Fréttablaðið - 03.10.2003, Qupperneq 8
FJÖLMIÐLUN Stöð 2 braut ekki siða-
reglur Blaðamannafélags Íslands
með umfjöllun þáttarins Íslands í
bítið um erótískt nudd og vændi.
Þetta er niðurstaða siðanefndar
Blaðamannafélagsins.
Dagana 1. og 2. apríl á þessu ári
sendi Stöð 2 út upptökur af samtöl-
um við erótískan nuddara annan
daginn og vændiskonu hinn dag-
inn. Samtölin voru tekin upp án vit-
undar nuddaranna og voru send út
með brenglaðri mynd og hljóði.
Siðanefndin sagðist að öðru
jöfnu vera sammála lögmanni
kærendanna, viðmælendanna í
Íslandi í bítið, um að „hin óhefð-
bundnu vinnubrögð við efnisöfl-
un“ hjá nuddaranum og vændis-
konunni hefðu getið falið í sér
brot á siðareglum Blaðamannafé-
lagsins:
„Á hinn bóginn ber að líta til
þess að um er að ræða starfsemi
sem erfitt er að afla upplýsinga
um en óhjákvæmilega kallar á um-
fjöllun fjölmiðla, starfsemi þar
sem ólíklegt var að hefðbundin
vinnubrögð fréttamanns hefðu
skilað fullnægjandi árangri. Þess
var gætt við útsendingu efnisins
að kærendur þekktust ekki. Hljóð
og mynd voru brengluð þannig að
jafna má við nafnleynd kærenda,“
sagði siðanefndin sem taldi um-
fjöllunina hafa verið innan þeirra
marka sem viðmælendurnir
„máttu búast við“. ■
8 3. október 2003 FÖSTUDAGUR
■ Evrópa
Gleyma óperunni
„Nú ætlar R-listinn í Reykjavík
að byggja tónlistarhús, en
gleyma óperunni.“
Gunnar I. Birgisson
í Fréttablaðinu 2. október.
Enn bláeygur
„Ég er enn svo bláeygur að
trúa því að eftir hálfrar aldar
bið sé nú loksins kominn tími á
húsið þótt margt bendi reyndar
til þess að það verði ekki byggt
fyrr en búið er að byggja allar
þær virkjanir, fótboltastúkur,
sundlaugar og jarðgöng sem
hægt er að koma fyrir í þessu
landi.“
Árni Tómas Ragnarsson
í Morgunblaðinu 2. október.
Græða, græða
„Bankarnir eru í einkaeigu og
þeirra hlutverk er að græða.“
Hjálmar Árnason
í DV 2. október.
Orðrétt
FORDÓMAR „Engar rannsóknir hafa
verið gerðar á fordómum í garð út-
lendinga hér á landi. Því er aðeins
hægt að byggja á tilfinningu og því
sem fólk heyrir frá útlendingum á
Íslandi,“ segir
Gerður Gestsdóttir,
v e r k e f n a s t j ó r i
fræðslumiðstöðvar
Alþjóðahússins, um
kynþáttafordóma á
Íslandi.
Gerður telur
óhætt að fullyrða
að engir alvarlegir
fordómar séu
gagnvart útlend-
ingum sem líta út eins og Íslend-
ingar. Misjafnt sé hvernig því er
farið með sýnilega útlendinga.
„Sumir lenda aldrei í neinu en aðr-
ir oft. Í rauninni fer það eftir því
hvar fólk er á ferðinni. Þeir sem
fara mikið út að skemmta sér
verða meira fyrir fordómum en
aðrir. Þegar Íslendingar eru
drukknir eru þeir dónalegri en
annars og lenda stelpur frá Asíu
oft í mjög ljótum atvikum.“
Gerður segir að ef útlendingar
séu með íslenskum vinum sínum
beri minna á fordómum. Ef þeir
séu einir eða með samlöndum sín-
um lendi þeir verr í því.
Hún segir að fordómar sem út-
lendingar verði fyrir séu ekki
endilega beinir eða ögrandi þó það
gerist líka. Meira sé um að fólk
nenni ekki að tala við þá eða að
þeir fái ekki sömu þjónustu og
aðrir. „Þeim er neitað um hluti
sem aðrir fá af því að þeir tala
ekki nógu góða íslensku og sá sem
beitir misréttinu gerir sér jafnvel
ekki grein fyrir því.“
Gerður segir að skoða verði
hvernig sé tekið á móti útlending-
um sem koma til Íslands. Vel sé
tekið á móti börnum í Reykjavík;
þar sé ákveðið aðlögunarferli og
stuðningskennsla. Fullorðnir fari
flestir beint inn á vinnumarkað-
inn og verkalýðsfélögin hafi stað-
ið sig mjög vel. Hún lýsir hins
vegar áhyggjum af stálpuðum
unglingum, hópnum sem hvorki
er í skóla né vinnu. Þeir eru of
gamlir til að fara í grunnskóla og
of ungir til að fá vinnu auk þess að
tala ekki íslensku. „Þessi krakkar
lenda utan við kerfið, eiga hvergi
heima og tala ekki tungumálið.
