Fréttablaðið - 03.10.2003, Side 16
16 3. október 2003 FÖSTUDAGUR
■ Evrópa
BANDARÍKJAMENN Í KIRGISISTAN
John Prendergast , hershöfðingi í banda-
ríska hernum, heimsótti lýðveldið Kirgis-
istan í Mið-Asíu í gær. Bandaríkjamenn
hafa komið upp herstöð í landinu, þar
sem berjast á gegn hryðjuverkum.
KALIFORNÍA, AP Kvikmynda-
leikarann Arnold Schwarzen-
egger hefur verið sakaður
um kynferðislega áreitni.
Schwarzenegger er einn af
frambjóðendum repúblikana
til embættis ríkisstjóra í
Kaliforníu og nýtur nú mests
fylgis.
Los Angeles Times birti
viðtöl við sex konur sem
segja að Schwarzenegger
hafi þuklað á þeim við ýmis tæki-
færi. Nokkrar samstarfskonur
hans halda því fram að hann hafi
káfað á þeim á tökustað. Bresk
sjónvarpskona segir að Schwarze-
negger hafi snert brjóst hennar
þegar hún tók viðtal við hann árið
2000.
Að sögn talsmanna Los Angeles
Times ákváðu blaðamenn að rann-
saka feril Schwarzeneggers og
komust þá á spor kvennanna.
Fullyrt er að engin þeirra hafi
sjálf haft samband við blaðið.
Tvær kvennanna komu fram
undir nafni en hinar fjórar
kusu að halda nafni sínu
leyndu. Engin þeirra hefur lagt
fram kæru á hendur
Schwarzenegger.
Talsmaður frambjóðandans
vísaði þessum ásökunum á bug
í samtali við Los Angeles Times og
sagði að demókratar væru að reyna
að koma höggi á Schwarzenegger í
kosningabaráttunni. Schwarzen-
egger hefur nú viðurkennt að hafa
áreitt konurnar og hefur beðist
afsökunar á hegðun sinni. ■
Margt að læra á og kynnast
SEÐLABANKI „Ég geri mér grein fyr-
ir því að það er margt sem ég þarf
að kynna mér og læra. Þetta er
verkefni sem þarf
að vinna af kost-
gæfni og samvisku-
semi,“ segir Jón
Sigurðsson, sem
tók við starfi Seðla-
bankastjóra um
mánaðamótin.
„Ég fór um alla stofnunina og
talaði við starfsmenn, heilsaði upp
á þá og þeir mér,“ segir Jón um
fyrsta daginn í nýja starfinu. „Ég
hef reyndar gert það áður. Ég er bú-
inn að vera hér á þriðja ár í banka-
ráðinu og var í nefndinni sem
samdi lagafrumvarpið sem nú er
orðið lög um Seðlabankann.“ Jafn-
framt sat hann fund bankastjórnar,
fund með framkvæmdastjórum
deilda og sviða og kynningarfund
fjármálaráðherra um fjárlaga-
frumvarpið og þjóðhagsáætlun.
Þrír bankastjórar Seðlabank-
ans skipta með sér umsjón með
sviðum og deildum bankans. Ekki
hefur verið tekin ákvörðun um
hver þeirra heyri undir Jón.
Í kjölfar skipunar Jóns í stól
Seðlabankastjóra skrifaði Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, fulltrúi
Samfylkingar í bankaráði, forsæt-
isráðherra bréf og spurði hvað
hefði verið gert til að tryggja að
hæfasti maðurinn væri ráðinn.
Svarinu sem hún fékk hefur hún
lýst sem ekki-svari, þar sem engar
raunverulegar upplýsingar hafi
komið fram.
