Fréttablaðið - 03.10.2003, Síða 10
10 3. október 2003 FÖSTUDAGUR
HEITAR TILFINNINGAR
Lagafrumvarp sem auðveldar Silvio
Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, að auka
við fjölmiðlaveldi sitt hefur verið fyrirferð-
armikið í umræðu á þingi síðustu daga.
Skoðanir eru mjög skiptar.
Kvikmyndamið-
stöð Íslands kærð
Passport Kvikmyndir kæra Kvikmyndamiðstöð Íslands fyrir að fara
ekki að reglum við styrkveitingar. Þá hafi stofnunin með túlkun sinni á
reglugerð dregið sér allt vald vegna styrkúthlutana framtíðarinnar.
Halldór Blöndal og
línuívilnunin:
Hefur skipt
um skoðun
STJÓRNMÁL Halldór Blöndal, al-
þingismaður Sjálfstæðisflokksins
og forseti Alþingis, hefur skipt
um skoðun á því hvort línuívilnun
eigi rétt á sér. Í Auðlindinni á Rás
1 í fyrradag lýsti hann því yfir að
hann styddi
ekki að línu-
ívilnun yrði
tekin upp svo
sem samþykkt
hefur verið
innan beggja
stjórnarflokk-
anna og er
skjalfest í
stefnuyfirlýs-
ingu ríkis-
stjórnarinnar.
Þetta sjón-
armið Hall-
dórs gengur
þvert á það
sem hann
sagði í grein í Morgunblaðinu þann
15. apríl, fimm vikum fyrir kosn-
ingar. Þar gagnrýndi hann ábyrgð-
arlausa stefnu annara flokka og
bar saman við stefnu Sjálfstæðis-
flokksins. „Við Sjálfstæðismenn
samþykktum að ívilna línubátum
sem auðvitað kemur sér víða vel.
Áður hafði dagabátum verið íviln-
að. En auðvitað eru sjómenn ekki
ánægðir að fá ekki að róa eins og
þeir vilja. Vinstri flokkarnir gera
út á þá óánægju og vona að at-
kvæðin bíti í agnið...“, sagði Hall-
dór í grein sinni. ■
DAUÐADÓMUR
Ali Ghufron verður leiddur fyrir
indónesíska aftökusveit.
Sprengjuárásirnar á Balí:
Dæmdur
til dauða
BALÍ, AP Dómstólar í Indónesíu
hafa dæmt Ali Ghufron til dauða
fyrir að skipuleggja sprengjutil-
ræðin á Balí á síðasta ári. Ghufron
er þriðji maðurinn sem hlýtur
dauðadóm fyrir aðild að árásun-
um en tólf aðrir menn hafa verið
dæmdir í fangelsi.
Dómarar fundu Ghufron sekan
um að hafa haft yfirumsjón með
skipulagningu hryðjuverka-
árásanna á Balí. Hann sýndi engin
merki um iðrun en notaði réttar-
höldin til þess að koma á framfæri
andúð sinni á Bandaríkjunum.
„Dómurinn er ekki í samræmi við
kennisetningar íslam,“ sagði
Ghufron, sem hyggst áfrýja til
æðri dómstiga. ■
Lífstíðarfangelsi:
Myrti sex
börn sín
BRESKA KÓLUMBÍA, AP Dómstólar í
Bresku Kólumbíu í Kanada
dæmdu bónda á fimmtugsaldri í
lífstíðarfangelsi fyrir að myrða
börn sín sex. Jay Handel játaði að
hafa banað börnunum en lýsti sig
saklausan af ákærum um morð af
yfirlögðu ráði á þeim forsendum
að hann þjáðist af geðtruflunum.
Handel kyrkti og skaut til bana
syni sína og dætur, á aldrinum
tveggja til ellefu ára, á heimili
fjölskyldunnar á Vancouver-eyju.
