Fréttablaðið - 07.02.2004, Síða 2
2 7. febrúar 2004 LAUGARDAGUR
„Mér finnst kaffið gott, sérstak-
lega í þessum nýjum vélum.“
Halldór Björnsson er formaður Starfsgreinasam-
bands Íslands. Hann stendur í ströngu þessa dag-
ana í samningaviðræðum vegna kjarasamninga.
Að sögn er drukkið mikið kaffi á slíkum fundum,
sem gjarnan eru langir og strangir.
Spurningdagsins
Halldór, hvernig er kaffið?
VIRKJANIR „Mér þykja þessar hug-
myndir helgispjöll og fráleitar.
Þetta er langt fyrir neðan öll lág-
mörk í umhverfissjónarmiðum,“
segir Kári Þorgrímsson, bóndi í
Garði í Mývatnssveit, um frum-
varp umhverfisráðherra sem ger-
ir ráð fyrir að heimilt verði að
hækka Laxárstíflu að undan-
gengnu umhverfismati. Mikil
mótmæli hafa sprottið vegna
þessa máls. SUNN, Samtök um
náttúruvernd á Norðurlandi, lýstu
vonbrigðum með frumvarpið og
skora á ráðherra að draga það til
baka. Náttúruverndarsamtök Ís-
lands mótmæltu einnig og lýstu
griðrofi umhverfisráðherra.
Stjórn landeigendafélags Laxár
og Mývatns, þar sem Kári er rit-
ari, kom saman vegna þessa, mót-
mælti harkalega og sagði ekkert
tilefni til að víkja frá lögum núm-
er 36 frá 1974 sem sett voru í kjöl-
far Laxárdeilunnar árið 1973 þeg-
ar Mývetningar sprengdu upp
stíflu í Miðkvísl. Deilan hafði
staðið árum saman þegar and-
stæðingar virkjunarinnar og for-
sætisráðherra undirrituðu í maí
1973 samning um verndarsvæði
Laxár og Mývatnssvæðis. Kári
var á unglingsaldri þegar stíflan
var sprengd árið 1973. Hann seg-
ist hafa þurft að vera heima og
gæta afa síns sem var með blóð-
eitrun og þess vegna ekki getað
verið í hópi sprengjumanna.
„Ég var tilbúinn til þess að
sprengja þá og nú,“ segir Kári.
Hann segir að ekki sé vafi á því
að með stíflugerð muni verða
náttúruspjöll við eina fegurstu á
landsins.
„Ég þarf ekkert umhverfismat
til þess að svara þeirri spurningu
hvort breyta eigi Laxárvirkjun úr
rennslisvirkjun í miðlunarvirkjun
með tilheyrandi aursöfnun í uppi-
stöðulóni,“ segir Kári.
Hann segir að standa eigi við
lögin um verndun Laxár og Mý-
vatns frá 1974.
„Hvað þýðir að setja friðunar-
lög ef sett eru inn bráðabirgða-
ákvæði í hvert sinn sem einhvern
langar að framkvæma? Þarna er
verið að fórna miklu fyrir lítið,“
segir Kári og bendir á að fram-
kvæmdirnar myndu einungis
skila 6 megavöttum til viðbótar
þeim 20 megavöttum sem virkj-
unin gefur í dag.
rt@frettabladid.is
Teikn um bensínstríð á lofti:
Hraustleg eldsneytislækkun ESSO
ELDSNEYTISVERÐ „Við erum með
þessari lækkun að fylgja eftir
okkar verðstefnu sem miðar að
því að tryggja okkar viðskiptavin-
um hagkvæmt verð miðað við það
sem lægst er boðið á hverju mark-
aðssvæði fyrir sig,“ sagði Hjör-
leifur Jakobsson, forstjóri Olíu-
félagsins ESSO.
ESSO lækkaði í gær verð á
eldsneyti á öllum ESSO og ESSO
Express-stöðvum á landinu.
Dísilolía lækkar mest, um allt að
14%.
Eftir lækkunina kostar lítrinn
af 95 oktana bensíni í sjálfsaf-
greiðslu 93,70 krónur, lækkar
um 3,20 krónur. Verð á 95 oktana
bensíni í fullri þjónustu kostar
nú 98,70 krónur lítrinn, lækkar
um 2,20 krónur, og 95 oktana
bensín á ESSO Express-stöðvun-
um kostar nú 92,50 krónur lítr-
inn, lækkar um 3,20 krónur hver
lítri.
Lítrinn af dísilolíu hjá ESSO í
sjálfsafgreiðslu lækkar um 5,70
krónur og kostar nú 36,10 krónur.
