Fréttablaðið - 03.10.2003, Blaðsíða 6
6 3. október 2003 FÖSTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76,04 0,07%
Sterlingspund 126,58 0,34%
Dönsk króna 11,97 0,03%
Evra 88,88 0,03%
Gengisvísitala krónu 125,46 0,19%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 372
Velta 7.987 milljónir
ICEX-15 1.825 0,68%
Mestu viðskiptin
Íslandsbanki hf 533.489.313
Sjóvá-Almennar hf. 268.908.267
Pharmaco hf. 181.942.751
Mesta hækkun
Grandi hf. 8,46%
Pharmaco hf. 2,10%
Tryggingamiðstöðin hf. 1,41%
Mesta lækkun
Samherji hf. -2,11%
Kaupþing Búnaðarbanki hf. -0,54%
Opin Kerfi Group hf. -0,52%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.473,1 0,0%
Nasdaq* 1.829,2 -0,2%
FTSE 4.209,1 1,0%
DAX 3.284,0 -1,4%
NK50 1.350,4 0,0%
S&P* 1.017,7 -0,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hvað heitir Íslendingurinn sem hugs-anlega er á leið í atvinnumennsku í
hnefaleikum?
2Hvað heitir leiðtogi Íslamskt Jihadsem handtekinn var í Palestínu?
3Hvaða ár er stefnt að því að opnanýtt tónlistar- og ráðstefnuhús við
Reykjavíkurhöfn?
Svörin eru á bls. 47
Borgarstjórinn í Reykjavík:
Metframboð af lóðum
SKIPULAG Þórólfur Árnason borg-
arstjóri sagði á fundi borgar-
stjórnar í gær að lóðaframboð í
Reykjavík hefði ekki verið meira
frá árinu 1984. Áætlað er að í ár
hefjist bygging 850 íbúða.
„Reykjavíkurborg sjálf ráð-
stafar lóðum undir 680 íbúðir, sem
er það mesta frá árinu 1984, þeg-
ar fyrstu 700 lóðunum í Grafar-
vogi var ráðstafað. Þá eru ótaldar
íbúðir á lóðum í umsjá einkaaðila,
það er 80 íbúðir í Skuggahverfi, 22
íbúðir í Rimahverfi og 47 íbúðir á
Alaskareit auk fleiri verkefna
undir merkjum þéttingar byggð-
ar. Lóðaframboð í Reykjavík á ár-
inu 2003 er því með því mesta, ef
ekki það mesta sem verið hefur,“
sagði í svari Þórólfs við fyrir-
spurn sjálfstæðismanna.
Sjálfstæðismenn hafa sagt að
lóðaskortur í Reykjavík hafi leitt
til hækkandi lóða- og fasteigna-
verðs með tilheyrandi hækkun á
fasteignamati og fasteignaskött-
um. „Þessi þróun leiðir síðan til
þess að húsaleiga á almennum
markaði hækkar enn frekar,“
sögðu sjálfstæðismenn þegar fyr-
irspurn þeirra var sett fram borg-
arráði í september. ■
Vanskil Impregilo
eru áhyggjuefni
VIÐSKIPTI „Aðaláhyggjuefnið er
það að þessar framkvæmdir eru
rétt að hefjast,“ sagði Andrés
Magnússon, framkvæmdastjóri
Samtaka verslunarinnar, en sam-
kvæmt upplýsingum þeirra er
ítalska verktakafyrirtækið
Impregilo í talsverðum vanskilum
við fyrirtæki innan samtakanna.
Um er að ræða 30 milljóna króna
vanskil til 14 fyrirtækja og þegar
hafa nokkur þeirra lokað á frekari
viðskipti við Ítalina.
„Ef fram heldur sem horfir er
þetta verulegt áhyggjuefni fyrir
verslun og þjónustu og það er
fyrst og fremst tilgangur okkar
að benda á að þetta viðgengst.
Við höfum áhyggjur af því að
Impregilo virði ekki þær leik-
reglur sem viðgangast í íslensku
viðskiptalífi.“
Andrés segir litið svo á hér á
landi að ef pöntun berist sé hún
afgreidd og þar með séu komin á
viðskipti án þess að formlegur samningur hafi verið undirritað-
ur. „Ef í hart fer þurfa íslensk fyr-
irtæki að senda reikninga til inn-
heimtu til Ítalíu. Það hefur aukinn
kostnað í för með sér. Það eru hins
vegar takmörk fyrir því hvað
hagsmunasamtök geta gert. Við
beitum engum refsingum en
bendum einungis á að miðað við
reynslu nokkurra fyrirtækja inn-
an okkar vébanda geta viðskipti
við Impregilo verið varhuga-
verð.“
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, sagði
að stofnunin vissi ekkert annað en
komið hefði fram i fjölmiðlum.
