Fréttablaðið - 03.10.2003, Side 28
2. október 2003 FIMMTUDAGUR28
Íslenskir raftónlistarmenn hafafram til þessa ekki verið nægi-
lega duglegir í því að koma sér á
framfæri. Örfáir hafa náð ein-
hverri spilun í útvarpi og tónleika-
hald þeirra hefur verið lítt áber-
andi, þar til nú.
„Ég held að þetta sé bara að-
gerðaleysi,“ viðurkennir Arnviður
Snorrason, eða Exos, sem skipu-
lagði tíu tónleika raftónlistarhátíð
á Vídalín við Ingólfstorg ásamt fé-
laga sínum Tómasi Höskuldssyni,
einnig þekktum sem Tómas THX.
„Ég held að listamenn almennt
þurfi að vera mjög framsæknir til
þess að geta komið sér af stað. Það
eru svo fáir umboðsmenn og tón-
leikahaldarar hér á landinu sem
nenna að halda svona tónleika,
Annað hvort þurfa menn hér að
vera bara umboðsmenn eða tónlist-
armenn sem hafa virkilega þörf
fyrir að halda stöðugt tónleika. Við
höfum þess vegna ekkert val. Ef
við stöndum ekki fyrir svona tón-
leikahátíð, þá gerir það enginn.“
Exos er þess fullviss að raftón-
listarsenan hér geti náð lengra
upp á yfirborðið. Helsta vanda-
málið hingað til hafi verið hversu
einangraðir raftónlistarmenn eru.
„Hinn almenni raftónlistarmaður
er nógu upptekinn í sínum eigin
heimi að sinni listsköpun og hefur
engan kraft til þess að bóka klúb-
ba og koma sér á kjöl. Rokkararn-
ir eru oft um fimm saman í hljóm-
sveit og vinna því saman að þessu.
Raftónlistarmenn sem eru saman
í einni hljómsveit eiga auðveldara
með að verða stærri. Eins og
Gusgus eða múm, sem eru hópar
og eiga auðveldara með að skipta
niður verkum og vinna sig
áfram.“
Á hátíðinni verða allar greinar
raftónlistar á Íslandi rannsakaðar.
Sérkvöld tileinkuð drum ‘n’ bass,
teknó, elektró og hiphop verða
m.a. á dagskrá. Hátíðin stendur
yfir allar helgar í október, frá
fimmtudegi til laugardags. Á með-
al þeirra sem koma fram verða
Ampop, Sk/Um, Móri, Biggi Veira,
Forgotten Lores, Dj Grétar,
Anonymous, Yagya (áður Plastik),
Exos, Tómas THX, Ruxpin og
norska sveitin Xploding Plastix
auk þess sem hardcore-sveitin
Ajax rís upp frá dauðum.
biggi@frettabladid.is
Fréttiraf fólki
Pondus eftir Frode Øverli
Það verður að vera platan Ná-kvæmlega með Skítamóral,“ segir
Einar Bárðason. „Einfaldlega vegna
þess að þar er fyrsta lagið sem ég samdi
á ævinni, og lagið sem varð svo fyrsta
topplagið mitt á Íslenska listanum.
Þetta var lagið Farin. Þó koma margar
skífur í hugann.“
EINAR BÁRÐAR
Platan
Halle Berry hefur skilið viðeiginmann sinn, tónlistar-
manninn Eric Benet, að borði og
sæng. Þau hafa aðeins verið gift í
þrjú ár. Í fréttatilkynningu sem
leikkonan sendi frá sér bað hún
fjölmiðla vin-
samlegast um
að láta sig í
friði á meðan
þau væru að
ganga í gegnum
þetta erfiða
tímabil. Það er
vitað að sam-
bandið lenti í
vandræðum
eftir að Eric
hélt framhjá
henni, en ekki er
vitað hverjar
ástæðurnar fyrir
sambandsslitun-
um núna eru.
Dómsyfirvöld í New Jerseyhafa gefið út handtökuskipun
á rapparann Lil’
Kim. Ástæðan er sú
að hún átti að mæta
fyrir dómara vegna
þess að hún var
handtekin árið 1996
með kannabis undir
höndum. Handtakan
fór fram heima hjá rapparanum
Notorious B.I.G. eftir að lögregl-
an réðst inn en Lil’ Kim hefur
aldrei fengið dóm vegna þessa.
Þegar hún mætti loks fyrir dóm-
ara vegna þessa máls gaf dómar-
inn út handtökuskipun sem gilda
á þegar hún á að mæta næst í
réttinn.
Leikkonan Renée Zellwegermætti á frumsýningu myndar-
innar Down With
Love í London á
dögunum. Hún er
nú að undirbúa leik
sinn í framhalds-
myndinni um
Bridget Jones og
sést það víst á
holdafari hennar. Zellweger seg-
ist vera með menn í vinnu við
það að benda henni á hvað hún
eigi að borða til þess að fitna sem
hraðast, án þess að það sé of
óhollt fyrir líkamann.