„Það er ekkert um þessi bréfa-
skrif að segja annað en að þetta
eru mjög eðlilegar spurningar,“
segir Jón. „Eftir miklar umræður í
nefndinni sem samdi lögin
komumst við að þeirri niðurstöðu
að það væru ekki efni til þess að
gera sértækar kröfur um tiltekna
menntun og við komumst líka að
þeirri niðurstöðu að það ætti ekki
að gera að skyldu að auglýsa í
starfið heldur að það væri kallað í
starfið. Það er mjög eðlilegt að um
það sé spurt og mér fannst fyrir-
spurnin mjög málefnaleg. Þetta er
opinbert starf og opinber stjórn-
valdsákvörðun og eðlilegt að hún
sé rædd.“
brynjolfur@frettabladid.is
NIÐURSKURÐUR Í ÞÝSKA HERN-
UM Þjóðverjar hyggjast fækka
liðsmönnum í þýska hernum um
30.000 fyrir árið 2010. Að breyt-
ingunni lokinni verða 250.000
manns í hernum. Ástæður niður-
skurðarins eru efnahagskreppa
og breytt staða heimsmála.
ATVINNULEYSI MINNKAR At-
vinnuleysi í Noregi mældist 3,9%
í september. Í ágúst voru 4,3% at-
vinnubærra Norðmanna án at-
vinnu.
RÁÐHERRA REKINN Ríkisstjórn
Slóvakíu hefur vikið Jan Mojzis
úr stóli ráðherra öryggismála.
Brottvikningin sætir gagnrýni
og þykir lítt rökstudd.
■
„Þetta er verk-
efni sem þarf
að vinna af
kostgæfni og
samviskusemi.“
29.900kr.
Verð áður 39.900
www.hanspetersen.is / sími 570 7500
Með CX 6330 færðu stórar og fallegar myndir í allt að 28 x 35 sm.
TILBOÐ
• 3.1 MP upplausn
• 3x optískur aðdráttur
• 3,3x stafrænn aðdráttur
Kodak CX 6330 Stafræn myndavél
Nýr Seðlabankastjóri er kunnugur störfum bankans enda setið lengi í bankaráði. Hann segir fyrir-
spurnir Ingibjargar Sólrúnar um ráðninguna málefnalegar og eðlilegt að þær væru settar fram.
JÓN SIGURÐSSON
Nýi Seðlabankastjórinn mætti til
vinnu sinnar á miðvikudag. Hann er
þó ekki ókunnugur bankanum enda
verið þrjú ár í bankaráði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Arnold Schwarzenegger sakaður um kynferðislega áreitni:
Þuklaði á samstarfskonum sínum
SCHWARZENEGGER
Arnold Schwarzenegger hefur viðurkennt
að hafa áreitt konurnar kynferðislega og
beðist afsökunar á hegðun sinni.
HERMENN Í ÍRAK
Bandarísk fyrirtæki fá forgang að
verkefnum fyrir herinn.
Evrópusambandið:
Hótar refsi-
aðgerðum
BRUSSEL, AP Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins hefur gefið
til kynna að hún muni beita sér
fyrir refsiaðgerðum gegn Banda-
ríkjunum ef frumvarp um for-
gang bandarískra fyrirtækja að
verkefnum í varnarmálum verð-
ur að lögum.
„Þau eru að feta inn á slóðir
sem þau ættu ekki að þræða,“
sagði Arancha Gonzales, tals-
maður framkvæmdastjórnarinn-
ar, í gær.
Lagafrumvarpið, sem nefnist
„Kaupið bandarískt“, er til með-
ferðar hjá Bandaríkjaþingi. Sam-
kvæmt því er fyrirtækjum mis-
munað eftir þjóðerni og brýtur
það að mati ESB gegn samning-
um Alþjóðaviðskiptastofnunar-
innar. ■
Bankaránið
í Íslandsbanka:
Ræninginn
ófundinn
BANKARÁN Bankaræninginn sem
framdi vopnað rán í Íslandsbanka
í Lóuhólum 18. september gengur
enn laus. Að sögn Harðar Jóhann-
essonar, yfirlögregluþjóns í
Reykjavík, er búið að þrautkanna
allar vísbendingar, ábendingar og
tilgátur en það hefur ekki borið
árangur ennþá. Lögreglan heldur
áfram rannsókn málsins. ■