Fréttablaðið - 03.10.2003, Síða 19
19FÖSTUDAGUR 3. október 2003
STJÓRNMÁL „Ríkisstjórnarflokk-
arnir héldu völdum út á kosninga-
loforð sem kannski verður staðið
við síðar, ef henta þykir,“ segir
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, um loforð
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks fyrir kosningar.
„Ég veiti því hér sérstaka at-
hygli að línuívilnunin sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hélt mjög á lofti
fyrir kosningar á ekki að verða að
veruleika fyrr en á næsta ári.
Þetta er athyglisvert í því ljósi að
Davíð Oddsson hafði lýst því að
engin fyrirstaða væri fyrir því að
taka upp línuívilnun í haust. Einar
Oddur Kristjánsson sagði á fundi
á Ísafirði um daginn að Davíð
Oddsson hefði alltaf staðið við lof-
orð sín,“ segir Guðjón.
Hann segir merkilegt í hvaða
farvegi hástemmd skattalækkun-
arloforð ríkisstjórnarinnar séu
komin. Eina skattalækkunin á
þessu ári sé lækkun hátekju-
skattsins.
„Aðeins hálaunafólkið fær sitt
en boðaðar skattalækkanir eru
orðnar að samningamáli við
verkalýðshreyfinguna,“ segir
Guðjón. ■
dagróðrarbáta, nokkuð sem skipt-
ir marga miklu, einkum á Vest-
fjörðum.
Á frægum fundi með kjósend-
um á Ísafirði 23. apríl gaf Davíð
Oddsson forsætisráðherra því
undir fótinn að línuívilnun kæmi
til framkvæmda strax eftir kosn-
ingar. Eftirfarandi var haft eftir
honum í Morgunblaðinu: „Ég tel
að þetta eigi að geta komið til
framkvæmda með haustinu;
menn eigi að geta unnið að því,
það er óþarfi að draga það neitt
lengur.“
Haft var eftir Davíð að línu-
ívilnunin hefði verið samþykkt á
landsfundi og í henni fælist bót á
fiskveiðistjórnunarkerfinu. Davíð
bætti því við að það þyrfti þó að
nást sátt og samstaða um þessa
leið. Hann hefði þó ekki heyrt
andstöðu við hana hjá öðrum
flokkum.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar kemur fram að ívilnun
verði tekin upp fyrir dagróðrar-
báta með línu til að styrkja hags-
muni sjávarbyggða.
Babb í bátinn
Eftir kosningar kom babb í bát-
inn. Árni Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra stillti málum þannig upp
að til að taka upp línuívilnun
þyrfti að afnema byggðakvóta.
Hann hefur sagt að ekki sé hægt
að uppfylla loforð um línuívilnun
nema með lagabreytingu og það
geti því ekki orðið fyrr en á næsta
fiskveiðiári. Sjávarútvegsráð-
herra hefur sagt að hann hafi haft
um þetta fullt samráð við Halldór
Ásgrímsson, formann Framsókn-
arflokksins. Kristinn H. Gunnars-
son, flokksbróðir Halldórs, hefur
sagt að sjávarútvegsráðherra eigi
að víkja ef hann geti ekki staðið
við þetta loforð. Kristinn segist
ekki munu standa að því að brjóta
þessi loforð og að það sé algjör
forsenda stjórnarsamstarfsins að
staðið verði við loforðin um línu-
ívilnun. Málið verður örugglega
brátt rætt á Alþingi. „Það er þing-
meirihluti fyrir málinu, burtséð
frá afstöðu Sjálfstæðisflokksins.
Það er því engin ástæða til að
draga málið úr hömlu og það á að
gera þetta að lögum á haustþing-
inu,“ sagði Kristinn við Frétta-
blaðið fyrr í haust.
Jarðgöngum frestað
Í byrjun júlí ákvað ríkisstjórn-
in að hafna öllum tilboðum í gerð
vegganga til Siglufjarðar um Héð-
insfjörð og frestaði framkvæmd-
um fram til síðari hluta ársins
2006. Ástæðan var ótti við þenslu
vegna stórframkvæmdanna á
Austurlandi.
Guðmundur Guðlaugsson, bæj-
arstjóri á Siglufirði, gaf lítið fyrir
skýringar ráðamanna um að til-
boð í göngin hefðu ekki verið nógu
hagstæð og kallaði þær fyrirslátt.
„Þetta er í hróplegri mótsögn
við það sem stjórnmálmenn og
ráðherrar sögðu fyrir kosningar.
Við höfum ekki fundið fyrir
þenslu á þessu svæði og finnst
óskiljanlegt að það sé verið að slá
af mjög arðbær samgöngumann-
virki á slíkum stöðum. Menn eru
þreyttir á því að það stenst ekki
sem sagt er og treysta yfirlýsing-
um ekki lengur,“ sagði Guðmund-
ur í sumar. ■
GUÐJÓN ARNAR KRISTJÁNSSON
Frestun línuívilnunar vekur sérstaka
athygli.
Formaður Frjálslynda flokksins um kosningaloforð:
Hálaunafólkið fær sitt
Útflutningur æðardúns:
Verður brátt
leyfður
ÚTFLUTNINGUR Vegna nýrrar
reglugerðar verður brátt heim-
ilt fyrir Íslendinga að flytja
æðardún til Bandaríkjanna.
Þykir reglugerðin sérstök þar
sem hún tekur eingöngu til
æðardúns frá Íslandi en heimil-
ar ekki almennan innflutning.
Er það vegna þess að dúntekja
hérlendis skaðar ekki fuglinn
eins og víða annars staðar.
Á heimasíðu Samtaka versl-
unarinnar kemur fram að opnun
þessa markaðar geti haft mikil
og arðbær viðskipti í för með
sér þar sem Bandaríkjamarkað-
ur sé gríðarlega stór. ■
90% húsnæðislán:
Lítið um svör
STJÓRNMÁL Hvorki Halldór Ás-
grímsson, formaður Framsóknar-
flokksins, né Árni Magnússon fé-
lagsmálaráðherra vilja tjá sig um
hvernig verði staðið að því að upp-
fylla kosningaloforð Framsóknar-
flokksins um að hækka lánshlut-
fall íbúðalána í 90%.
Halldór vísaði á Árna með þeim
orðum að málið félli undir hans
verkahring. Þegar beðið var um
viðtal við félagsmálaráðherra
svaraði aðstoðarmaður hans og
sagði Árna hafa ákveðið að fjalla
ekki um málið opinberlega fyrr en
einhverjar ákvarðanir hefðu verið
teknar. Aðstoðarmaðurinn sagði
vinnu málsins ganga vel og gott
samráð við þá sem málið snertir. ■