„Það er alveg ljóst að viðskipti
Impregilo hér á landi skipta háum
upphæðum og eftir því sem mér
skilst er ekki um mikil vanskil að
ræða. Það þarf ekki að koma á
óvart að greiðsla reikninga geti
tekið lengri tíma en venja þykir
þegar um svo stórt verkefni er að
ræða. Landsvirkjun vill að sjálfs-
sögðu að allt gangi vel í samskipt-
um Impregilo og fyrirtækja hér-
lendis en við höfum ekki haft af-
skipti af þessu máli á þessari
stundu.“
albert@frettabladid.is
Ríki og kirkja:
Flestir vilja
aðskilnað
KÖNNUN Tveir af hverjum þremur
sem afstöðu taka segjast fylgj-
andi aðskilnaði ríkis og kirkju,
samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi
Gallups. Einungis einn af hverj-
um þremur er andvígur aðskiln-
aði.
Ef svör allra eru skoðuð kem-
ur í ljós að 59% eru hlynnt að-
skilnaði ríkis og kirkju, 29% eru
honum andvíg og tæp 13% taka
ekki afstöðu til spurningarinnar
um aðskilnað ríkis og kirkju.
Bæði Samfylking og Frjáls-
lyndi flokkurinn hafa boðað
þingmál um aðskilnað ríkis og
kirkju. ■
Sérþjálfaðir hundar:
Þefa uppi
peningaseðla
LUNDÚNIR, AP Hundur, sem þjálfað-
ur hafði verið til að þefa uppi pen-
ingaseðla, hjálpaði bresku lögregl-
unni að finna sem svarar rúmum
þremur milljónum íslenskra króna.
Peningarnir voru í tösku manns
á Euston-lestarstöðinni í Lundún-
um. Lagt var hald á peningana þar
sem maðurinn gat ekki svarað
spurningum lögreglunnar um það
hvaðan féð kæmi.
Alls hafa 25 hundar verið
þjálfaðir til að þekkja lyktina af
blekinu sem notað er við prentun
peningaseðla í Bretlandi. Þessir
hundar hafa nú þegar fundið sem
svarar yfir 100 milljónum íslenskra
króna í reiðufé fyrir lögregluna. ■
BORGARSTJÓRI
Ekki meira lóðaframboð í Reykjavík í
19 ár, sagði Þórólfur Árnason í gær.
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunarinnar segir mörg fyrirtæki
innan sinna vébanda hafa vaxandi áhyggjur af vanskilum verktaka-
fyrirtækisins Impregilo hér á landi.
ÞORSTEINN HILMARSSON
Engin mál tengd vanskilum Impregilo hér
á landi hafa komið til kasta Landsvirkjunar.
ANDRÉS MAGNÚSSON
Segir félaga í Samtökum verslunarinnar
hafa áhyggjur af vanskilum Impregilo.
Stjórnarkjör í Heimdalli:
Ofbeldi
gagnvart
ungu fólki
KOSNINGAR Átta hundruð ungir
sjálfstæðismenn sem ekki fengu
að kjósa við stjórnarkjör í Félagi
ungra sjálfstæðismanna hafa und-
irritað yfirlýsingu þar sem vinnu-
brögð fráfarandi stjórnar
Heimdallar vegna stjórnarkjörs-
ins eru harðlega gagnrýnd. Þar er
mótmælt þeim „óforsvaranlegu“
vinnubrögðum stjórnarinnar að
koma í veg fyrir eðlilega kosningu
nýrrar stjórnar. Ekki sé hægt að
kalla þetta annað en ofbeldi gagn-
vart ungu fólki.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
sem framboð Bolla Thoroddsen
sendi frá sér. Framboðið var dreg-
ið til baka eftir að ljóst var að
stjórn Heimdallar ætlaði sér ekki
að leyfa atkvæði hátt í eitt þúsund
stuðningsmanna framboðs Bolla.
Ástæðan var sögð vera grunur um
að brögð væru í tafli. ■
MARGIR ÓSPENNTIR Í UMFERÐ-
INNI Lögreglan í Ólafsvík stöðv-
aði hátt í þrjátíu ökumenn í gær
fyrir að vera ekki með bílbeltin
spennt.
■ Lögreglufréttir
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M