Fréttablaðið - 03.10.2003, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Mikill leksigur
Ný starfsstétt hefur rutt sér tilrúms á Íslandi. Þetta eru svo-
kallaðir lekarar. Lekarar taka að sér
að missa út úr sér, skipulega og
óskipulega, mikilvægar upplýsingar.
Það er kallað „að leka.“ Að leka er
vandasamt verkefni og ekki fyrir
alla. Lekarar þurfa að fara huldu
höfði sem slíkir. Þeir mega ekki láta
uppi starfsheiti sitt. Þeir þurfa að
geta hvíslað. Vera svipbrigðalausir.
Lúmskir. Eyða talinu þegar grun-
semdir berast að þeim. Kunna að
senda tölvupóst án þess að fólk sjái
hvaðan hann kemur, og svo framveg-
is. Hringja úr símaklefa.
LEKARAR eru andhverfan við
njósnara. Njósnarar komast að upp-
lýsingum, en lekarar segja frá þeim.
Samt er margt líkt með þessum
starfsstéttum. Í báðum gildir að bera
sig almennt lymskulega og láta ekki
standa sig að verki. Rykfrakki, hatt-
ur og sólgleraugu geta komið sér vel
fyrir báða. Tækjabúnaður er einnig
svipaður. Ég spái því að lekarara-
stéttin eigi eftir að vaxa hér á landi
og samkeppni á milli einstakra
lekara eigi eftir að aukast til muna.
Það er svo mörgum sem finnst gam-
an að leka.
ÞAÐ ER margt spennandi í þessari
þróun. Það má ímynda sér að reistir
verði lekskólar, þar sem fólk lærir
að leka. Svo má ímynda sér að reist
verði lekhús, þar sem hægt verður
að borga sig inn og njóta þess að
hlýða á og verði vitni að atvinnulek-
urum. Félag íslenskra lekara verður
án efa eitt öflugusta, en þó dular-
fyllsta, stéttarfélag landsins og hin
eftirsóttu lekaraverðlaun verða veitt
á ári hverju.
LEKARI vikunnar að þessu sinni er
ótvírætt þingmaðurinn sem lak
stefnuræðu forsætisráðherra. Það
var mikill leksigur. Hafa ber í huga
að þessi lekari atti kappi við upp
undir sextíu aðra lekara. Margir
þeirra hafa mjög mikla lekreynslu.
En þar skilur á milli góðra lekara og
vondra lekara, að góðir lekarar hafa
gott tímaskyn og góða tilfinningu
fyrir stemmingu og umhverfi. Þessi
lekari vakti mikil og sterk viðbrögð
með lekanda sínum, en það heitir
verk lekara. Hér er greinilega nýr
stórlekari á ferð.
Bakþankar
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR