Fréttablaðið - 03.10.2003, Side 12
12 3. október 2003 FÖSTUDAGUR
RÓBÓTAR LEIKA FÓTBOLTA
Heilmikil tæknisýning stendur nú yfir í
Mílanó á Ítalíu. Meðal þess sem ber fyrir
augu eru róbótar sem leika fótbolta.
BÓKMENNTIR Bókasafnsfræðingar
ræddu á fundi sínum í fyrrakvöld
ráðningu forsætisráðuneytisins á
starfsmanni til að skrá bókasafn
Halldórs Kiljans Laxness á
Gljúfrasteini. Eins og Fréttablað-
ið greindi frá réð forsætisráðu-
neytið íslenskunemann Völu
Káradóttur til að skrá safnið og
aðrar eigur. Það vakti tortryggni
afkomenda Halldórs Laxness að
Vala, sem er fyrrverandi leigjandi
Hannesar Hólm-
s t e i n s
Gissurarsonar
og hefur aðstoð-
að hann við fyrri
ritverk, skyldi
vera ráðin án
þess að hafa til
að bera sérþekk-
ingu í bóka-
safnsfræðum. Grunsemdir eru
um að Hannes Hólmsteinn hafi í
skjóli vináttu sinnar við Davíð
Oddsson forsætisráðherra stuðlað
að ráðningu hennar. Halldór Árna-
son, skrifstofustjóri ráðuneytis-
ins, sagði aðspurður við Frétta-
blaðið að Vala þyrfti ekki sér-
menntun við þetta starf enda nyti
hún aðstoðar bókasafnsfræðinga
úr forsætisráðuneytinu.
Stjórn Upplýsingar, Félags
bókasafns- og upplýsingafræða,
fjallaði um þessi mál á fundi sín-
um þar sem viðhorf forsætisráðu-
neytisins „til menntunar og jafn-
framt til faglegrar sérþekkingar
bókasafns- og upplýsingafræð-
inga eru hörmuð“.
„Þykir stjórninni vegið að fag-
þekkingu stéttarinnar í umfjöll-
uninni,“ segir í ályktuninni. Jafn-
framt er á það bent að starfsheiti
bókasafns- og upplýsingafræða sé
lögverndað.
Deilurnar um bréfasafn Hall-
dórs Laxness halda áfram. Fjöl-
skylda Nóbelsskáldsins er ósátt
við að Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson prófessor skrásetji ævi
skáldsins. Fjölskyldan telur að
Hannes Hólmsteinn muni ekki
fjalla af yfirvegun um skáldið
heldur reyna að sverta minningu
þess með einhverjum hætti. Af
þeim ástæðum létu fjölskyldan
loka bréfasafni skáldsins á hand-
ritadeild Landsbókasafnsins. Dag-
inn eftir að Guðný Halldórsdóttir
kynnti þá ákvörðun var henni sagt
að starfi hennar við húsvörslu
Gljúfrasteins væri lokið.
Fréttablaðið hefur með vísan
til upplýsingalaga óskað eftir því
við forsætisráðuneytið að fá afrit
af ráðningarsamningi Völu Kára-
dóttur vegna starfa hennar á
Gljúfrasteini.
rt@frettabladid.is
„Þykir
stjórninni
vegið að fag-
þekkingu
stéttarinnar.
Umdeildur bolur:
„Hryðju-
verkamaður-
inn“ Bush
DETRIOT, AP Dómstólar í Detroit í
Bandaríkjunum úrskurðuðu að
skólayfirvöld í Dearborn-ung-
lingaskólanum gætu ekki bannað
nemendum að klæðast stutterma-
bol með áletruninni „alþjóðlegur
hryðjuverkamaður“ undir mynd
af George W. Bush forseta.
