Fréttablaðið - 18.05.2004, Side 4
4 18. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Fórstu á leik í Landsbankadeild-
inni í fótbolta um helgina?
Spurning dagsins í dag:
Ertu sátt(ur) við árangur Íslands í
Eurovision?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
14%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
Össur Skarphéðinsson:
Litlar breytingar
ALÞINGI „Þessar breytingar eru
miklu minni en ég átti von á. Ég
taldi að Framsóknarmenn myndu
ná meiru fram heldur en því sem
nú liggur fyrir. Það eru ennþá al-
varleg álitamál uppi varðandi
ákvæði stjórnarskrárinnar og það
er alveg ljóst að frumvarpið stríð-
ir enn gegn markmiðum sam-
keppnislaga,“ sagði Össur Skarp-
héðinsson, formaður Samfylking-
arinnar, um þær breytingar sem
stjórnarflokkarnir hafa náð sam-
an um vegna fjölmiðlafrumvarps-
ins.
Össur telur að frumvarpið
þrengi enn mjög að rekstrar-
grundvelli fjölmiðla sem þegar
starfi á markaðnum, og skerði
framtíðarmöguleika í því sam-
bandi.
„Frumvarpið mun leiða til fá-
breytni á markaðnum, en ekki
fjölbreytni eins og forsætisráð-
herra heldur fram. Auðvitað var
það yfirvarp því það dylst engum
að þetta frumvarp var fyrst og
fremst lagt fram til að koma bönd-
um á fjölmiðla Norðurljósa,“
sagði Össur. ■
Breytingarnar til
bóta og mildandi
Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson komust í gær að samkomulagi um breytingar á fjölmiðla-
frumvarpinu. Framsóknarflokkurinn var áhugasamur um breytingarnar segir Davíð. Það hefur
reynt á samstarfið segir Halldór. Frumvarpið fer í þriðju umræðu á Alþingi í dag eða á morgun.
ALÞINGI Stjórnarflokkarnir hafa
komist að samkomulagi um
breytingar á fjölmiðlafrumvarp-
inu og voru þær kynntar á þing-
flokksfundum Sjálfstæðisflokks-
ins og Framsóknar í gær. Alls-
herjarnefnd vinnur nú við breyt-
ingartillögurnar, en þær snerta
tvo þætti. Í fyrsta lagi að óheim-
ilt verði að veita fyrirtæki út-
varpsleyfi ef annað fyrirtæki á
meira en 35% eignarhlut í því og
í öðru lagi að núverandi útvarps-
leyfum verði leyft að renna út,
þó þannig að ekkert þeirra renni
út fyrr en eftir 1. júní 2006.
Davíð segir að alltaf hafi
verið sátt um málið á milli
flokkanna, ætlunin hafi verið
að pústa á milli annarrar og
þriðju umræðu og taka púlsinn.
Með breytingunum sé verið að
milda frumvarpið.
„Það er enginn vafi á því að
meginbreytingin í tengslum við
útvarpsleyfin er auðvitað mild-
andi aðgerð. Þetta var niðurstað-
an og ég neita því ekki að Fram-
sóknarflokkurinn var áhugasam-
ur um breyting-
arnar,“ segir
Davíð og bætir
við: „Ég get
ekki séð hvern-
ig Steingrímur
J. Sigfússon,
sem er hvorki
gunga né
drusla, getur
annað en stutt
frumvarpið. Nú
reynir á hvað
það er sem stjórnar stjórnarand-
stöðunni, hún sjálf eða eitthvað
annað.“
Aðspurður um hvort forsetinn
viti um breytingarnar segir for-
sætisráðherra: „Nei, forsetinn
veit ekki af þeim. Það er ekki til
siðs að blanda honum í mál á
þessu stigi,“ sagði Davíð. Hann
sagði málið ekki hafa skaðað
stjórnarsamstarfið.
„Stjórnarsamstarfið er afskap-
lega gott og hefur aldrei verið
sterkara en núna,“ sagði Davíð.
Halldór Ásgrímsson taldi
breytingarnar til mikilla bóta, en
aðspurður um hvort hann hefði
viljað sjá hærri hlutdeild en 5%
fyrir markaðsráðandi fyrirtæki í
óskyldum rekstri sagði hann:
„Ég hefði alveg getað sætt
mig við frekari breytingu á því,
en ég tel þetta fullnægjandi. Það
er erfitt að segja til um hver
hlutföllin eigi að vera,“ sagði
Halldór.
