍÐUR 26 og 27
Í nýjum
búningi
Norður-Kóreumenn undirbúa framleiðslu kjarnorkuvopna:
Eiga plúton í sex sprengjur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Ný stjórn Eimskips:
Magnús
líklegur
HLUTHAFAFUNDUR Verið er að ræða
við Magnús Gunnarsson, fyrrver-
andi formann bankaráðs Búnaðar-
bankans, um að hann setjist í
stjórn Eimskipafélagsins og taki
við formennsku, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins.
Búið er að ganga frá því að í
stjórninni taki sæti Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson, stjórnar-
formaður Tryggingamiðstöðvar-
innar, en Tryggingamiðstöðin á
stóran hlut í félaginu. Þá mun
Sindri Sindrason, fyrrverandi for-
stjóri Pharmaco, taka sæti í
stjórninni auk Baldurs Guðna-
sonar, framkvæmdastjóra Sjafnar
og stjórnarmanns í Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna. ■
FRÁ STEFNURÆÐU FORSÆTISRÁÐHERRA
Skattalækkanir og góður árangur í efnahagsmálum voru útgangspunktar
forsætisráðherra í stefnu ræðu sinni.
Áhersla á skatta og
rétt verkamanna
Stjórnarliðar lögðu áherslu á skattalækkanir og góðan árangur í efna-
hagsmálum í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra. Stjórnarand-
stæðingar lýstu áhyggjum af kjörum verkamanna við Kárahnjúka.
persónuleikapróf ● sjónvarpsdagskrá
Álfrún Örnólfs:
▲
fylgir Fréttablaðinu dag
Komin heim
frá London
birta
Dómur þyngdur:
Sex ár fyrir
manndráp
DÓMUR Baldur Freyr Einarsson var
í gær dæmdur í Hæstarétti í sex
ára fangelsi og Gunnar Friðrik
Friðriksson í þriggja ára fangelsi
fyrir stórfellda líkamsárás. Þeir
réðust saman á Magnús Frey Svein-
björnsson í Hafnarstræti í maí í
fyrra, með þeim afleiðingum að
Magnús lést af völdum áverkanna.
Hæstiréttur þyngdi fangelsis-
dóm Baldurs Freys úr þremur
árum í sex ár. Hann hafði einnig
ráðist á og slasað tvo aðra menn í
apríl í fyrra. Fangelsisdómur
Gunnars Friðriks var hins vegar
þyngdur úr tveimur árum í þrjú.
Þótti Hæstarétti ekki annað fært
með hliðsjón brotanna en að
þyngja dómana. Frá fangavistinni
verður dregið óslitið gæsluvarð-
hald frá því 26. maí á síðasta ári. ■
SUÐUR OG NORÐUR
Suður-kóreskur hermaður talar í talstöð
við hliðina á norður-kóreskum starfsbróður
sínum í landamæraþorpinu Panmunjom.
MAGNÚS
Viðræður eiga sér
stað við Magnús
um að hann taki
við formennsku í
stjórn Eimskips.
STEFNURÆÐA „Málefni sem varða
fjölskylduna og fatlaða verða
meðal mála sem Frjálslyndi
flokkurinn mun flytja á þessu
kjörtímabili,“ sagði Sigurlín
Margrét Sigurðardóttir, þing-
maður Frjálslynda flokksins.
Hún varð í gærkvöldi fyrsti
þingmaðurinn til að flytja ræðu
sína með aðstoð táknmálstúlks.
Sigurlín lýsti eftir umbótum
og kallaði eftir átaki til að bæta
aðstæður heyrnarlausra. ■
SIGURLÍN MARGRÉT
Fyrsti heyrnarlausi þingmaðurinn.
Tímamótaræða flutt með aðstoð túlks:
Aukinn rétt fatlaðra