Fréttablaðið - 03.10.2003, Page 18
18 3. október 2003 FÖSTUDAGUR
FRÚ BUSH Í BOLSHOI
Bolshoi-leikhúsið í Moskvu er ekki af lakari
sortinni. Glæstustu sætin eru þó á keisara-
svölunum þar sem Laura Bush, forsetafrú
Bandaríkjanna, sat og fylgdist með balletti
eftir sögunni um Don Kíkóta.
STJÓRNMÁL „Ég sé lítil handföst
dæmi um að stjórnarflokkarnir
séu að standa við þau gylltu fyrir-
heit sem þeir gáfu fyrir kosning-
ar,“ segir Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingarinnar, um
loforð stjórnarflokkanna fyrir
kosningar.
„Allir muna heróp þeirra um
skattalækkanir. Nú hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn töluvert dregið
úr hástemmdum loforðum en lofar
samt 20 milljarða króna lækkun
skatta. Hvernig byrjar hún? Við
sjáum það í fjárlagafrumvarpinu
að lagt er til að hækka skatta um
einn milljarð króna. Manni kemur
í hug hið fornkveðna; ill var þín
gangan fyrsta,“ segir Össur.
Hann segir engin teikn vera á
lofti um að stjórnin ætli sér að
gera neitt með kosningaloforðin.
„Það er því miður ekkert sem
bendir til þess að þeir geri annað
við kosningaloforð sín en þeir hafa
gert áður; sem sagt að gleyma
þeim. Kjósendur hljóta að veita
þessum mönnum ráðningu,“ segir
Össur. ■
STJÓRNMÁL Miklu var lofað fyrir
kosningarnar í vor. Flokkarnir
kepptust um að bjóða kjósendum
sem bjartasta framtíð í skiptum
fyrir atkvæði. Flest loforð voru
orðuð nógu vítt til að tækist að
efna þau. Önnur voru skýrari. Nú
er tekist á um hvernig þau verði
efnd.
Í fjárlagafrumvarpinu fyrir
árið 2004 má sjá að loforð um víð-
tækar skattalækkanir verður efnt
– en ekki fyrr en á árunum 2005-
2007. Þau hafa heldur ekki verið
frekar útfærð og verða rædd í
tengslum við kjarasamninga. Að
sama skapi verður að bíða til árs-
ins 2005 til að sjá hækkun á barna-
bótum. Óvíst er um hvort
loforð um 90% húsnæðislán
komist að fullu til fram-
kvæmda á kjörtímabilinu
eins og framsóknarmenn
lögðu mikla áherslu á en
áformin hafa mætt andstöðu
þeirra sem óttast að of hrað-
ar breytingar á húsnæðis-
lánakerfinu hvetji til skulda-
söfnunar og þenslu.
Í frumvarpinu er enn
fremur kveðið á um að dregið
verður úr framkvæmdum frá
fyrri áætlunum um 6,5 millj-
arða króna á þessu ári og
tveimur næstu. Um leið og
markmið með þessum aðgerð-
um er að draga úr þenslu verða
eflaust einhverjir óánægðir
sem bjuggust við að fram-
kvæmt yrði í þeirra garði.
Aðstæður geta breyst
Loforðin byggja á stefnu
flokka sem sett er á landsfundum
og af miðstjórnum þeirra en svo
setjast flokkarnir í samsteypu-
stjórn og koma sér saman um
hver af loforðunum verði efnd og
hver forgangsröð ríkisstjórnar-
innar sé.
Það skiptir máli hver það er
sem lofar. Vitaskuld er nú frem-
ur litið til loforða þeirra flokka
sem komast í ríkisstjórn en hinna
sem sitja í stjórnarandstöðu.
Aðstæður geta breyst og dóm-
ar fallið sem hafa áhrif á það
hvernig ríkisstjórn forgangsrað-
ar sínum verkefnum. Það getur
kallað á að hástemmd loforð
verði að litlu sem engu og marg-
ir verði reiðir sem ákváðu að
ráðstafa atkvæðum sínum til
þeirra sem lofuðu þeim mestu.
Ríkisstjórnin sem nú situr
hefur gert að forgangsmáli að
lækka skatta, breyta húsnæðis-
lánakerfinu, efla heilbrigðis- og
menntakerfi, ná sátt um ýmis mál
og halda jafnvægi í ríkisbú-
skapnum. Þessi markmið
geta ekki alltaf öll farið
saman og festa í einum
málaflokki getur kallað á
frestun annarra verkefna.