Hann sagði málið hafa reynt á
stjórnarflokkanna, en niðurstaða
hafi náðst. „Það hefur reynt á
samstarfið, en við Davíð erum
vanir að tala saman um hlutina
og leysa málin. Ég er öruggari en
áður um það að frumvarpið
standist stjórnarskrána og það er
alveg ljóst að ég vil ekki taka
mikla áhættu í því sambandi,“
sagði Halldór.
bryndis@frettabladid.is
Forsætisnefnd:
Ekki rætt
um símtal
ALÞINGI Á fundi forsætisnefndar
Alþingis í gær vakti Guðmundur
Árni Stefánsson, Samfylkingu,
máls á fréttum um að forsætisráð-
herra hefði átt óviðeigandi samtal
við umboðsmann Alþingis í kjöl-
far álitsgerðar hans um embættis-
færslu dómsmálaráðherra við
skipan dómara í Hæstarétt. Emb-
ætti umboðsmanns heyrir undir
Alþingi.
Fram kom á fundi forsætis-
nefndar að engar upplýsingar eða
kvartanir hefðu borist frá emb-
ætti umboðsmanns um meint sím-
tal og var málið því ekki rætt
frekar á þessum fundi. ■
MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON
Þingflokksformaður Frjálslynda flokksins
segir fjölmiðlafrumvarpið arfavont þrátt
fyrir breytingar. „Það á að taka það og
henda því,“ segir hann.
Magnús Þór Hafsteinsson:
Arfavont
frumvarp
ALÞINGI „Mér líst illa á þessar
breytingar. Þetta er arfavont
frumvarp og hefur verið frá upp-
hafi og það á að taka það og henda
því. Fulltrúar allra flokka og
hagsmunaaðilar eiga að setjast
niður og fara yfir málin í samein-
ingu,“ segir Magnús Þór Haf-
steinsson, þingflokksformaður
Frjálslynda flokksins, um breyt-
ingarnar á frumvarpi um eignar-
hald á fjölmiðlum.
Hann telur að nota eigi sumar-
ið til að fara yfir frumvarpið og
leggja það síðan fram næsta haust
og vinna við það vandlega og yfir-
vegað. Mikilvægt sé að sátt náist
um málið.
„Við höfum aldrei verið á móti
því að skoða þessi mál og setja
heildstæða löggjöf, en það liggur
ekkert á að afgreiða málið,“ segir
hann. ■
Tónleikar Metallica:
Uppselt
ÍSLANDSMET Allir miðar á tónleika
hljómsveitarinnar Metallica seld-
ust upp á tveimur tímum á laugar-
dag. Aldrei áður hafa miðar á tón-
leika erlendrar hljómsveitar selst
svo hratt hérlendis. Liðsmenn
hljómsveitarinnar kættust við tíð-
indin og sögðust hlakka enn meira
til tónleikanna en áður. ■
Steingrímur J. Sigfússon um breytt frumvarp:
Liður í sálrænni meðferð
ALÞINGI „Þetta eru óverulegar
breytingar og greinilega liður í sál-
rænni meðferð, frekar en að menn
hafi farið í vandaða skoðun á því
að þessu þurfi að breyta efnislega.
Ákvæðið um 35% breytir mjög
litlu, enda var það ekkert sérstak-
lega umdeilt ákvæði í frumvarpinu
og bar lítið á góma. Það hefur líka
sáralítil áhrif borið saman við hin-
ar takmarkanirnar á eignarhlut
markaðsráðandi fyrirtækis og al-
gerum aðskilnaði milli ljósvaka-
miðla og dagblaða,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna, um þær breyting-
ar sem hafa verið gerðar á fjöl-
miðlafrumvarpinu.
Hann segir það lagatæknilega
til bóta að útvarpsleyfi verði leyft
að renna út, enda hafi ákvæðið
verið fráleitt í byrjun. Breyting-
arnar dugi þó ekki til að gera
vinnubrögðin viðunandi.
„Mér finnst þetta vera enn frek-
ari rök fyrir því að þessu máli í heild
sinni eigi að fresta og skoða í víðu
samhengi,“ segir Steingrímur. ■
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
„Það eru ennþá alvarleg álitamál uppi
varðandi ákvæði stjórnarskrárinnar og það
er alveg ljóst að frumvarpið stríðir enn
gegn markmiðum samkeppnislaga,“ segir
Össur um breytt fjölmiðlafrumvarp. FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
„Mér finnst þetta vera enn frekari rök fyrir því að þessu máli í heild sinni eigi að fresta og
skoða í víðu samhengi,“ segir formaður Vinstri grænna um breytt fjölmiðlafrumvarp.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
DAVÍÐ ODDSSON
Forsætisráðherra segist ekki sjá hvernig Steingrímur J. Sigfússon, sem hvorki sé gunga né
drusla, geti annað en stutt frumvarpið. Nú reyni á hvað það sé sem stjórni stjórnarand-
stöðunni, hún sjálf eða eitthvað annað.
SAMKOMULAGIÐ KYNNT
Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknar-
flokksins, kynnir þingkonum flokksins sam-
komulagið sem formenn stjórnarflokkanna
náðu um fjölmiðlafrumvarpið í gær.
„Stjórnar-
samstarfið er
afskaplega
gott og hefur
aldrei verið
sterkara en
núna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
86%