Því næst kveikti hann í húsinu og
sótti móður barnanna til að sýna
henni brunarústirnar.
Handel getur sótt um reynslu-
lausn eftir 25 ár. ■
SorpaDalvegur
LagersalaSmárator
g
Allt a
ð
90%
afslá
ttur
Örn Árna timburmaður stjórnar
uppboði á þremur sumarhúsum
ásamt ýmsu öðru á morgun kl. 14.
Í dag er opið frá 12 –19.
KVIKMYNDAGERÐ Einar Þór Gunn-
laugsson kvikmyndaleikstjóri
segir Kvikmyndamiðstöð Íslands
hafa „dregið til sín allt vald vegna
úthlutunar til íslenskrar kvik-
myndagerðar í framtíðinni“ með
því að túlka svo-
kallaða 40/60
mótvirðisreglu
þannig að hún sé
ekki sjálfvirk.
F y r i r t æ k i
Einars, Passport
K v i k m y n d i r,
hefur kært
Kvikmyndamið-
stöðina fyrir að
brjóta á rétti fyrirtækisins.
Samkvæmt reglum frá í mars
er forstöðumanni Kvikmyndamið-
stöðvarinnar heimilt að úthluta
styrkjum fyrir allt að 40% fram-
leiðslukostnaðar kvikmynda hafi
kvikmyndafyrirtækinu sjálfu tek-
ist með öðrum hætti að tryggja
fjármögnum 60% kostnaðarins.
Reglan gildir um kvikmyndir sem
kosta allt að 100 milljónir króna.
Forstöðumaðurinn getur beitt
reglunni án samráðs við sérstaka
kvikmyndaráðgjafa.
Á grundvelli þessarar nýju
reglu sótti Passport Kvikmyndir
um 40 milljóna króna styrk til
gerðar myndarinnar „Grunsam-
lega venjulegur“. Erlendir fjár-
festar höfðu ábyrgst 60 milljónir
af kostnaðinum. Beiðni Einars var
hafnað og óskaði hann skýringa.
Einar segir svar forstöðumanns-
ins staðfesta að nefnd mótvirðis-
regla sé ekki sjálfvirk:
„Passport Kvikmyndir metur
það svo að 40/60 reglan sé ekki
virk nema að hún sé að mestu
leyti sjálfvirk, og að greinilega sé
ekki fylgt þeirri stefnu, og vilja
fagsins, að taka mið af markaðn-
um. Í stað þess hefur KMÍ (Kvik-
myndamiðstöðin) með túlkun
sinni á reglugerðinni dregið til sín
allt vald vegna úthlutunar til ís-
lenskrar kvikmyndagerðar í
framtíðinni. Þetta eru því nokkur
tíðindi fyrir íslenska kvikmynda-
framleiðendur,“ segir í tilkynn-
ingu frá Passport Kvikmyndum.
Einar Þór segir Passport Kvik-
myndir nú hafa kært Kvikmynda-
miðstöðina fyrir meðferð á styrk-
umsóknum þess. Stofnunin hafnaði
í síðustu viku að veita fyrirtækinu
styrk til eftirvinnslu myndarinnar
„Third Name“. Einar segir ljóst að
aðeins annar af tveimur kvik-
myndaráðgjöfum hafi gefið um-
sögn um verkefnið en ekki báðir
eins og reglur segi til um.
Laufey Guðjónsdóttir forstöðu-
maður segir kæruna ekki hafa
borist Kvikmyndamiðstöðinni.
„Reglurnar segja ekkert um það
að tveir ráðgjafar eigi að fara yfir
allar umsóknir. Fólk getur hins
vegar áfrýjað umsögn annars ráð-
gjafans yfir til hins. Það hefur
Einar ekki gert,“ segir Laufey.
gar@frettabladid.is
Sjálfboðaliðar til Palestínu:
Aðstoða
bændur
SJÁLFBOÐALIÐAR Tveir íslenskir
sjálfboðaliðar á vegum félagsins
Ísland – Palestína eru nú staddir í
Palestínu. Þetta eru þau Sigrid
Valtingojer listakona og Viðar Þor-
steinsson, varaformaður félagsins.