Þeir eru líka á viðkvæmum aldri,
erfitt að fara frá landinu sínu og
vinum. Mjög mikilvægt er að gera
eitthvað fyrir þennan hóp til að
fyrirbyggja vandamál.“
hrs@frettabladid.is
Lyfjainnflutningur:
Ekki farið
að reglum
INNFLUTNINGUR Samtök verslunar-
innar telja að ekki sé farið eftir
leikreglum varðandi innflutning á
lyfjum eins og Landspítali – Há-
skólasjúkrahús og aðilar því
tengdir hafa staðið fyrir. Leitt er
líkum að því að ákvæði laga og
reglugerða um innflutning og
heildsöludreifingu séu ekki með
öllu uppfyllt og að samtökin munu
leita leiða til að koma í veg fyrir
innflutning sem á sér ekki laga-
stoð.
Þegar hafa samtökin fundað
með Lyfjastofnun, heilbrigðisráð-
herra og öðrum aðilum en engin
niðurstaða fengist enn. ■
FÆRRI LÁTAST Í UMFERÐINNI
Rúmlega 3.400 manns létu lífið
í umferðarslysum á Bret-
landseyjum á síðasta ári, litlu
færri en árið áður. Þeim sem
látast vegna atvika sem tengj-
ast ölvunarakstri fjölgar milli
ára og voru 560. Það er þó mun
minna en metárið 1979 þegar
1.640 létust af þeim sökum.
PÓSTUR SPRINGUR Sprengja
sprakk á skrifstofum ítalska
verkalýðsmálaráðuneytisins í
Róm í gær án þess að nokkur
slasaðist. Sprengjan barst í
pósti. Sendingin vakti furðu
starfsmanns, sem kallaði lög-
reglu til.
ÁFRAM Í FANGELSI Ronnie
Biggs, einn þátttakendanna í
Lestarráninu mikla sem framið
var fyrir 40 árum, hefur tapað
áfrýjun sinni. Hann fór þess á
leit að sleppa, vegna bágrar
heilsu, við að afplána afganginn
af 30 ára fangelsisdómi.
debenhams
S M Á R A L I ND
Higher Energy er n‡r ilmur fyrir karlmenn.
Komdu í Debenhams um helgina og prófa›u.
Higher Energy - og hjarta‹ slær hra›ar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
21
20
10
/2
00
3
nýr ilmur fyrir karlmenn
SKIPULAG Borgarráð Reykjavíkur
hefur synjað ákalli eigenda íbúð-
arhúss í Heiðargerði um að hlífa
þeim við að þurfa að rífa viðbót
við ris hússins.
Fólkið fær 50 daga frest til að
rífa viðbygginguna, sem Hæsti-
réttur hefur dæmt ólöglega. Sekta
á fólkið um 50 þúsund krónur fyr-
ir hvern dag sem líður fram yfir
frestinn þar til risið hefur verið
rifið.
Lögmaður fólksins segir í bréfi
til borgarstjórans í Reykjavík að
eigendur hússins líti ekki svo á að
um „óleyfisbyggingu“ sé að ræða.
Eins liggi fyrir vilyrði frá fyrr-
verandi formanni skipulags- og
byggingarnefndar, Árna Þór Sig-
urðssyni, um að ekki yrði óskað
niðurrifs meðan unnið væri að
deiliskipulagi Heiðargerðisreits-
ins. „Byggingarfulltrúinn í
Reykjavík sagði einnig á fundi
með umbjóðanda okkar og syni
hans að ef krafist yrði niðurrifs á
viðbyggingunni yrði veittur sex
mánaða frestur,“ fullyrðir lög-
maðurinn og bætir því við að fjár-
hæð dagsektanna sé fáheyrð:
„Reykjavíkurborg er hér að
eiga við ellilífeyrisþega sem hafa
verið búsettir í Reykjavík frá
fæðingu,“ segir lögmaðurinn. ■
GERÐUR GESTSDÓTTIR
Gerður segir að útlendingar verði ekki endilega fyrir beinum eða ögrandi fordómum.
■
„Þeim er neitað
um hluti sem
aðrir fá af því
að þeir tala
ekki nógu góða
íslensku og sá
sem beitir mis-
réttinu gerir sér
jafnvel ekki
grein fyrir því.“
HEIÐARGERÐI
Hæstiréttur segir byggingarleyfi sem borg-
in gaf út á sínum tíma ekki samrýmast
skipulagi svæðisins.
Ákall húseigenda hefur ekki áhrif á borgarráð:
Þyrma ekki risi
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
STÖÐ 2
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands segir
að siðareglur félagsins hafi ekki verið brotn-
ar með útsendingu Stöðvar 2 á samtölum
sem tekin voru upp án vitundar viðmæl-
endanna; erótísks nuddara og vændiskonu.
Siðanefnd um samtöl Stöðvar 2 við vændiskonu og erótískan nuddara:
Heimilt að senda út leyniupptökur
Skortir
úrræði fyrir
unglinga
Gerður Gestsdóttir hjá Alþjóðahúsinu lýsir
yfir áhyggjum af stálpuðum unglingum sem
flytja til Íslands og eru hvorki í skóla né vinnu.