Fréttablaðið - 03.10.2003, Page 39
FÖSTUDAGUR 3. október 2003
SVÍAR FAGNA
Leikmenn sænska landsliðsins fagna sigurmarki Malin Andersson (önnur frá vinstri)
í leiknum gegn Brasilíumönnum.
FÓTBOLTI „Ég bara hitti boltann
mjög vel,“ sagði Malin Andersson
um markið sem hún skoraði beint
úr aukaspyrnu og færði Svíum
sæti í undanúrslitum í heimsmeist-
arakeppni kvenna. „Ég sá glufuna
og fannst ég geta sent boltann
framhjá veggnum, og það tókst.“
Victoria Svensson skoraði fyrra
mark Svía þegar þeir unnu Brasil-
íumenn 2-1 í átta liða úrslitum
keppninnar en Marta jafnaði fyrir
brasilíska liðið úr vítaspyrnu.
„Hún var alls staðar,“ sagði
Julie Foudy, fyrirliði bandaríska
liðsins, um Abby Wambach eftir
sigur Bandaríkjamanna á Norð-
mönnum í átta liða úrslitunum.
„Vinnuframlag hennar var ótrú-
legt og það þarf mikla orku í það
sem hún gerir.“ Wambach skoraði
eina mark leiksins með skalla eftir
sendingu Cat Reddick.
Bente Nordby hélt Norðmönn-
um inni í leiknum með góðri mark-
vörslu. „Hún er mjög góður mark-
vörður, kannski sá besti í heimi, en
það var bara ekki nóg til að sigra í
leiknum í dag,“ sagði Age Steen,
þjálfari norska liðsins. ■
FÓTBOLTI Martin Keown, varnar-
maður Arsenal, hefur snúist til
varnar vegna látanna sem brutust
út á milli leikmanna Arsenal og
Manchester United í ensku úr-
valsdeildinni fyrir skömmu. Hann
viðurkennir þó að leikmenn hafi
brugðist illa við. „Það eru frábær-
ir leikmenn í Arsenal,“ sagði
Keown, sem var meðal átta leik-
manna sem Enska knattspyrnu-
sambandið kærði fyrir agabrot.
„Þeir eru allir yndislegar mann-
eskjur og eru eins og ein stór fjöl-
skylda.“
Keown var kærður fyrir að
vega að Ruud van Nistelrooy eftir
að sá síðarnefndi klúðraði víta-
spyrnu og fyrir að slá í höfuð hans
eftir að flautað var til leiksloka.
„Vissulega var þetta óþægileg
staða á Old Trafford en hún
meiddi engan,“ sagði Keown og
bætti við: „Yfirleitt reyni ég að
skila mínu hlutverki á vellinum
með sóma. Mér finnst ég hafa gert
það og hef verið góð fyrirmynd
ungra leikmanna.“ ■
FÓTBOLTI Aganefnd Knattspyrnu-
sambands Íslands hefur ávítt
KA-mennina Þorvald Örlygsson
þjálfara og Slobodan Milisic fyr-
ir ummæli sem þeir viðhöfðu eft-
ir leik ÍA og KA í undanúrslitum
bikarkeppni karla þann 17. sept-
ember síðastliðinn. Þar að auki er
knattspyrnudeild KA sektuð um
20 þúsund krónur vegna fram-
komu þeirra.
Það var álit aganefndar KSÍ að
ummæli Þorvaldar og Slobodans
hefðu verið ósæmileg samkvæmt
þeirri skilgreiningu sem fram
kemur í 11. grein starfsreglna
aganefndarinnar. Aganefnd leit
til þess í úrskurði sínum að hlut-
aðeigandi aðilar hafa ítrekað
beðist afsökunar á ummælum
sínum og harmað þau. ■
MARTIN KEOWN
Tók við fyrirliðabandinu af Patrick Vieira
þegar Arsenal mætti Lokomotiv Moskvu í
fyrradag í Meistaradeild Evrópu.
Martin Keown snýst til varnar:
Meiddi engan
ÞORVALDUR ÖRLYGSSON
Hefur verið ávíttur af aganefnd KSÍ.
Aganefnd KSÍ:
Ávítir KA-menn
Heimsmeistarakeppni kvenna í fótbolta:
Svíar og
Bandaríkjamenn
í undanúrslit