Mannréttindasamtök í Michig-
an höfðuðu mál á hendur skólan-
um fyrir að banna hinum sextán
ára gamla Bretton Barber að
klæðast slíkum bol. Skólayfirvöld
héldu því fram að bolurinn gæti
orðið kveikjan að uppþoti meðal
nemenda, sem flestir eru af arab-
ískum uppruna. Dómarinn Pat-
rick J. Duggan komst aftur á móti
að þeirri niðurstöðu að engar
sannanir væru fyrir því að bolur-
inn ylli truflunum á skólastarfi. ■
FLUGÞING Á LOFTLEIÐUM Sam-
gönguráðuneytið og Flugmála-
stjórn Íslands halda flugþing á
Hótel Loftleiðum fimmtudaginn
23. október undir yfirskriftinni
Flug í heila öld, saga og framtíð
flugsins. Mörg fróðleg erindi
verða flutt á flugþinginu, m.a. af
fulltrúum Boeing- og Airbus-verk-
smiðjanna, íslenskra flugrekenda,
Smithsonian Air and Space Muse-
um og fleiri.
Rúta í hörðum árekstri:
Átta
konur létust
ILLINOIS, AP Átta konur létust þegar
flutningabíll ók aftan á rútu á hrað-
braut í Illinois. Fimmtán manns
voru fluttir á sjúkrahús og eru að
minnsta kosti fimm þeirra í lífs-
hættu.
Rútan lenti aftan á öðrum flutn-
ingabíl og hafnaði uppi á umferðar-
eyju. Að sögn lögreglu var aðkom-
an að slysinu skelfileg þar sem flak
rútunnar var mjög illa farið og
margir farþeganna höfðu kastast út
við áreksturinn.
Um borð í rútunni voru 22 kven-
félagskonur á leið til Chicago eftir
að hafa verið á japanskri blómasýn-
ingu í Rockford. ■
SAMGÖNGUR Rafræn biðskýli og
aukin ferðatíðni á álagstímum eru
meðal þess sem viðskiptavinir
Strætó mega búast við þegar nýtt
leiðarkerfi verður tekið upp. Von-
ast er til að það verði næsta vor.
Árni Þór Sigurðsson, forseti
borgarstjórnar, segir mikla vinnu
standa yfir hjá Strætó við endur-
skipulagningu alls leiðakerfisins
þannig að það verði meira aðlað-
andi.
„Ég reikna með fyrstu tillögun-
um nú á haustmánuðum. Megin-
markmiðið er að efla og gera al-
menningssamgöngur skilvirkari
og bæta þjónustuna. Auka á tíðni
ferða verulega, að minnsta kosti á
álagstímum, og fólk á að geta séð
með rafrænum hætti á skjám í bið-
skýlunum hversu langt er í næsta
vagn,“ segir Árni.
Að því er Árni segir á einnig að
auka forgang almenningssam-
gangna í umferðinni og bæta
merkingar á strætisvagnaleiðum.
Árni segir enn fremur að sam-
göngunefnd borgarinnar sé að
byrja að kynna sér hvort svokallað-
ar léttlestir séu raunhæfur kostur
fyrir borg af þeirri stærð og gerð
sem Reykjavík er. „Það verða lagð-
ar línur í vetur um hvernig við vilj-
um sjá samgöngumannvirkin og
samgöngumálin almennt séð þróast
á næstu árum,“ segir hann. ■
BIÐSKÝLI STRÆTÓ VIÐ RÁÐHÚSIÐ
Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, segir mikla vinnu standa yfir hjá Strætó við að
gera þjónustuna aðlaðandi. Skjáir í biðskýlum geti sagt farþegum hvenær von sé á næsta
vagni miðað við hvar vagninn er þá staddur.
Strætó endurskoðar allt leiðakerfið og bætir þjónustuna:
Rafræn biðskýli segja
hvenær strætó kemur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Útgefendur DV:
Vilja lengri greiðslustöðvun
FJÖLMIÐLAR Héraðsdómur Reykja-
víkur tekur í dag fyrir beiðni út-
gáfufélags DV um framlengingu á
greiðslustöðvun um allt að fjórar
vikur. Þriggja vikna greiðslustöðv-
un rann út á þriðjudaginn.
Unnið hefur verið um hríð að
endurskipulagningu á fjárhags- og
rekstrarhlið útgáfufélagsins og
verður nú gengið til samninga við
lánardrottna og hlutafé aukið um
allt að 400 milljónir.