Með fullri þjónustu kostar lítrinn
af dísilolíu nú 41,10 krónur, lækk-
ar um 4,70 krónur, og á ESSO Ex-
press-stöðvum kostar dísilolíulítr-
inn nú 34,90 krónur, lækkar um
5,70 krónur. Að auki fá Safnkorts-
hafar 1 krónu í afslátt í formi
Safnkortspunkta.
Nú munar, líkt og undanfarna
mánuði, 10 aurum á verði hvers
lítra bensíns og dísilolíu hjá ESSO
Express og Orkunni, sem hefur
boðið lægsta verðið hingað til.
Atlantsolía, Skeljungur og Olís
hafa ekki tilkynnt verðbreytingar
en öll bjóða þau nokkuð hærra
eldsneytisverð.
En er bensínstríð í uppsigl-
ingu?
„Stríð og ekki stríð. Við erum
bara að lækka til að koma til móts
við okkar viðskiptavini. Svona
skærur hafa oft blossað upp á
eldsneytismarkaði en þær hafa
sjaldnast staðið lengi,“ sagði for-
stjóri ESSO. ■
DeCode um Biotek
Invest:
Engar nánari
upplýsingar
VIÐSKIPTI Íslensk erfðagreining
segist í yfirlýsingu engu hafa við
þau gögn að bæta sem lögð hafi
verið fram vegna útboðs á bréfum
félagsins á bandarískum hluta-
bréfamarkaði árið 2000.
Yfirlýsingin var send út á
fimmtudag vegna fréttar DV um
viðskipti félagsins við lúxem-
búrgst félag, Biotek Invest SA, en
samkvæmt frétt blaðsins fékk
Biotek Invest um fjögur hundruð
milljóna króna greiðslu fyrir
milligöngu vegna sölu hlutabréfa
í DeCode árið 1999.
Í yfirlýsingu Íslenskrar erfða-
greiningar kemur ekkert fram um
ástæðu greiðslunnar til Biotek In-
vest SA né er það upplýst hverjir
stóðu á bak við félagið, en það hef-
ur nú hætt starfsemi og verið
sameinað félagi sem starfrækt er
í Panama. ■
Hæstiréttur:
Lækkaði
bætur
Franklíns
DÓMUR Hæstiréttur lækkaði bæt-
ur sem Héraðsdómur Reykjavík-
ur dæmdi íslenska ríkið til að
greiða Franklín Steiner vegna
ólöglegrar handtöku fyrir rúmum
þremur árum síðan.
Lækkaði Hæstiréttur bæturn-
ar úr 120 þúsundum króna í 50
þúsund krónur. Franklín var
handtekinn í miðbæ Hafnarfjarð-
ar vegna meintra umferðarlaga-
brota og gruns um fíkniefnamis-
ferli. Sex ára sonur Franklíns var
með honum í för þegar hann var
handtekinn. Franklín var færður
á lögreglustöðu þar sem fram-
kvæmd var líkamsleit og hann
yfirheyrður. Eftir um tvo klukku-
tíma var honum sleppt.
Hæstiréttur sýknaði ríkið af
kröfum vegna sonarins þar sem
þeim þætti málsins var ekki áfrýj-
að innan tímamarka. ■
LÖGREGLUMÁL Lögreglustjórinn í
Reykjavík hefur hafnað beiðni
um rannsókn á láti barns á Land-
spítala – Háskólasjúkrahúsi í
nóvember 2002. Jafnframt hafn-
ar embætti hans því að rannsaka
sérstaklega hvort brotið hafi ver-
ið gegn lögum um skyldu lækna
til að tilkynna óvænt dauðsfall
sjúklinga til lögreglu. Það var
lögmaður foreldra barnsins, Sig-
ríður Rut Júlíusdóttir, sem lagði
fram beiðnina fyrir þeirra hönd
4. nóvember 2003. Synjun lög-
reglunnar verður skotið til emb-
ættis ríkissaksóknara, að sögn
lögmannsins.
Í synjunarbréfi lögreglustjóra
segir að samkvæmt umbeðinni
umsögn landlæknis beri yfirlækn-
ir hlutaðeigandi heilbrigðisstofn-
unar ábyrgð á því að málið sé til-
kynnt til lögreglu, skv. læknalög-
um og í samræmi við ákvæði laga
um dánarvottorð.
