Fréttablaðið - 03.10.2003, Blaðsíða 38
38 3. október 2003 FÖSTUDAGUR
Þýskaland - Ísland í undankeppni EM:
Íslendingar fjölmenna
FÓTBOLTI Búast má við hátt í
2.500 íslenskum áhorfendum á
leik Þýskalands og Íslands í
undankeppni Evrópumótsins
sem fram fer á AOL-leikvangin-
um í Hamborg þann 11. október
næst komandi.
Knattspyrnusamband Ís-
lands fékk um 2.200 til sölu sem
eru fyrir löngu uppseldir. Mið-
arnir voru bæði seldir hér
heima sem og til Íslendinga sem
búsettir eru í Þýskalandi. Ein-
hverjir kræktu sér einnig í miða
á annan hátt en í gegnum KSÍ.
Íslensku áhorfendurnir
verða flestir í hólfum fimmtán
og sextán sem eru í vesturstúku
AOL-vallarins, á móts við annan
vítateiginn.
Skipulagðar ferðir eru á veg-
um ferðaskrifstofa og munu
flestir áhorfendanna fara til
Hamborgar á föstudag.
Auk áhorfendanna munu
tæplega þrjátíu fjölmiðlamenn
fara á leikinn. ■
Bjarni hættur
hjá Grindavík
Bjarni Jóhannsson er hættur þjálfun knattspyrnuliðs Grindavíkur.
Sameiginleg ákvörðun Bjarna og knattspyrnudeildar Grindavíkur.
Þrjú lið í efstu deild án þjálfara.
FÓTBOLTI Stjórn knattspyrnudeild-
arinnar Grindavíkur tilkynnti í
gær að deildin og Bjarni Jóhann-
son þjálfari hefðu komist að sam-
komulagi um starfslok þjálfarans.
Bjarni var ráðinn þjálfari Grinda-
víkur haustið 2001 og gerði fjög-
urra ára samning með uppsagnar-
ákvæði 1.-15. október hvert ár.
„Við vorum búnir að ræða fram
og til baka um þessi mál frá því
móti lauk og þetta er sameiginleg
niðurstaða,“ sagði Bjarni. „Það
eru engin illindi þarna á milli.
Þetta var gert í mesta bróðerni.“
Í tilkynningu sem Grindvíking-
ar sendu frá sér segir að Bjarni
hafi starfað við erfiðar aðstæður
og stúkubygging og skattamál hafi
vegið þyngst í rekstri deildarinn-
ar. Auk þess hafi nýir leikmenn
ekki nýst félaginu sem skyldi
vegna meiðsla og annarra utanað-
komandi aðstæðna. Stærsta áfallið
í leikmannahópnum hafi verið að
missa Grétar Hjartarson í meiðsli
fyrir keppnistímabilið.
„Sumarið var erfitt í Grindavík
þetta árið,“ sagði Bjarni. „Margar
ófarsælar ákvarðanir teknar og
gengi liðsins dapurt og langt undir
væntingum. Það þarf ekki að
koma neinum á óvart að þjálfarinn
taki pokann sinn. Nú er þessi kafli
að baki og ég get með góðri sam-
visku snúið mér að einhverju
öðru.“
Stjórn knattspyrnudeildar
Grindavíkur segir í tilkynningunni
að hún eigi hlut í því hvernig liðinu
gekk á nýafstöðnu Íslandsmóti.
Liðið endaði í sjötta sæti deildar-
innar og rétt slapp við fall. Stjórn-
in vill enn fremur ítreka þakkir til
Bjarna fyrir gott samstarf.
Jónas Þórhallsson, formaður
stjórnar knattspyrnudeildar
Grindavíkur, segir að enn sé ekki
búið að finna eftirmann Bjarna.
Þrjú félög í efstu deild eru því
án þjálfara. Ásgeir Ásgeirsson,
formaður Meistaraflokksráð Fylk-
is, segir að ekki sé búið að finna
arftaka Aðalsteins Víglundssonar,
sem sagt var upp störfum fyrir
skömmu. „Vonandi tekst okkur að
ganga frá þjálfaramálum í þessum
mánuði. Við ætlum að flýta okkur
hægt,“ sagði Ásgeir.