Félagið þarf lengri tíma til að
ræða við þá sem það skuldar fé.
Kröfuhöfum eru boðnar þrjár leið-
ir við að ná fé til baka, að sögn Jó-
hannesar Rúnars Jóhannssonar,
aðstoðarmanns útgáfufélags DV í
greiðslustöðvuninni. Þeim er boðið
að breyta skuldum í hlutafé, birta
auglýsingar í blaðinu á móti skuld-
um eða fá greidd 20% af kröfum.
Jóhannes segir að margir kröfu-
hafar hafi tekið vel í þetta tilboð,
þar á meðal Landsbankinn, sem er
stærsti kröfuhafinn. ■
HÖFUÐSTÖÐVAR DV
Félagið þarf lengri tíma til að ræða við lánadrottna.
GEORGE W.
BUSH
Skólabörnum
í Detroit er
heimilt að
klæðast föt-
um með
slagorðum
gegn forset-
anum.
ÁN AUGLÝSINGAR
Fréttablaðið sagði frá því að íslenskunemi hefði verið ráðinn til að skrá bókasafn Halldórs
Laxness. Bókasafnsfræðingar eru reiðir vegna þessa.
Nemi kortleggursafn Nóbelsskálds
BÓKMENNTIR „Hún er bara að skrá
bækur og ég hef ekkert meira um
málið að segja,“ segir Halldór
Árnason, skrifstofustjóri forsæt-
isráðuneytisins, um starfsmann
sem ráðuneytið réði í sumar til
starfa á Gljúfrasteini. Halldór fór í fyrstu fram á að
Fréttablaðið sendi skriflega fyr-irspurn vegnastarfsmannsins ,Völu Káradótturí s l e n s k u f r æ ð i -nema, en staðfestisíðan að hún hefði
út undir þykir flókið þar
sem túlkun á upprunareglum og
viðskiptakjörum getur skipt
miklu við niðurstöðu íslenskra
dómstóla. ■
verk
gerð
chest
grund
hryðj
árið 2
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS
Bað um álit EFTA-dómstólsins.
Forsætisráðuneytið réð starfsmann án sérþekkingar til bókasafnsvinnu
á Gljúfrasteini. Starfsmaðurinn fær leiðsögn bókasafnsfræðinga úr
forsætisráðuneytinu, segir skrifstofustjóri.
■
„Hún hefur leiðsögn héðan,frá bókasafns-fræðingum íráðuneytinu.“
sam-
:
rri
d sam-
ðað að
sam-
gu og
ellum
féllst
gfar-
num
afn-
aðir
otið
er
um
ur
ss
g-
i
-
Gre
stefn
Bo
læ
ALÞINGI Sað verule
dreift til þingarmáli í gærlagaprófessor sið sér á óvart afrá ræðunni ítrú
SIGURÐUR LÍNDALFrétt um stefnu-ræðu kom á óvart
Harma viðhorf
forsætisráðuneytis
Forsætisráðuneytið taldi sérmenntun starfsmanns sem vinnur við skrán-
ingu bókasafns á Gljúfrasteini vera óþarfa. Bókasafnsfræðingar eru á
öðru máli og benda á að starfsheiti þeirra sé lögverndað.
■ Samgöngumál
Kvikmyndamiðstöðin:
Íslenskt bíó
í Kóreu
KVIKMYNDIR Forstöðumaður Kvik-
myndamiðstöðvar Íslands er nú á
kvikmyndahátíð í Suður-Kóreu að
fylgja eftir þremur kvikmyndum
sem stofnunin hefur styrkt.
Myndirnar eru fransk-íslenska
myndin Stormviðri eftir Solveigu
Anspach, Nói Albínói eftir Dag
Kára Pétursson og Salt í fram-
leiðslu Bandaríkjamannsins Brad-
leys Rust Grays. Þremenningarnir
eru með Laufeyju í Suður-Kóreu.
Kvikmyndin Salt, sem er
ástarsaga tekin upp hér á landi, er í
suður-kóreskri leikstjórn. Salt hef-
ur fengið verðlaun í Berlín og verð-
ur sýnt á Íslandi í nóvember. ■