„Landlæknisembættið telur
hins vegar ákvæði laganna um
dánarvottorð ekki nægjanlega
skýrt hvað varðar tilkynninga-
skylduna, og hvernig að henni sé
staðið, sérstaklega sem ekki hafi
verið settar þær vinnureglur sem
frumvarpið gerði ráð fyrir.“
Síðan segir lögreglustjóri að
það sé mat embættisins eins og
málum sé háttað, samanber það
sem fram komi í tilvitnuninni úr
svarbréfi landlæknis, að óvissan
um hvernig að slíkum tilkynning-
um til lögreglu skuli staðið og á
hvaða lækni sú skylda hvíli sé slík
að ekki séu efni til að hefja rann-
sókn.
„Ef lögreglan telur að lögin í
landinu séu ekki nægjanlega skýr
til þess að hægt sé að framfylgja
þeim, þá þarf einfaldlega að
breyta lögunum,“ sagði Rut. ■
ELDSNEYTISVERÐ ESSO
EFTIR LÆKKUN
Bensín 95 okt.
sjálfsafgreiðsla
93,70 kr./lítra (var 96,90) lækkun 3,3%
full þjónusta
98,70 kr./lítra (var 100,90) lækkun 2,2%
ESSO Express
92,50 kr./lítra (var 95,70) lækkun 3,3%
Dísilolía
sjálfsafgreiðsla
36,10 kr./lítra (var 41,80) lækkun 13,6%
full þjónusta
41,10 kr./lítra (var 45,80) lækkun 10,2%
ESSO Express
34,90 kr/lítra (var 40,60) lækkun 14,0%
Lögreglustjóri synjar beiðni um rannsókn á barnsláti:
Synjuninni skotið til ríkissaksóknara
KÁRI ÞORGRÍMSSON
Stendur fast gegn öllum hugmyndum um
stíflugerð í Laxá.
VIRKJUN SPRENGD
Árið 1973 risu andstæðingar Laxárvirkjunar
upp og gripu til þess að sprengja. Sami
hiti er í mönnum nú aldarfjórðungi síðar.
Ég var tilbúinn að
sprengja þá og nú
Kári Þorgrímsson, bóndi í Garði, líkir hækkun Laxárstíflu við helgispjöll.
Mótmæli hrúgast inn vegna áforma um hækkun stíflunnar. Krafa um að
staðið verði við samkomulag sem gert var eftir sprenginguna 1973.
Bylur skall á í gærkvöld:
Víða
kolófært
VEÐUR Mikil ófærð var víða um
land í gærkvöldi sökum fannferg-
is og skafrennings. Allir vegir á
hálendinu voru ófærir og ill- eða
ófært var víðast á Vestfjörðum.
Snemma í gærkvöldi var enn
skaplegt veður á Austurlandi og
vegir færir en þar var búist við
mikilli veðurhæð og ofankomu í
gærkvöldi.
Að sögn veðurfræðings á Veð-
urstofu Íslands er gert ráð fyrir
að veður taki að lægja á vestan-
verðu landinu um hádegi í dag en
áfram verði hvassviðri og ofan-
koma á Austurlandi. ■
Davíð Oddsson:
Endurskoðun
stjórnarskrár
STJÓRNARSKRÁIN Davíð Oddsson
forsætisráðherra segist tilbúinn
að ræða endurskoðun stjórnar-
skrárinnar og að færa hana til
nútímalegra horfs, sérstaklega
1. og 2. kafla hennar. Í þessum
köflum er meðal annars fjallað
um forsetakjör, lögkjör forseta,
hlutverk hans, vald og skyldur.
Forsætisráðherra lét þessi
orð falla í erindi sem hann flutti
á ráðstefnu um aldarafmæli
þingræðis á Íslandi í Háskóla Ís-
lands og bar yfirskriftina „hvar
liggur valdið?“. ■
RUMSFELD OG STRUCK
Rumsfeld og þýski varnarmálaráðherrann
Peter Struck hittust í gær.
Donald Rumsfeld:
Iðrast ekki
MUNCHEN, AP „Ég er of gamall til að
finna til eftirsjár,“ sagði Donald
Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, þegar hann var
spurður hvort hann sæi eftir því
að hafa skipt Evrópu upp í gömlu
og nýju Evrópu í aðdraganda inn-
rásarinnar í Írak. Þá taldi hann
Þjóðverja og Frakka, sem voru
andvígir innrás, til gömlu Evrópu
en ríki Austur-Evrópu, sem
studdu innrás, til nýrrar og afl-
mikillar Evrópu.
Rumsfeld sagði að ekki
þyrfti stórátak til að bæta sam-
skipti ríkjanna sem deildu um
innrás heldur löguðust þau af
sjálfu sér. ■