„Við erum að skoða ýmis mál
en ég get ekki sagt neitt að svo
stöddu,“ segir Finnur Thorlacius,
formaður Fram fótboltafélags
Reykjavíkur, en staðfesti þó að
stjórn liðsins hafi þreifað fyrir sér
bæði utan lands sem innan. ■
Vet
rar
sól
24.
930kr..
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Fyrstir koma
- fyrstir fá!
Alicante
Beint leigu-
flug me›
Icelandair
í allan vetur!
Sumarhúsa-
eigendur
og a›rir
farflegar
til Spánar!
Tilbo›
5. og 19. nóv.
í 2 vikur:
Flug fram og til baka
með flugvallarsköttum.
Tilvali›
tækifæri
til a› stytta
veturinn.
TIL KATAR
Spænski knattspyrnumaðurinn Josep
Guardiola sést hér á æfingu hjá Al Ahli fé-
laginu í Katar. Guardiola skrifaði undir eins
árs samning við félagið. Auk Guardiola
leika Steffan Effenberg frá Þýskalandi og
Fernando Hierro í Katar.
FÓTBOLTI „Afsakið, en liðið er full-
mannað,“ sagði á miða sem festur
var á hurð á búningsklefa enska
úrvalsdeildarliðsins Chelsea þeg-
ar fréttist að Brasilíumaðurinn
Rivaldo hefði áhuga á að ganga
til liðs við félagið fyrir skömmu.
Stjórn Chelsea hefur verið iðin
við leikmannakaup síðustu vikur
og mánuði. Nú er svo komið að
Claudio Ranieri á í erfiðleikum
með að velja framherjapar enda
úrvalið mikið. Vandi Ranieri er
þó meiri því hann á einnig í vand-
ræðum með að tjá sig við hinn
fjölþjóðlega leikmannahóp.
„Hernan Crespo, Adrian Mutu
og Claude Makelele tala ekki
ensku. Fyrst gef ég leiðbeiningar
á ensku, síðan á ítölsku eða
spænsku,“ segir Ranieri, sem
sjálfur talaði litla sem enga
ensku þegar hann kom til Chelsea
fyrir þremur árum. Auk áður-
nefndra leikmanna eru Dani,
Kamerúni, Nígeríumaður, Þjóð-
verji, Portúgali, Íri og Skoti í
leikmannahópi Chelsea. Leik-
menn verða því oft að leita á náð-
ir samherja til að skilja þjálfar-
ann enda hafa þeir komið víða við
á knattspyrnuferlinum. ■
CLAUDIO RANIERI
Ranieri hefur átt í erfiðleikum með að koma skilaboðum áleiðis til hins fjölþjóðlega
leikmannahóps Chelsea.
Claudio Ranieri:
Samskiptavandamál hjá Chelsea
AÐALSTEINN VÍGLUNDSSON
Var sagt upp störfum hjá Fylki.
GRINDAVÍK
Féll úr leik gegn Kärnten í Uefa-bikarnum. Bjarni Jóhannsson er hættur með liðið.
Þýskaland - Ísland:
Óvíst með
Ballack
FÓTBOLTI Óvíst er hvort Michael
Ballack geti leikið með Bayern
München gegn Herthu Berlín um
helgina sem og með þýska landslið-
inu gegn Íslendingum þann 11.
október vegna ökklameiðsla.
Ballack meiddist í leik með
Bayern, sem gerði 1-1 jafntefli við
Anderlecht á þriðjudag. Hann hef-
ur ekki getað æft síðan og segir alls
óvíst hvort hann verði leikfær um
helgina.
Talsmaður Bayern segir að ef
Ballack leiki ekki á laugardag verði
hann að öllum líkindum ekki með.
Ballack var í liði Þjóðverja á
Laugardalsvellinum. ■
AOL-VÖLLURINN
Íslensku áhorfendurnir
verða flestir í hólfum
fimmtán og sextán.