Þótt skammt sé liðið frá
kosningum eru þegar marg-
ir sárir vegna þess sem þeir
kalla svikin loforð ríkis-
stjórnarinnar.
Reiði vegna línuívilnun-
ar
Bæði Sjálfstæðisflokkur-
inn og Framsóknarflokkur-
inn lögðu áherslu á það í
kosningabaráttunni að tekin
yrði upp línuívilnun fyrir
Fréttaskýring
KRISTJÁN GUY BURGESS
■ rifjar upp kosningaloforð
stjórnarflokkanna.
AUGLÝSINGAR
STJÓRNMÁLA-
FLOKKANNA
Aðstæður geta breyst
frá kosningum og
dómar fallið sem hafa
áhrif á það hvernig
ríkisstjórn forgangs-
raðar sínum verkefn-
um. Það getur kallað
á að hástemmd lof-
orð verði að litlu sem
engu og margir verði
reiðir sem ákváðu að
ráðstafa atkvæðum
sínum til þeirra sem
lofuðu þeim mestu.
Að baki er mikið starf og gl
æstir sigrar í íslensku samf
élagi.
Framundan er ný öld nýrra
tækifæra.
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framsóknarflokkurinn ætlar að auðvelda fólki enn frekar kaup á eigin húsnæði.
Framsóknarflokkurinn ætlar að hækka hámarkslán Íbúðalánasjóðs í áföngum á næsta kjörtímabiliupp í 90% af kaupverði venjulegs íbúðarhúsnæðis. Þannig geta allir notið hagkvæmustu kjaravið íbúðakaup.
Þetta teljum við framsóknarmenn mögulegt vegna þeirra breytinga sem við höfum hrint íframkvæmd á íslenskum fjármálamarkaði á síðasta kjörtímabili. Þær breytingar gera okkur núkleift að búa til enn skilvirkara og neytendavænna íbúðalánakerfi um leið og lagður er grunnurað stöðugleika til lengri tíma.
90%
lán til húsnæðiskaupa
Reiknaðu lánamöguleika þína
Á kosningavef Framsóknarflokksins www.xb.is
getur þú reiknað út lánamöguleika þína miðað
við þær tillögur sem Framsóknarflokkurinn
leggur fram fyrir þessar kosningar.
www.xb.is
Bakkað með
kosningaloforðin
Dregið úr framkvæmdum. Línuívilnun í uppnámi. Héðinsfjarðargöngum frestað. Lægri skattar
og hærri barnabætur ekki fyrr en árið 2005. Óvissa um 90% húsnæðislán á kjörtímabilinu.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Ósáttur við efndirnar.
Formaður VG:
Loforðin
gufuð upp
STJÓRNMÁL „Davíð þóttist ætla að
lögfesta allan pakkann strax í
haust og það er enginn vafi á því
að þeir sem kusu stjórnarflokk-
ana héldu að þeir ættu skatta-
lækkanir í vændum strax á næsta
ár,“ segir Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður Vinstri hreyfingar-
innar – græns framboðs, um kosn-
ingaloforð stjórnarflokkanna.
„Niðurstaðan er sú að aðeins
einn hópur hlýtur náð fyrir aug-
um stjórnarflokkanna. Hverjir
skyldu það nú vera nema hátekju-
menn. Eini skatturinn sem á að
lækka á næsta ári er hátekjuskatt-
urinn. Að vísu er þetta lítil breyt-
ing en táknræn engu að síður. Að
öllu öðru leyti eru loforðin gufuð
upp og vísað inn í óræða framtíð,“
segir Steingrímur J. ■
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
Ill var þín gangan fyrsta.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Formaður Samfylkingar um kosningaloforð:
Ekki staðið við gyllt fyrirheit
Geir H. Haarde:
Lítum á allt
kjörtímabilið
FJÁRLÖG Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra telur mikilvægt að skoða
kjörtímabilið í heild þegar fjallað
sé um efndir kosningaloforða.
Einnig verði að hafa í huga að rík-
isstjórnin starfi í samræmi við
samkomulag stjórnarflokkanna.
„Kosningaloforðin endurspegl-
ast í stjórnarsáttmálanum. Það
verður unnið að því að hrinda
þeim í framkvæmd á kjörtímabil-
inu eins og meðal annars lang-
tímaáætlun um ríkisfjármál ber
með sér,“ segir Geir. Hann kynnti
í gær stóraukið aðhald í ríkisfjár-
málunum og 20 milljarða skatta-
lækkanir á árunum 2005-2007. ■