Fréttablaðið - 03.10.2003, Page 43
FÖSTUDAGUR 3. október 2003
Félagsheimilið Þjórsárver eróðum að breytast í eitt helsta
menningarhús Suðurlands. Þar
verður haldin í næstu viku Tóna-
hátíð, sem að sögn heimamanna
verður ein stærsta listahátíð sem
boðið hefur verið upp á utan höfuð-
borgarsvæðisins.
„Við höfum verið að reyna að
vinna okkur sess sem menningar-
hús hér á Suðurlandi,“ segir Valdi-
mar Össurarson, umsjónarmaður
Þjórsárvers. „Okkur hér er ekki
úthlutað neinu menningarhúsi eins
og aðrir landsfjórðungar fá,
þannig að hér eru það bara gömlu
félagsheimilin.“
Hátíðin hefst á fimmtudags-
kvöld með söng eðalsöngvaranna
Ólafs Kjartans Sigurðarsonar bar-
itóns og Elínar Óskar Óskarsdótt-
ur. Þau flytja sígild lög úr ýmsum
áttum við undirleik nýráðins tón-
listarstjóra Íslensku óperunnar,
Kurts Kopeckys.
Á föstudaginn mætir svo hin
merka hljómsveit South River
Band frá Kleifum í Ólafsfirði, sem
leggur mikið upp úr því að gestir í
salnum syngi með. Loks verður
Ríó tríó með tónleika á laugardags-
kvöldið þar sem það kynnir lög af
nýju plötunni sinni, sem heitir
Utan af landi. Með þeim spila snill-
ingarnir Björn Thoroddsen og
Gunnar Þórðarson. ■
ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON OG ELÍN ÓSK ÓSKARSDÓTTIR
Þau syngja á Tónahátíðinni í Þjórsárveri ásamt Elínu Ósk Óskarsdóttur.
Menningarhúsið
Þjórsárver
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
■ TÓNAHÁTÍÐ