Tilgangur fararinnar er að veita
palestínskum bændum vernd gagn-
vart hernámsliði og landtökumönn-
um frá Ísrael á meðan ólífutínslan
fer fram.
„Við byrjum á að fara á stutt
námskeið áður en við hefjumst
handa við ólífutínsluna og síðan er
ætlunin að aðstoða við hjálpar-
störf á herteknu svæðunum,“
sagði Viðar. ■
Rússar ítreka mikilvægi öflugra varna:
Vara vesturveldin við
MOSKVA, AP Ef Atlantshafsbandalag-
inu verður viðhaldið sem hernaðar-
bandalagi með árásarstefnu sína
óbreytta þrýstir það á um mikla
enduruppbyggingu og nýja stefnu-
mótun rússneska hersins, segir í
skjali rússneska varnarmálaráðu-
neytisins sem dreift var til fjöl-
miðla í gær. Meðal þess sem verði
að endurskoða sé stefnumótun í
kjarnorkuvígbúnaði.
Vladimír Pútín Rússlandsfor-
seti tók ekki jafn sterkt til orða á
blaðamannafundi síðar sama dag
og er ekki vitað hvort skjalið nýtur
blessunar hans. Hann sagði að þó
Rússar leituðust við að auka vægi
alþjóðalaga og auka samvinnu við
önnur ríki þýddi það ekki að Rúss-
ar ættu að hætta að sinna varnar-
málum sínum.
Varnarmálaráðherra Pútíns,
Sergei Ivanov, tók nokkuð sterkar
til orða og vildi ekki útiloka að
Rússar kynnu að gera árás að fyrra
bragði ef þeir teldu sér ógnað. ■
ÞRIÐJA NAFNIÐ
Passport Kvikmyndir sóttu um allt að tíu milljóna króna eftirvinnslustyrk vegna kvikmynd-
arinnar „Third Name“. Umsókninni var hafnað. Fyrirtækið telur ekki rétt hafa verið staðið
að mati á verkefninu. Hjalti Rögnvaldsson er einn leikenda í „Third Name“.
HALLDÓR
BLÖNDAL
Er nú á annarri
skoðun en skömmu
fyrir kosningar.
SKÝTUR HANDSPRENGJUM
Robert F. Willard, aðmírall í
Bandaríkjaflota, var í heimsókn í flotastöð
í Vladivostok þegar fréttirnar bárust.
EINAR ÞÓR GUNNLAUGSSON
Einar Þór Gunnlaugsson segir Kvikmyndamiðstöðina hafa dregið til sín allt vald vegna út-
hlutunar til íslenskrar kvikmyndagerðar í framtíðinni.
„Þetta eru
því nokkur
tíðindi fyrir ís-
lenska kvik-
myndafram-
leiðendur.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/ALD
A LÓ
A
Stúdentaráð:
Gagnrýnir
reiknireglur
STÚDENTARÁÐ Á fundi Stúdentaráðs
HÍ í gær var samþykkt ályktun
þar sem áhyggjum er lýst vegna
stöðu þeirra deilda Háskóla Ís-
lands sem eiga í samkeppni. Í
ályktun ráðsins segir að endur-
skoða þurfi þær aðferðir sem not-
aðar eru til að meta fjárframlög til
skólanna þannig að nemendafjöld-
inn sé ekki eini þátturinn sem
ræður fjárframlögum ríkisins.
Í ályktun Stúdentaráðs er það
sérstaklega gagnrýnt að innrit-
unargjöld í Háskóla Íslands séu
dregin frá framlagi ríkisins til
skólans en skólagjöld annarra há-
skóla eru ekki dregin frá ríkis-
styrkjum við þá. ■