Fljótlega kemur út DVD-diskurmeð myndskeiðum úr ævi
John Lennon. Ekkja hans, Yoko
Ono, hefur undirbúið útgáfuna
og á disknum verður margt efni
sem ekki hefur komið út, eða
sést, áður. Yoko segir eiginmann
sinn hafa lifað mjög sérstöku lífi
og að hún sé þakklát fyrir að
hafa fengið að
vera hluti af því.
Hún segir helstu
ástæðu þess að
hún gefi út DVD-
diskinn vera að hún
vilji að komandi kyn-
slóðir fái tækifæri á að
kynnast Lennon eins
vel og mögulegt er.
Raftónlistar-
menn í sókn
EXOS OG TÓMAS THX
Standa fyrir tíu tónleika raftónlistarhátíð á
Vídalín í október þar sem allir helstu raf-
tónlistarmenn landsins koma fram.Tónlist
EXOS OG TÓMAS
■ Íslensk raftónlist blæs til sóknar og
Exos og Tómas standa fyrri tónleikaröð í
október. Þar verður fjöldi atriða: Ampop,
Móri, Forgotten Lores, Dj Grétar og hard-
core-bandið Ajax rís upp frá dauðum..
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
TOPP 20 -
FM957 - VIKA 40
Outlandish
AICHA
The Rasmus
IN THE SHADOWS
Robbie Williams
SOMETHING BEAUTIFUL
Stereophonics
MAYBE TOMORROW
3 Doors Down
HERE WITHOUT YOU
Stacie Orrico
THERE’S GOTTA BE MORE...
50 Cent
P.I.M.P.
Christina Aguilera
CAN’T HOLD US DOWN
Igor
FROM THE BED TO THE FLOW
Busted
SLEEPING WITH THE...
Matchbox Twenty
BRIGHT LIGHTS
Fabolous
INTO YOU
Pharrell
FRONTIN
Írafár
FÁUM ALDREI NÓG
Mary J Blige
LOVE @ FIRST SIGHT
Dido
WHITE FLAG
Lumidee
NEVER LEAVE U
Nelly
SHAKE YA TAILFEATHER
Richard X
FINEST DREAMS
Girls Aloud
LIFE GOT COLD
Vinsælustu lögin
ÍRAFÁR
Nýjasta lag Írafár
endaði í 14. sæti
á fyrstu viku
sinni á listanum.
Tómas R. Einarsson kontrabassa-leikari hefur haft Kúbu á bakvið
eyrað síðustu árin. Og gott betur, því
hann hefur líka fært hana á silfurfati
beint inn í stofu til íslenskra djass-
áhugamanna með plötu sinni
Kúbanska frá því í fyrra. Í ár færir
hann djassáhugamenn nær tónlistar-
hefð eyjunnar með plötu sinni
Havana sem er komin í búðir.
„Ég kynntist César Hechevarría
tres-gítarleikara klukkan fjögur eft-
ir miðnætti síðustu nóttina mína í
Havana,“ rifjar Tómas upp um
fyrstu ferð sína til eyjunnar fyrir
þremur árum. „Ég hafði ratað inn á
góðan klúbb þar sem hann var að
spila og það snar rann af mér allt
rommið. Ég hafði ekki heyrt í öðrum
eins tres-spilara á ævinni. Síðan tal-
aði ég svolítið við hann og við héld-
um sambandi. Svo fór ég út í vor í
hálfsmánaðar undirbúningsferð og
við fórum á flakk.“
Tómas segir að César sé einn af
helstu tres-gítarspilurum Kúbu í
dag. Aðrir leikarar á plötunni eru
m.a. Daniel „El Gordo“ Ramos
trompetleikari, sem lék með Buena
Vista á tónleikum í Laugardalshöll
um árið, og Emilio Morales píanó-
leikari.
„Í kúbverskri tónlist spila þeir
allt öðruvísi á bassa en í djasstónlist
og það var mjög ögrandi fyrir mið-
aldra djassleikara eins og mig að
læra það. Þeir hugsa bassalínur allt
öðruvísi. Það er svolítið hopp fyrir
mig að fara beint í djúpu laugina og
spila þessa tónlist, sem ég samdi,
með innfæddum Kúbverjum. Það
var eins gott að vera ekki alveg
blautur á bak við eyrun þegar mað-
ur mætti með blöðin sín í hljóðverið
þar sem ég hafði aldrei spilað með
neinum þeirra áður,“ segir Tómas
að lokum og er ánægður með
draumaverkefnið sitt. ■
TÓMAS Á KÚBU
Glaður með bassann á Kúbu.
Tónlist
TÓMAS R. EINARSSON
■ Nú er komin út ný plata með kontra-
bassaleikaranum Tómasi R. Á henni upp-
fyllir Tómas drauma sína um Kúbu..
Kom með Kúbu á klakann
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
Æðislegt hár!
Eins og silki í
höndum manns! Svo létt!
Svo
glansandi!
Svo... ...Hárkolla?! Af hverju?
Af því að ég
á það skilið!