Fréttablaðið - 03.10.2003, Page 46
46 3. október 2003 FÖSTUDAGUR
Við fengum frábærar viðtökur,það var stappað og hrópað í
salnum að sýningu lokinni,“ segir
leikarinn Ólafur Egill Egilsson um
frumsýningu á Rómeó og Júlíu í
Young Vic-leikhúsinu í London.
Samkvæmt gagnrýni í breskum
tímaritum hefur uppfærsla Vestur-
portsins slegið rækilega í gegn.
Gagnrýnandi Times gefur sýning-
unni fjórar stjörnur af fimm mögu-
legum en lofsamlegir dómar hafa
einnig birst í tímaritunum Daily
Telegraph, Guardian og Evening
Standard: „Það er mjög skrýtið að
lesa gagnrýni um sýninguna í
breskum blöðum. Guardian er með
ákaflega fína umsögn og þar er
meðal annars sagt að Nína Dögg sé
„excellent Julia“.
Í dómunum er lögð áhersla á
kraftinn í sýningunni og dáðst að
kjarki og þori leikaranna. Þá er
sagt að sýningin sé í anda
Shakespeare; ung, fersk, sexý og í
takt við nútímann.
„Sýningin hitti algjörlega í
mark,“ segir Ragnar Bragason
kvikmyndagerðarmaður en hann
naut þess að vera áhorfandi á sýn-
ingunni því hann er staddur í
London þar sem hann er að gera
heimildarmynd um leikferðina.
„Það er mjög gaman að fá að vera
fluga á vegg og fylgjast með þessu
ævintýri.“
Íslensku leikararnir eru búnir
að vera við strangar æfingar í
London og koma til með að sýna
verkið fimm sinnum í viku í Young
Vic-leikhúsinu: „Hópnum líður
mjög vel en þetta er búið að vera
svakalega mikil törn. Við áttum
upphaflega að koma heim í lok
október en miðasalan hefur gengið
svo vel að nú lítur út fyrir að við
komum ekki heim fyrr en um miðj-
an nóvember.“ ■
Leikhús
RÓMEÓ OG JÚLÍA
■ Sannkallaður leiksigur hjá Vesturporti
í London. Leikararnir í skýjunum eftir
frábærar viðtökur.
Imbakassinn
Leiksigur í London
ÓDÝRT
HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
en gott
Við bjóðum
14
34
/
T
A
K
T
ÍK
n
r.
4
0
C
Stærð:
D: 50 cm
B: 30/40 cm
H: 180 cm
Stál-
skápar
fyrir
vinnustaði
kr. 7.719,-
Verð frá
Stálskápar
(Fyrsti skápur
kr. 8.840,-)
Í FYRRA
...var ég einhleypur.
NÚNA
...er ég kvæntur.
Lúðvík Bergvinsson alþingismaður kvæntist Þóru
Gunnarsdóttur um síðustu helgi.
Lárétt: 1 lítur eftir, 7 fiskaði, 8 guggin, 9
frá, 10 mynt, 12 tuldra, 15 sefa, 16 sam-
tenging, 18 ásaka, 20 ánægðar.
Lóðrétt: 1 ský á auga, 2 samhljóða ein-
tak, 3 hestar, 4 skammstöfun, 5 skel, 6
gera ógilt, 11 sérhljóðar, 13 mæla, 14
bleyta og kaldi, 17 líta, 19 tímabil.
Við förum í loftið eftir
fimm sekúndur! Er ekki í
lagi að ég ýti AÐEINS
við þér?
1
7
8
10 11
14 15
16 17
20
18 19
2 3 4 5
9
1312
6
Lausn. Lárétt: 1vaktar, 7aflaði,8grá, 9
af, 10lira,12tauta,15róa,16og,18lá,
20sáttar.
Lóðrétt: 1vagl,2afrit,3klárar, 4ta,5
aða,6rifta,11auó,13tala,14vos,17
gá,19ár.
Vigdís Grímsdóttir rithöfundurer komin heim frá Sviss þar
sem hún hélt upp á fimmtugsaf-
mælið sitt í svissneskra vina hópi:
„Þarna borðaði ég góðan mat,
sprengdi rakettur og svo kom
fellibylur og lagði allt í rúst. En þá
var ég nýfarin,“ segir Vigdís, sem
leist vel á sig í Sviss. „Þarna er
svo falleg náttúra en mér þótti
ekki eins fallegt í Genf. Annars
skiptir ekki máli hvar maður er;
það er alls staðar fallegt ef manni
líður vel.“
Vigdís er ánægð með að vera
orðin fimmtug og finnur engan
mun á sér frá árinu áður: „Það er
fínt að eldast og alls ekki myndi
ég vilja verða þrítug aftur. Það er
erfitt,“ segir hún.
Ný bók eftir Vigdísi er væntan-
leg á markað. Hún heitir Þegar
stjarna hrapar og er söguþráður-
inn í takt við titilinn: „...í raun og
veru hvað það er að vera stjarna,“
eins og hún orðar það sjálf. Bókin
byggir á sannsögulegum atburð-
um að hluta og Vigdís lofar góðum
og lærdómsríkum endi. ■
LEIKHÓPURINN Í LONDON
Myndin er frá frumsýningu Rómeó og Júlíu í London. Þar var gjörsamlega stappað og
dómarnir láta ekki á sér standa.
M
YN
D
/K
EI
TH
P
AT
TI
SO
N
■ Breyttir tímar
Ferðalög
VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR
■ rithöfundur hélt upp á fimmtugsaf-
mælið sitt í svissneskri náttúru. Hún vill
ekki verða þrítug aftur.
Vigdís
heim
frá Sviss
VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR
Skaut upp rakettum á fimmtugsafmælinu
og svo kom fellibylur og lagði allt í rúst.
Ævintýraleg hellskoðunarferð
í Skaftáreldarhraun 3. til 5. okt.
Sjá heimasíðu www.efrivik.is s: 487 4694
Í tilefni afmælisins eru allar vörur verslunarinnar með
20 % afslætti út þessa viku. Munið langan
Laugardag. Mikið úrval af fallegum gjafavörum
Gjafa gallery gjafavöruverslun
Frakkastíg 12, sími 511 2760
Gjafa gallery 3 ára
Foreldrar -
Stöndum saman
Leyfum ekki eftirlitslaus
unglingapartý.